Bæjarráð - 3265. fundur
í bæjarstjórnarsal, Hábraut 2
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Andri Steinn Hilmarsson - formaður
- Hjördís Ýr Johnson - aðalfulltrúi
- Orri Vignir Hlöðversson - varaformaður
- Jónas Már Torfason - aðalmaðurBoðaði forföllEydís Inga Valsdóttir - varafulltrúiSat fundinn í staðinn
- Einar Jóhannes Guðnason - aðalfulltrúi
- María Ellen Steingrímsdóttir - áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Ásdís Kristjánsdóttir - bæjarstjóri
- Pálmi Þór Másson - bæjarritari
Ritari
- Pálmi Þór Másson
Dagskrá fundar
Á fundi bæjarráðs þann 10. september var lögð fram umsögn bæjarstjóra um tillögu að skipun samráðsvettvangs um framkvæmdir í miðbæ Kópavogs. Á þeim fundi var óskað eftir kynningu frá samskiptahóp um nýjan Miðbæ.
Kynning og umræður.
Gestir viku af fundi kl.8:54.
Tillögunni hafnað með þremur atkvæðum, gegn atkvæði Eydísar Ingu Valsdóttur og hjásetu Einars Jóhannesar Guðnasonar.
Bókun:
"Meirihluti bæjarráðs leggur áherslu á skýra upplýsingagjöf, gott samráð og virk samskipti við íbúa og aðra hagaðila vegna framkvæmda í miðbæ Kópavogs.
Fyrir liggur að þegar hefur verið komið á umfangsmiklu upplýsingaflæði vegna framkvæmdanna, meðal annars með skilgreindum tengiliðum, upplýsingasíðum, póstlista, sérstöku netfangi og upplýsingafundum. Með vísan til umsagnar og kynningar samskiptahóps um nýjan miðbæ telur bæjarráð mikilvægt að byggja áfram á því starfi og þeim samskiptaleiðum sem þegar eru til staðar og efla þær eftir því sem verkefninu vindur fram. Bæjarráð telur því ekki þörf á að koma á fót öðrum samhliða samráðsvettvangi eða sérstakri undirbúningsnefnd til viðbótar við þann sem þegar er til staðar.
Áfram verði lögð áhersla á öfluga upplýsingagjöf, virkt samráð og að brugðist sé við ábendingum íbúa og annarra hagaðila."
Andri Steinn Hilmarsson
Ásdís Kristjánsdóttir
Orri Vignir Hlöðversson
Hjördís Ýr Johnson
Bókun:
"Fulltrúi Samfylkingar þakkar fyrir góða kynningu. Við viljum þó benda á að fyrirspurn um málið, dags. 2. júlí 2026, sem tekin var fyrir á fundi skipulags- og umhverfisráðs 6. júlí og vísað til umhverfissviðs, er enn ósvarað.
Þrátt fyrir upplýsingamiðlun af hálfu bæjarins liggur fyrir að upplifun íbúa er sú að upplýsingagjöf hafi ekki verið nægileg og að rask á svæðinu hafi verið verulegt yfir langan tíma og enn séu ár eftir af framkvæmdartíma.
Í ljósi þessa teljum við miður að tillögu um samráðsvettvang vegna framkvæmdanna sé hafnað. Reynslan af framkvæmdunum til þessa sýnir að þörf er á auknu samtali og reglulegu samráði milli bæjarins, framkvæmdaraðila og þeirra íbúa sem verða fyrir mestum áhrifum af framkvæmdunum.
Fyrir liggur að viðbragðsáætlanir eru til staðar, en skortur á kynningu þeirra og upplýsingagjöf til íbúa hefur skapað óvissu og óöryggi meðal þeirra sem búa næst framkvæmdasvæðinu. Samfylkingin telur mikilvægt að íbúar fái skýrar upplýsingar um öryggisráðstafanir og viðbrögð vegna mögulegra óhappa á framkvæmdatíma."
Eydís Inga Valsdóttir
Frá umhverfissviði, dags. 03.09.2026, lagt fram erindi þar sem óskað er eftir heimild bæjarráðs til að hefja framkvæmdir við öldubrjót í samræmi við þá útfærslu og forsendur sem fram koma í meðfylgjandi greinargerð. Markmið framkvæmdarinnar er að bæta aðstöðu á hafnarsvæðinu, auka öryggi og tryggja notkunarmöguleika hafnarinnar og hafnarsvæðis.
