Menningar- og mannlífsnefnd - 16. fundur
í bæjarstjórnarsal, Hábraut 2
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Elísabet Berglind Sveinsdóttir - aðalmaðurBoðaði forföllHelga Guðrún Jónasdóttir - varafulltrúiSat fundinn í staðinn
- Guðný Svandís Guðjónsdóttir - aðalfulltrúi
- Sveinn Gíslason - aðalmaðurBoðaði forföllÞórunn Kolbeins Matthíasdóttir - varafulltrúiSat fundinn í staðinn
- Margrét Vilborg Tryggvadóttir - aðalfulltrúi
- Ásgeir Þór Jónsson - aðalfulltrúi
- Einar Jóhannes Guðnason - áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Vilborg Soffía Karlsdóttir - starfsmaður nefndar
Ritari
- Soffía Karlsdóttir
Dagskrá fundar
Kynning á áherslum tengdum menningu og mannlífi í málefnasamningi meirihlutans.
Lagt fram til kynningar.
Beiðni um stuðning frá verkefna- og viðburðastjóra menningarmála vegna viðburða á aðventunni.
Menningar- og mannlífsnefnd þakkar Vigdísi Jakobsdóttur verkefna- og viðburðastjóra fyrir kynningu á nýrri dagskrárröð á aðventunni undir heitinu Jólavogur. Meirihluti nefndarinnar samþykkir að veita verkefninu styrk að upphæð 2.000.000 króna.
Bókun:
Fulltrúi Samfylkingarinnar telur það skapa hættulegt fordæmi ef Kópavogsbær stendur fyrir jóladagskrá í verslunarhúsnæði einkafyrirtækja eða styrkir fyrirtæki í bænum fjárhagslega.
Margrét Tryggvadóttir.
Bókun:
Undirritaður kann mjög vel við konseftið en setur spurningamerki við Smáralind þar sem þar eru einkafyrirtæki sem fá styrk en aðrir ekki. Annars almennt ánægður með Jólavoginn.
Ásgeir Þór Jónsson
Vigdís Jakobsdóttir yfirgefur fundinn kl. 15:52.
Bæjarhátíð Kópavogs 2027.
Meirihluti menningar- og mannlífsnefndar samþykkir að efnt verði til nýrrar bæjarhátíðar í Kópavogi á næsta ári.
Nefndin óskar eftir heimild skrifstofu áhættu- og fjárstýringar til að ónýttar fjárheimildir í sjóði nefndarinnar við lok árs 2026 verði færðar milli ára og nýttar til undirbúnings og framkvæmdar hátíðarinnar árið 2027.
Auglýsing vegna styrkúthlutunar menningar- og mannlífsnefndar.
Menningar- og mannlífsnefnd samþykkir þær áherslur sem settar eru fram í auglýsingu um menningarstyrki frá Kópavogsbæ.
Forstöðumaður Salarins kynnir starfsemina og svarar fyrirspurnum.
Menningar- og mannlífsnefnd þakkar forstöðumanni Salarins fyrir upplýsandi og áhugaverða kynningu á starfsemi Salarins.
Forstöðumaður Gerðarsafns kynnir starfsemi safnsins og svarar fyrirspurnum.
Menningar- og mannlífsnefnd þakkar forstöðumanni Gerðarsafns fyrir upplýsandi og áhugaverða kynningu á starfsemi safnsins.
Margrét Tryggvadóttir óskar eftir endurupptöku á fyrirspurn frá síðasta fundi varðandi vegglistaverkið Sólarslóð: "Ég óska eftir því að fyrirspurnin sé aftur tekin fyrir, hver nákvæmlega átti frumkvæði og hver veitti leyfi. Eins óska ég eftir afriti af tölvupóstum til listamannsins og samskiptum við Gerðarsafn og samninginn um verkið."
Lagt fram.
Bókun:
Fulltrúar Samfylkingarinnar og Viðreisnar fordæma þá skipan bæjarstjóra að láta mála yfir verkið Sólarslóð eftir Theresu Himmer með kosningaáróðri.
Rangt er að verkið Sólarslóð hafi verið tímabundið listaverk til allt að þriggja ára. Samkvæmt samningi var Kópavogsbæ heimilt að fjarlægja verkið eftir þrjú ár ef bærinn treysti sér ekki til að viðhalda því. Verkið var alls ekki illa farið. Þá var verkið skráð í safneign Gerðarsafns eins og sjá má á vefsafni Landsbókasafns: https://vefsafn.is/is/20260302153045/https://gerdarsafn.kopavogur.is/safneign/
Margrét Tryggvadóttir
Ásgeir Þór Jónsson
Bókun:
Við undirrituð teljum framkomin gögn staðfesta að ákvörðun um breytta nýtingu veggjarins á Hálsatorgi hafi verið tekin á málefnalegum og réttum forsendum. Sólarslóð var tímabundið verk samkvæmt samningi frá 2019 og Kópavogsbæ var heimilt að fjarlægja það að þremur árum liðnum. Verkið var ekki hluti af listaverkaeign bæjarins og laut því ekki varðveisluskyldu Gerðarsafns. Áður en ákvörðun var framkvæmd var jafnframt kannað að engar samningsbundnar eða lagalegar hindranir væru fyrir hendi og listamaðurinn upplýstur um fyrirhugaða breytingu. Veggurinn er hluti af mannvirki á ábyrgð bæjarins og ákvörðun um nýtingu hans var tekin í tengslum við framkvæmdir og uppbyggingu á svæðinu.
Með vísan til framangreinds teljum við undirrituð að málið hafi verið upplýst með fullnægjandi hætti, því sé lokið og það þarfnist ekki frekari umræðu.
Guðný Svandís Guðjónsdóttir
Helga Guðrún Jónasdóttir
Þórunn Kolbeins Matthíasdóttir