Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Erindi vegna kjarasamninga

Málsnúmer: 26091874

Ferill máls

01

Bæjarráð - 3267. fundur

Á fundi bæjarráðs þann 17.09.2026 var lagt fram erindi frá VR, Landssambandi íslenskra verslunarmanna og Rafiðnaðarsambandinu, dags. 14. september 2026, þar sem óskað eftir upplýsingum um hvað Kópavogsbær væri tilbúinn að leggja af mörkum til að ná verðbólgu og vöxtum niður. Bæjarráð vísaði erindinu til umsagnar bæjarstjóra. Nú lögð fram umsögn bæjarstjóra, dags. 06.10.2026.

Lagt fram.

Umræður.

02

Bæjarráð - 3265. fundur

Lagt fram bréf Verslunarmannafélags íslands, Landssambands ísl. verslunarmanna og Rafiðnaðarsambandsins, dags. 14. september 2026, þar sem óskað eftir upplýsingum um hvað Kópavogsbær sé tilbúinn að leggja af mörkum til að ná verðbólgu og vöxtum niður.

Bæjarráð vísar erindinu til umsagnar bæjarstjóra.

Fundarhlé hófst kl. 11:23, fundi fram haldið kl. 11:26.

Bókun bæjarráðs:

"Í apríl 2026 ákvað Kópavogsbær að takmarka hækkanir á gjaldskrám sem snúa að barnafjölskyldum við 2,5% verðbólgumarkmið Seðlabanka Íslands. Jafnframt var ákveðið að draga til baka þann hluta hækkana ársins sem hafði farið umfram 2,5%. Með þessari ákvörðun lagði Kópavogsbær sitt af mörkum til að verja ráðstöfunartekjur barnafjölskyldna, draga úr verðbólguþrýstingi og styðja við forsendur kjarasamninga.

Mikilvægt er að sveitarfélög og ríki axli sameiginlega ábyrgð á því að stuðla að verðstöðugleika. Haldi forsendur kjarasamninga og ríki og önnur sveitarfélög lýsa sig reiðubúin til sambærilegra aðgerða munu undirrituð tryggja að við gerð fjárhagsáætlunar Kópavogsbæjar fyrir árið 2027 verði áfram sett 2,5% þak á hækkanir þessara gjaldskráa.

Með slíkri ákvörðun myndi Kópavogsbær halda aftur af gjaldskrárhækkunum á barnafjölskyldur þrátt fyrir kostnaðarhækkanir í rekstri sveitarfélagsins. Kópavogsbær tæki þannig með beinum hætti þátt í að verja kaupmátt barnafjölskyldna og draga úr verðbólguþrýstingi.

Þetta yrði annað árið í röð sem Kópavogsbær velur að miða hækkanir þessara gjaldskráa við verðbólgumarkmið Seðlabankans fremur en almenna kostnaðarþróun. Með því sendir sveitarfélagið skýr skilaboð um að það sé reiðubúið að leggja sitt af mörkum til þess að forsendur kjarasamninga haldi, verðbólga hjaðni og skapist þannig betri skilyrði fyrir lækkun vaxta."