Gestur vék af fundi kl. 9:12.
Bæjarráð frestar erindinu til næsta fundar.
03
Tillaga bæjarstjóra að stofnun spretthóps um fjárhagsaðstoð og stuðningskerfi Kópavogsbæjar
Frá bæjarstjóra, dags. 15.09.2026, lögð fram tillaga að stofnun spretthóps um fjárhagsaðstoð og stuðningskerfi Kópavogsbæjar.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum tillögu bæjarstjóra að stofnun spretthóps um fjárhagsaðstoð og stuðningskerfi Kópavogsbæjar.
Hópinn skipa:
Andri Steinn Hilmarsson, formaður
Orri Vignir Hlöðversson
Einar Jóhannes Guðnason
Frá umhverfissviði, lögð fram umsögn um illa lagðar rafskútur í bæjarlandinu.
Lagt fram og kynnt.
Gestur vék af fundi kl.9:13.
Bæjarráð vísar erindinu til afgreiðslu umhverfissviðs.
Bókun bæjarráðs:
"Bæjarráð telur mikilvægt að bæta umgengni og draga úr því að rafhlaupahjól séu skilin eftir þannig að þau hindri eða stofni gangandi og hjólandi vegfarendum í hættu. Bæjarráð vísar málinu til umhverfissviðs og felur því að vinna með Hopp að útfærslu leiða til að bæta umgengni, þar á meðal með skýrari kröfum um frágang, jákvæðum hvötum með sleppisvæðum og öðrum úrræðum."
Frá umhverfissviði, lögð fram umsögn um vindorkuhugmyndir sem eru til umfjöllunar í 6. áfanga rammaáætlunar.
Lagt fram.
Bókun bæjarráðs:
"Bæjarráð bendir á að óvissa sé um möguleg grenndaráhrif virkjananna, þar á meðal sjónræn áhrif og á hljóðvist, ekki síst með hliðsjón af upplandi Kópavogs, m.a. við Bláfjöll og Gunnarshólma. Gerir bæjarráð því fyrirvara við virkjunarhugmyndirnar að svo stöddu og kemur til með að gera betur grein fyrir afstöðu sveitarfélagsins á seinni stigum málsins, komi til þess. Bæjarstjóra er falið að taka umræðu um málið á vettvangi SSH."
Frá Sambandi ískenskra sveitarfélaga, dags. 09.09.2026, lagt fram erindi um breytingar á samþykktum Sambandsins.
Lagt fram.
Frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, dags. 11.09.2026 lagt fram erindi varðandi tillögu kjörnefndar að skipun stjórnar.
Lagt fram.
Frá Umhverfis- og orkustofnun, dags. 09.09.2026, lögð fram tillaga um virkjanahugmyndir í verndarflokk og átta verndarsvæði í samráðsgátt stjórnvalda sbr. lög 48/2011.
Lagt fram.
Frá Betri Samgögnum ohf., dags. 11.09.2026, lagt fram erindi þar sem fram kemur að framlag ríkisins til Betri Samagangna vegna framkvæmda samkvæmt samgöngusáttmálanum verði tímabundið lækkuð um 2 ma.kr.
Lagt fram.
Fundarhlé hófst kl. 10:09, fundi fram haldið kl.11:17
Bókun:
"Frestanir á fjármögnun og framkvæmdum Samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins ættu að koma fáum á óvart. Að þær komi fram svo stuttu eftir undirritun undirstrikar hversu óraunhæfar forsendur sáttmálans séu.
Sérstakt áhyggjuefni er að sveitarfélögin hafa þegar borið stærri hlut beinna framlaga en langtímaskipting sáttmálans gerir ráð fyrir, á sama tíma er verulegur hluti framtíðarfjármögnunar enn háður óútfærðum 143 milljörðum króna sem fjármagna á með flýti- og umferðargjöldum, sem meirihlutinn í Kópavogi hefur gefið í skyn að hann sé mótfallinn þó hann hafi samþykkt gjöldin með undirritun sáttmálans.
Það gefur augaleið að ófjármagnaði 311 milljarða króna bútasaumurinn sem samgöngusáttmálinn er átti aldrei möguleika að verða að veruleika, hvað þá halda tíma- og kostnaðaráætlun. Það er fjarstæðukennt að Borgarlínan, sem mun samkvæmt björtustu spám þjóna 12% ferða á höfuðborgarsvæðinu, standi undir 42% fjárfestinga sáttmálans.
