Áskorun varðandi þjóðarsátt um verðstöðugleika
Málsnúmer: 26092130
Ferill máls
01
Bæjarráð - 3267. fundur
Lagt fram svar bæjarstóra við áskorun frá Starfsgreinasambandi Íslands, dags. 16.09.2026.
Lagt fram.
Umræður.
02
Bæjarráð - 3266. fundur
Frá Starfsgreinasambandi Íslands, dags. 16.09.2026, lögð fram áskorun varðandi þjóðarsátt um verðstöðugleika. Óskað er eftir skriflegu svari við því hvort sveitarfélagið sé reiðubúið að taka þátt í þjóðarsátt um verðstöðugleika og sjá til þess að gjaldskrár sveitarfélagsins og fyrirtækja í eigu þess hækki ekki um meira en 2,5% það sem eftir lifir gildandi kjarasamninga.
Lagt fram.
Bókun bæjarráðs:
"Bæjarráð tekur undir ályktun landsþings Sambands íslenskra sveitarfélaga um að sveitarfélögin sýni ábyrgð gagnvart stöðu efnahagsmála. Þar lýstu fulltrúar Kópavogsbæjar ásamt öðrum sveitarfélögum yfir vilja til að halda hækkunum almennra gjaldskráa innan 2,5% á árinu 2027. Þar að auki takmarkaði Kópavogsbær hækkanir á gjaldskrám barnafjölskyldna við 2,5% verðbólgumarkmið SÍ á þessu ári og lagði þannig sín lóð á vogarskálarnar til að halda aftur af verðbólgu og álögum sem hafa bein áhrif á heimilin."