Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Tillaga bæjarfulltrúa Eydísar Ingu Valsdóttur og varabæjarfulltrúa Orra Thors Eggertssonar vegna Kópavogslækjar.

Málsnúmer: 2609474

Ferill máls

01

Skipulags- og umhverfisráð - 37. fundur

Lögð fram að nýju tillaga bæjarfulltrúa Eydísar Ingu Valsdóttur og varabæjarfulltrúa Orra Thors Eggertssonar um forgangsröðun aðgerða vegna hreinsunar Kópavogslækjar. Á fundi skipulags- og umhverfisráðs þann 21. september 2026 var erindinu vísað til umsagnar verkefnastjóra umhverfismála. Einnig er lögð fram umsögn verkefnastjóra umhverfismála dags. 14. október 2026.

Karen Jónasdóttir, verkefnastjóri umhverfismála, tók sæti á fundinum undir þessum lið.

Lagt fram.

Bókun:

„Fulltrúar Samfylkingarinnar telja svör umhverfissviðs ófullnægjandi.

Svörin frá umhverfissviði vísa til fyrra svars og til LIFE Icewater verkefnisins, sem sagt er vera „í sjálfu sér aðgerðaráætlun“ bæjarins. Þó að verkefnið hafi verið kynnt í heild sinni eru aðgerða- og tímaáætlanir þess í Kópavogi enn óljósar. Skipulags - og umhverfisráð náði þverpólitískri samstöðu um mikilvægi þessa verkefnisins á síðasta kjörtímabili og því er brýnt að ráðið sé upplýst reglulega um stöðu mála. Hreinsun lækjarins er eitt af lykilatriðum hvað varðar framtíðarskipulag Kópavogsdalsins. Þá vekur athygli að í svörum umhverfissviðs er í engu vikið að lið 3 tillögunnar, um merkingar meðfram Kópavogslæk sem vara við mengun hans. Fulltrúar Samfylkingarinnar telja merkingar vera einfalda og ódýra aðgerð sem varðar öryggi bæjarbúa og þarf ekki að bíða niðurstaðna frekari rannsókna. Á meðan ástand lækjarins er eins og raun ber vitni eiga bæjarbúar rétt á að vita af því.“

Eydís Inga Valsdóttir og Hákon Gunnarsson

Bókun:

„Meirihlutinn telur mikilvægt að halda áfram markvissri vinnu við úrbætur á Kópavogslæk og ljúka þeim aðgerðum sem þegar eru hafnar. Eins og fram hefur komið standa yfir fjölþættar aðgerðir sem miða að því að bæta vatnsgæði og draga úr mengun í Kópavogslæk. Sú vinna hófst á síðasta kjörtímabili í samstarfi við LIFE Icewater-verkefnið.

Verkefnin voru kynnt fyrir ráðinu á síðasta fundi þess, 5. október sl. Þar kom fram að m.a. standi yfir vöktun og mælingar auk ýmissa aðgerða sem miða að því að bæta vatnsgæði lækjarins.

Meirihlutinn tekur undir mikilvægi þess að ráðið verði upplýst reglulega um framvindu verkefnisins.“

Hjördís Ýr Johnson, Andri Steinn Hilmarsson, Árnína Steinunn Kristjánsdóttir, Guðmundur Jóhann Jónsson og Orri Vignir Hlöðversson.

Fundarhlé hófst kl. 17:16, fundi fram haldið kl. 17:47.

02

Skipulags- og umhverfisráð - 35. fundur

Lögð fram tillaga bæjarfulltrúa Eydísar Ingu Valsdóttur og varabæjarfulltrúa Orra Thors Eggertssonar um forgangsröðun aðgerða vegna hreinsunar Kópavogslækjar.

Karen Jónasdóttir, verkefnastjóri umhverfismála, tók sæti á fundinum undir þessum lið.

Vísað til umsagnar verkefnastjóra umhverfismála.