Því miður hefur sáttmálinn þegar haft veruleg áhrif á skipulag Kópavogs, þar sem allt virðist vera gert til að þvinga fram breyttar ferðavenjur, þrengja götur og þétta byggð óhóflega mikið, í anda skipulags Reykjavíkurborgar.
Undirritaður leggur því til virkjun endurskoðunarákvæðis Samgöngusáttmálans, þar sem Borgarlínan verði tekin út eða umfang hennar taki mið af mögulegri notkun og fjármunum forgangsraðað að nýju. Mun Miðflokkurinn leggja fram tillögu þess efnis á næstu vikum."
Einar Jóhannes Guðnason
Bókun:
"Fulltrúar Samfylkingar og Viðreisnar taka ekki undir þá afstöðu fulltrúa Miðflokksins að tímabundnar breytingar á framlagi ríkisins til Betri samgangna feli í sér að Samgöngusáttmáli höfuðborgarsvæðisins sé óraunhæfur eða hafi brugðist. Eins og fram kemur í fjárlagafrumvarpi 2027 skýrist lækkun framlags um 2 ma.kr. af því að verulegar fjárfestingarheimildir hafa safnast upp vegna verkefna sem ekki hafa gengið út á fyrri árum og munu þær heimildir nýtast til framkvæmda á komandi ári.
Samgöngusáttmálinn er stærsta samgönguuppbygging sem ráðist hefur verið í á höfuðborgarsvæðinu og felur í sér uppbyggingu stofnvega, virkra ferðamáta, umferðaröryggisverkefna og almenningssamgangna. Markmið hans er að tryggja fjölbreyttari samgöngukosti og bæta tengingar milli sveitarfélaga á svæðinu.
Fulltrúar Samfylkingar og Viðreisnar telja því ekki tilefni til að virkja endurskoðunarákvæði sáttmálans með þeim hætti sem fulltrúi Miðflokksins leggur til. Þvert á móti er mikilvægt að ríki og sveitarfélög vinni áfram sameiginlega að þeim verkefnum sem þegar hefur verið samið um til að bæta samgöngur íbúa höfuðborgarsvæðisins."
Eydís Inga Valsdóttir
María Ellen Steingrímsdóttir
Bókun:
"Það eru vonbrigði að ríkið dragi lappirnar þegar kemur að fjármögnun sáttmálans og fer þannig gegn samkomulagi við sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu.
Í því ljósi er mikilvægt að ríkið sýni á spilin um hvernig staðið verði við þeirra hlut sáttmálans að fullu. Teljum við heppilegra að horfa til annarra leiða en flýti- og umferðargjalda. Hefur meirihlutinn í því samhengi bent á mikilvægi þess að ríkið hugi að annarri fjármögnun eins og sölu ríkiseigna til að greiða fyrir uppbygginguna.
Sveitarfélögin þurfa að geta treyst því að ríkið standi við þær fjárhagslegu skuldbindingar sem samkomulagið byggir á. Óvissa um útfærslu fjármögnunar ríkisins má ekki verða til þess að tefja nauðsynlegar samgöngubætur eða færa aukna fjárhagslega áhættu yfir á sveitarfélögin."
Andri Steinn Hilmarsson
Ásdís Kristjánsdóttir
Orri Vignir Hlöðversson
Hjördís Ýr Johnson
Bókun:
"Fulltrúar Samfylkingar og Viðreisnar vilja árétta að ekki er rétt að túlka tímabundna tilfærslu framlaga sem merki um að forsendur Samgöngusáttmálans séu brostnar. Samkvæmt fjárlagafrumvarpi 2027 byggist breytingin á uppsöfnuðum fjárfestingarheimildum sem nýtast til framkvæmda á árinu. Mikilvægt er að áfram sé staðið við skuldbindingar sáttmálans og verkefnunum haldið til streitu, og eru engin áform uppi um annað."
Eydís Inga Valsdóttir
María Ellen Steingrímsdóttir
Lagt fram bréf Verslunarmannafélags íslands, Landssambands ísl. verslunarmanna og Rafiðnaðarsambandsins, dags. 14. september 2026, þar sem óskað eftir upplýsingum um hvað Kópavogsbær sé tilbúinn að leggja af mörkum til að ná verðbólgu og vöxtum niður.
