Hæðarhvarf 12. Beiðni um heimild til framsals.
Málsnúmer: 26092710
Ferill máls
01
Bæjarráð - 3270. fundur
Frá umhverfissviði, dags. 27.10.2026, lögð fram beiðni um heimild til framsals lóðarinnar að Hæðarhvarfi 12. Bæjarráð frestaði erindinu á fundi sínum 29.10.2026.
Umræður.
Gestur vék af fundi kl.8:23.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að heimila framsal á lóðinni Hæðarhvarfi 12 til Þingverks ehf. með þeim skilyrðum að báðir lóðarhafar standi að beiðninni.
Bókun:
"Undirrituð greiðir atkvæði með heimild til framsals lóðarinnar að Hæðarhvarfi 12 til Þingverks ehf., í samræmi við afgreiðslu sambærilegra beiðna. Undirrituð vísar þó til bókunar bæjarfulltrúa Samfylkingarinnar, Jónasar Más Torfasonar, á fundi bæjarráðs 11. júní 2026. Þar var bent á að sömu kvaðir og gilda um framsal lóðar gilda ekki um framsal hlutafjár í því félagi sem tekur við lóðinni. Í þessu máli er lóð framseld til félags í 100% eigu lóðarhafa. Ekkert kemur í veg fyrir að hlutir í félaginu verði síðar seldir og lóðin þannig í reynd framseld án samþykkis bæjarráðs.
Þessi glufa er enn opin. Undirrituð ítrekar mikilvægi þess að brugðist verði við henni með almennum hætti, til dæmis með því að áskilja samþykki bæjarráðs vegna eigendaskipta á félagi sem tekur við lóð frá upphaflegum lóðarhafa. Undirrituð óskar eftir upplýsingum um hvort og hvernig unnið hafi verið að slíkum breytingum á úthlutunarskilmálum frá því í júní."
Eydís Inga Valsdóttir
Bókun:
"Undirritaður skilur vel aðstæður að baki fyrirliggjandi beiðni og er ekki alfarið á móti samþykkt hennar. Undirritaður gerir þó athugasemd við að bæjarráð afgreiði enn eina beiðni um framsal lóðarréttinda í Vatnsendahvarfi án þess að reglur um framsal liggi fyrir.
Í svari umhverfissviðs við fyrirspurn Miðflokksins, sem lagt var fram í bæjarráði 1. október 2026, kom fram að af 36 lögaðilum sem fengið hafa úthlutað lóðum hafa fjórir sótt um framsal. Bæjarráð samþykkti þrjár beiðnanna og synjaði einni. Auk þess var samþykkt framsal lóðarréttinda tveggja einstaklinga til eigin félaga. Hver beiðni er metin sérstaklega og hvergi kemur fram hvenær framsal er heimilað og hvenær ekki. Ekkert hindrar heldur að félag sem tekur við lóðarréttindum sé selt áfram.
Lóðum er úthlutað samkvæmt skilmálum sem eiga að gilda jafnt fyrir alla. Ef framsal er í raun viðtekin vinnuregla á það að koma fram í skilmálunum.
Undirritaður endurtekur því beiðni sína um að umhverfissvið leggi fyrir bæjarráð drög að verklagsreglum um framsal lóðarréttinda sem fyrst og að frekari beiðnir verði ekki afgreiddar fyrr en þær liggja fyrir."
Einar Jóhannes Guðnason
Bókun:
"Meirihlutinn telur mikilvægt að halda því til haga að framsal lóðaréttinda fer fram á grundvelli gildandi úthlutunarreglna Kópavogsbæjar en þar er kveðið á um að framsal byggingarréttar sé óheimilt fyrir tiltekið byggingarstig nema með samþykki bæjarráðs. Reglurnar gera því beinlínis ráð fyrir því að bæjarráð geti heimilað framsal að undangengnu mati á hverju tilfelli fyrir sig.
Í því máli sem hér er til umfjöllunar er óskað eftir að færa lóðarréttindi til félags sem er að fullu í eigu annars núverandi lóðarhafa. Ekki er því um að ræða sölu byggingarréttar til ótengds þriðja aðila og telur meirihlutinn eðlilegt er að lóðarhafar hafi ákveðið svigrúm til að haga félagaformi sínu og framkvæmdum með þessum hætti, enda sé áfram tryggt að staðið verði við þær skyldur og skilmála sem fylgja úthlutuninni.
Meirihlutinn tekur eigi að síður undir að mikilvægt sé að gæta þess að úthlutunarskilmálar nái tilgangi sínum og að ekki sé hægt að fara í kringum þá með breytingum á eignarhaldi félaga og telur rétt að skoða til framtíðar hvort þörf sé á nánari útfærslu reglna um framsal, m.a. hvað varðar breytingar á yfirráðum í félögum sem fara með lóðarréttindi.
Andri Steinn Hilmarsson
Ásdís Kristjánsdóttir
Hjördís Ýr Johnson
Orri Vignir Hlöðversson
02
Bæjarráð - 3269. fundur
Frá umhverfissviði, dags. 27.10.2026, lögð fram beiðni um heimild til framsals lóðarinnar að Heiðarhvarfi 12.
Bæjarráð frestar erindinu.