Jólavogur - kynning
Málsnúmer: 26092034
Ferill máls
01
Bæjarráð - 3267. fundur
Soffía Karlsdóttir forstöðumaður menningarmála kynnir nýja dagskrárröð á aðventunni undir heitinu Jólavogur.
Kynning og umræður.
Gestir viku af fundi kl. 8:33.
Fundarhlé hófst kl. 8:34, fundi fram haldið kl. 8:46
02
Menningar- og mannlífsnefnd - 16. fundur
Beiðni um stuðning frá verkefna- og viðburðastjóra menningarmála vegna viðburða á aðventunni.
Menningar- og mannlífsnefnd þakkar Vigdísi Jakobsdóttur verkefna- og viðburðastjóra fyrir kynningu á nýrri dagskrárröð á aðventunni undir heitinu Jólavogur. Meirihluti nefndarinnar samþykkir að veita verkefninu styrk að upphæð 2.000.000 króna.
Bókun:
Fulltrúi Samfylkingarinnar telur það skapa hættulegt fordæmi ef Kópavogsbær stendur fyrir jóladagskrá í verslunarhúsnæði einkafyrirtækja eða styrkir fyrirtæki í bænum fjárhagslega.
Margrét Tryggvadóttir.
Bókun:
Undirritaður kann mjög vel við konseftið en setur spurningamerki við Smáralind þar sem þar eru einkafyrirtæki sem fá styrk en aðrir ekki. Annars almennt ánægður með Jólavoginn.
Ásgeir Þór Jónsson
Vigdís Jakobsdóttir yfirgefur fundinn kl. 15:52.