Bæjarráð vísar erindinu til umsagnar bæjarstjóra.
Fundarhlé hófst kl. 11:23, fundi fram haldið kl. 11:26.
Bókun bæjarráðs:
"Í apríl 2026 ákvað Kópavogsbær að takmarka hækkanir á gjaldskrám sem snúa að barnafjölskyldum við 2,5% verðbólgumarkmið Seðlabanka Íslands. Jafnframt var ákveðið að draga til baka þann hluta hækkana ársins sem hafði farið umfram 2,5%. Með þessari ákvörðun lagði Kópavogsbær sitt af mörkum til að verja ráðstöfunartekjur barnafjölskyldna, draga úr verðbólguþrýstingi og styðja við forsendur kjarasamninga.
Mikilvægt er að sveitarfélög og ríki axli sameiginlega ábyrgð á því að stuðla að verðstöðugleika. Haldi forsendur kjarasamninga og ríki og önnur sveitarfélög lýsa sig reiðubúin til sambærilegra aðgerða munu undirrituð tryggja að við gerð fjárhagsáætlunar Kópavogsbæjar fyrir árið 2027 verði áfram sett 2,5% þak á hækkanir þessara gjaldskráa.
Með slíkri ákvörðun myndi Kópavogsbær halda aftur af gjaldskrárhækkunum á barnafjölskyldur þrátt fyrir kostnaðarhækkanir í rekstri sveitarfélagsins. Kópavogsbær tæki þannig með beinum hætti þátt í að verja kaupmátt barnafjölskyldna og draga úr verðbólguþrýstingi.
Þetta yrði annað árið í röð sem Kópavogsbær velur að miða hækkanir þessara gjaldskráa við verðbólgumarkmið Seðlabankans fremur en almenna kostnaðarþróun. Með því sendir sveitarfélagið skýr skilaboð um að það sé reiðubúið að leggja sitt af mörkum til þess að forsendur kjarasamninga haldi, verðbólga hjaðni og skapist þannig betri skilyrði fyrir lækkun vaxta."
Fundargerð í 12 liðum.
Vísað til staðfestingar bæjarstjórnar.
Fundargerð í þremur liðum.
Lagt fram.
Fundargerð í ellefu liðum.
Lagt fram.
Bókun undir lið nr. 8.
"Fulltrúi Viðreisnar telur að þær upplýsingar sem fram koma í úrskurði Úrskurðarnefndar velferðarmála séu alvarlegar og kalli á pólitíska ábyrgð. Í úrskurðinum er rakið í sjónarmiðum kæranda að í svari lögmanns á skrifstofu bæjarritara hafi komið fram að málaflokkur fatlaðra barna væri ekki í forgangi hjá sveitarfélaginu og að bið eftir þjónustu stafaði af þeirri forgangsröðun. Slík forgangsröðun er að mati undirritaðrar óásættanleg.
Í þessu máli hafði þörf barnsins verið metin og þjónusta samþykkt, en tæpir átta mánuðir liðu þar til hún hófst. Á meðan versnaði staða barnsins svo að það var fært í hærri forgangsflokk. Þegar barn hefur verið metið í þörf fyrir þjónustu á það ekki að þurfa að bíða mánuðum saman eftir stuðningi. Fyrir barn eru átta mánuðir stór hluti af lífi þess og stuðningur á þeim tíma getur skipt verulegu máli."
María Ellen Steingrímsdóttir
Fundarhlé hófst kl. 11:30, fundi fram haldið kl. 12:14
Bókun:
"Það á við engin rök að styðjast að málaflokkur fatlaðra barna og einstalkinga sé ekki í forgangi hjá Kópavogsbæ. Ein vísbending þess efnis er að framlög til velferðarmála jukust um 36% á síðasta kjörtímabili, umtalsvert meira en til nokkurs annars málaflokks.
Bókun bæjarfulltrúa Viðreisnar dregur fram sjónarmið kæranda í því máli sem þar var til umfjöllunar. Rétt er að halda því til haga að niðurstaða Úrskurðarnefndar velferðarmála í þessu máli var Kópavogsbæ í vil."
Andri Steinn Hilmarsson
Ásdís Kristjánsdóttir
Orri Vignir Hlöðversson
Hjördís Ýr Johnson
Ásdís Kristjánsdóttir vék af fundi kl. 11:51.
