Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Bæjarráð - 3269. fundur

í bæjarstjórnarsal, Hábraut 2

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Andri Steinn Hilmarsson - formaður
  • Hjördís Ýr Johnson - aðalfulltrúi
  • Orri Vignir Hlöðversson - varaformaður
  • Jónas Már Torfason - aðalfulltrúi
  • Einar Jóhannes Guðnason - aðalfulltrúi
  • María Ellen Steingrímsdóttir - áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Ásdís Kristjánsdóttir - bæjarstjóri
  • Pálmi Þór Másson - bæjarritari

Ritari

  • Pálmi Þór Másson

Dagskrá fundar

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

01

Samræmd móttaka flóttafólks

Kynning á samningi um samræmda móttöku flóttafólks.

Kynning og umræður.

Gestir viku af fundi kl.9:05.


Gestir

  • Þóra Kemp skrifstofustjóri ráðgjafar á velferðarsviði - mæting: 08:15
  • Atli Sturluson skrifstofustjóri rekstrar - mæting: 08:15
  • Sigrún Þórarinssdóttir sviðsstjóri velferðarsviðs - mæting: 08:15
Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

02

Fjárhagsáætlun Kópavogsbæjar 2027

Frá bæjarstjóra, lögð fram tillaga að fjárhagsáætlun Kópavogsbæjar og stofnana fyrir árið 2027.

Gestir viku af fundi kl. 11:03

Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að leggja framlagða tillögu að fjárhagsáætlun Kópavogsbæjar fyrir árið 2027, auk næstu þriggja ára þar á eftir, fyrir bæjarstjórn til umræðu og afgreiðslu.


Gestir

  • Sindri Sveinsson áhættu og fjárstýringarstjóri - mæting: 09:31
  • Ævar Ólafsson áhættu og fjárstýringarskrifstofu - mæting: 09:31
  • Ingólfur Arnarson deildarstjóri greiningardeildar. - mæting: 09:31
Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

03

Hæðarhvarf 12. Beiðni um heimild til framsals.

Frá umhverfissviði, dags. 27.10.2026, lögð fram beiðni um heimild til framsals lóðarinnar að Heiðarhvarfi 12.

Bæjarráð frestar erindinu.

Ýmis erindi

04

Niðurstöður undirskriftasöfnunar um lengri opnunartíma sundlauga

Lagður fram undirskriftarlisti vegna lengri opnunartima sundlauga í Kópavogi þar sem skorað er á bæjarstjórn Kópavogs að tryggja fjármagn í fjárhagsáætlun 2027 til lengri opnunartíma sundlauga um helgar.

Bæjarráð vísar erindinu til fjárhagsáætlunargerðar.

Bókun:

"Undirritaður þakkar framtak Kópavogsbúa og þeim sem skrifað hafa undir undirskriftalistann. Samfylking lagði mikla áherslu á lengingu opnunartíma í kosningabaráttunni síðastliðið vor og tekur heilshugar undir áskorunina. Mikilvægt er að opnunartímar séu lengdir og færi best á því að opið væri til kl. 22 alla daga ársins í bæði Kópavogslaug og Salalaug.

Þá er fullt tilefni til að kanna hvort áhugi sé fyrir því meðal ungmenna bæjarins að framlengja opnunartímann enn frekar, til kl. 23, á föstudögum og laugardögum um sumar, líkt og tillaga Samfylkingar sem flutt var í bæjarstjórn Kópavogs þann 23. júní 2026 kvað á um. Sú tillaga var ekki samþykkt af meirihluta bæjarráðs þann 2. júlí. Undirritaður mun eftir sem áður leggja áherslu á lengingu opnunartíma við komandi fjárhagsáætlunargerð."

Jónas Már Torfason


Bókun:

"Í meirihlutasáttmála Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar er gert ráð fyrir lengri helgaropnun sundlauga og regluleg miðnæturopnun til að mæta þörfum íbúa og efla lýðheilsu. Þessi umræða verður tekin í afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2027."

Andri Steinn Hilmarsson

Orri Vignir Hlöðversson

Ásdís Kristjánsdóttir

Hjördís Ýr Johnson

Fundargerðir nefnda

05

Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 454. fundur frá 09.10.2026

Fundargerð í 18 liðum.

Vísað til staðfestingar bæjarstjórnar.

Fundargerðir nefnda

06

Menntaráð - 167. fundur frá 20.10.2026

Fundargerð í 25 liðum.

Lagt fram.

Fundargerðir nefnda

07

Skipulags- og umhverfisráð - 37. fundur frá 19.10.2026

Fundargerð í átta liðum.

Lagt fram.

Fundargerðir nefnda

08

Fundargerð 1004. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 08.10.2026

Fundargerð 1004. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 08.10.2026.

Lagt fram.

Fundargerðir nefnda

09

Fundargerð 634. fundar stjórnar SSH frá 05.10.2026

Fundargerð 634. fundar stjórnar SSH frá 05.10.2026.

Lagt fram.

Fundargerðir nefnda

10

Fundargerð 533. fundar stjórnar Sorpu bs. frá 16.09.2026

Fundargerð 533. fundar stjórnar Sorpu bs. frá 16.09.2026.

Lagt fram.

Fundargerðir nefnda

11

Fundargerð 534. fundar stjórnar Sorpu bs. frá 28.09.2026

Fundargerð 534. fundar stjórnar Sorpu bs. frá 28.09.2026.

Lagt fram.

Fundargerðir nefnda

12

Fundargerð 535. fundar stjórnar Sorpu bs. frá 02.10.2026

Fundargerð 535. fundar stjórnar Sorpu bs. frá 02.10.2026.

Lagt fram.

Fundargerðir nefnda

13

Fundargerð 149. fundar stjórnar Svæðisskipulagsnefndar frá 16.10.2026

Fundargerð 149. fundar stjórnar Svæðisskipulagsnefndar frá 16.10.2026.

Lagt fram.

Fundargerðir nefnda

14

Fundargerð 635. fundar stjórnar SSH frá 19.10.2026

Fundargerð 635. fundar stjórnar SSH frá 19.10.2026.

Lagt fram.

Fundargerðir nefnda

15

Fundargerð 427. fundar stjórnar Strætó frá 17.09.2026

Fundargerð 427. fundar stjórnar Strætó frá 17.09.2026.

Lagt fram.

Fundargerðir nefnda

16

Fundargerð 428. fundar stjórnar Strætó frá 15.10.2026

Fundargerð 428. fundar stjórnar Strætó frá 15.10.2026.

Lagt fram.

Fundargerðir nefnda

17

Fundargerð 442. fundar Samstarfsnefndar skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins frá 20.10.2026

Fundargerð 442. fundar Samstarfsnefndar skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins frá 20.10.2026.

Lagt fram.

Erindi frá bæjarfulltrúum

18

Fyrirspurn bæjarfulltrúa Einars Jóhannesar Guðnasonar um innritun í leikskóla tvisvar á ári

Frá bæjarfulltrúa Miðflokksins, dags. 27.10.2026, lögð fram fyrirspurn um innritun í leikskóla tvisvar á ári.

Bæjarráð vísar erindinu til umsagnar sviðsstjóra menntasviðs. Óskað er jafnframt eftir upplýsingum um árgangastærðir.

Erindi frá bæjarfulltrúum

19

Beiðni bæjarfulltrúa Einars Jóhannesar Guðnasonar um umræður um Gunnarshólma

Frá bæjarfulltrúa Miðflokksins, dags. 27.10.2026, ósk um umræðu í bæjarráði um fyrirhugaða uppbyggingu í Gunnarshólma og Geirlandi.

Lagt fram, umræður.

Erindi frá bæjarfulltrúum

20

Tillaga bæjarfulltrúa Einars Jóhannesar Guðnasonar um áramótabrennu í Kópavogi

Frá bæjarfulltrúa Miðflokksins, dags. 27.10.2026, lögð fram tillaga um áramótabrennu í Kópavogi.

Bæjarráð vísar erindinu til umsagnar sviðsstjóra umhverfissviðs.