Bókun:
"Það að niðurstaða úrskurðarnefndar hafi verið Kópavogsbæ í vil breytir ekki þeirri staðreynd að börn í Kópavogi bíða eftir þjónustu sem sveitarfélagið hefur þegar metið að þau þurfi og samþykkt að veita þeim og er þetta mál ekki einsdæmi. Aukning framlaga til málaflokksins segir heldur ekki ein og sér til um hvort fjármunir séu nægir eða þjónustan fullnægjandi. Raunverulegur mælikvarði hlýtur að vera hvort börn fái þá þjónustu sem þau þurfa þegar þau þurfa á henni að halda.
Það er verulegt áhyggjuefni að börn geti beðið mánuðum saman eftir samþykktri þjónustu. Í því máli sem undirrituð er að draga hér fram versnaði staða barnsins á biðtímanum svo að það færðist í hærri forgangsflokk. Það undirstrikar hversu miklu máli tíminn skiptir þegar börn eiga í hlut. Fulltrúi Viðreisnar telur því ekki nægjanlegt að vísa til aukinna heildarframlaga til málaflokksins. Ef börn sem hafa verið metin í þörf fyrir þjónustu og fengið hana samþykkta bíða mánuðum saman eftir að hún hefjist, þarf að bregðast við þeirri stöðu og tryggja að fjárveitingar og þjónustugeta sveitarfélagsins mæti raunverulegri þörf."
María Ellen Steingrímsdóttir
Bókun:
"Meirihlutinn tekur undir að mikilvægt sé að börn fái viðeigandi þjónustu eins fljótt og kostur er eftir að þörf hefur verið metin. Markvisst hefur verið unnið að styttingu biðlista og aukinni þjónustugetu í málaflokknum."
Andri Steinn Hilmarsson
Orri Vignir Hlöðversson
Hjördís Ýr Johnson
13.2 - 26081401 - Reglur um húsnæði fyrir fatlað fólk
Nýjar reglur um húsnæði fyrir fatlað fólk lagt fram til afgreiðslu
Velferðar- og mannréttindaráð samþykkir fyrir sitt leyti drög að nýjum reglum um húsnæði fyrir fatlað fólk og vísar þeim til afgreiðslu bæjarráðs og staðfestingar bæjarstjórnar.
Vísað til staðfestingar bæjarstjórnar.
13.3 - 26081403 - Breytingar á reglum um akstursþjónustu fatlaðs fólks
Drög að breytingum á reglum um akstursþjónustu fatlaðs fólks lagt fram til afgreiðslu
Velferðar- og mannréttindaráð samþykkir fyrir sitt leyti drög að breytingum á reglum um akstursþjónustu fyrir fatlað fólk og vísar þeim til afgreiðslu bæjarráðs og staðfestingar bæjarstjórnar.
Vísað til staðfestingar bæjarstjórnar.
Fundargerð í sex liðum.
Lagt fram.
Fundargerð 632. fundar stjórnar SSH frá 07.09.2026.
Lagt fram.
Fundargerð 426. fundar stjórnar Strætó frá 28.08.2026.
Lagt fram.
Fundargerð 56. eigendafundar stjórnar Strætó frá 07.09.2025.
Lagt fram.
Fundargerð 56. eigendafundar stjórnar Sorpu bs. frá 07.09.2026.
Lagt fram.
Fundargerð 531. fundar stjórnar Sorpu bs. frá 24.08.2026.
Lagt fram.
Fundargerð 532. fundar stjórnar Sorpu bs. frá 11.09.2026.
Lagt fram.
Frá bæjarfulltrúa Miðflokks, dags. 15.09.2026, lagt fram erindi þar sem óskað er eftir umræðu í bæjarráði um framkvæmd við gatnamót Nýbýlavegar, Ástúns og Þverbrekku.
Kynning á stöðu málsins,
Umræður.
Gestir viku af fundi kl. 9:25
Bæjarráð felur sviðsstjóra umhverfissviðs að leiðbeina Vegagerðinni um réttan farveg málsins. Málinu jafnframt vísað til Skipulags- og umhverfisráðs til kynningar.
Frá bæjarfulltrúa Miðflokks, dags. 15.09.2026, lögð fram ítrekun varðandi tillögu um óháða stjórnsýsluúttekt á umhverfissviði.
Lagt fram.