Skipulags- og umhverfisráð - 37. fundur
í bæjarstjórnarsal, Hábraut 2
Dagskrá fundar
01
Bæjarstjórn - 1346. fundur frá 13.10.2026
Skipulags- og umhverfisráð - 35. fundur frá 21.09.2026
26092155 - Silfursmári 1-7. Breytt aðalskipulag. Skipulags- og matslýsing.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulags- og umhverfisráðs með 7 atkvæðum gegn atkvæðum Einars Jóhannesar Guðnasonar, Jónasar Más Torfasonar og Eydísar Ingu Valsdóttur og hjásetu Maríu Ellenar Steingrímsdóttur.
26092156 - Silfursmári 1-7. Breytt deiliskipulag. Skipulags- og matslýsing.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulags- og umhverfisráðs með 7 atkvæðum gegn atkvæðum Einars Jóhannesar Guðnasonar, Jónasar Más Torfasonar og Eydísar Ingu Valsdóttur og hjásetu Maríu Ellenar Steingrímsdóttur.
26043172 - Dalvegur 1. Breyting á aðal- og deiliskipulagi.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulags- og umhverfisráðs með 11 atkvæðum.
Skipulags- og umhverfisráð - 36. fundur frá 05.10.2026
Fundargerð í átta liðum.
Lagt fram.
02
Kópavogshöfn. Deiliskipulag.
Lagt fram erindi skipulagsfulltrúa dags. 15. október 2026 þar sem óskað er eftir heimild skipulags- og umhverfisráðs til að hefja vinnu við gerð deiliskipulags fyrir Kópavogshöfn.
03
Dalvegur 30 og 30A. Breytt deiliskipulag.
Lögð fram að nýju umsókn Andra Klausen arkitekts dags. 26. maí 2026 f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 30 og 30A við Dalveg um breytingu á deiliskipulagi. Í breytingunni felst fjölgun tenginga lóðarinnar við Dalveg. Fyrirhuguð er ný hægri handar inn-/útkeyrsla á Dalveg norðan við byggingarreit nr. 30A. Einnig er gert ráð breyttu fyrirkomulagi bílastæða ofanjarðar og breytingu á göngu/hjólatengingum innan lóðarinnar. Á fundi skipulags- og umhverfisraðs þann 15. júní 2026 var erindinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 14. október 2026 ásamt minnisblaði frá VSÓ Ráðgjöf dags. 22. september 2026 og uppfærðum uppdrætti dags. 25 maí 2026 með breytingum dags. 14. október 2026
04
Dofrakór 1. Breytt deiliskipulag.
Lögð fram að nýju að lokinni grenndarkynningu umsókn lóðarhafa lóðarinnar nr. 1 við Dofrakór dags. 9. júlí 2026 um breytingu á deiliskipulagi. Fyrri umsókn um breytingu á deiliskipulagi dags. 27. febrúar 2026 var synjað af skipulags- og umhverfisráð og var afgreiðslan staðfest á fundi bæjarstjórnar 23. júní 2026. Á fundi skipulags- og umhverfisráðs þann 7. september 2026 var beiðni um endurupptöku máls lögð fram og var samþykkt að grenndarkynna uppfærða tillögu Jens Arnars Árnasonar dags. 9. júlí 2026 f.h. lóðarhafa að breytingu á deiliskipulagi lóðarinnar. Í tillögunni felst að byggingarreitur á austurhluta núverandi íbúðarhúss stækkar og heimiluð verði viðbygging á einni hæð með þaksvölum, allt að 59,5 m² að flatarmáli, með tengingu við núverandi íbúð. Gert er ráð fyrir nýrri útidyrahurð á efri hæð núverandi húss með tengingu út á þaksvalir. Þá er sótt um að lóðin verði stækkuð um 78 m² til austurs inn á bæjarland og að felld verði úr gildi áður samþykkt deiliskipulagsbreyting frá 3. apríl 2008 sem heimilaði stækkun byggingarreits til norðausturs fyrir garðskýli á einni hæð. Uppdrættir dags. 9. júlí 2026. Tillagan var grenndarkynnt frá 10. september 2026 til 11. október 2026. Engar athugasemdir bárust.
05
Framkvæmd við gatnamót Nýbýlavegar, Ástúns og Þverbrekku
Vegagerðin og umhverfissvið Kópavogs sækja um framkvæmdaleyfi, dags. 1. október 2026, vegna endurbóta á gatnamótum Nýbýlavegar, Ástúns og Þverbrekku í samræmi við framlögð gögn. Framkvæmdir munu hefjast um leið og leyfi fæst og taka um það bil 3 mánuði eða eftir tíðarfari. Ekki verður lokað fyrir umferð um gatnamótin á framkvæmdatíma en vænta má einhverja tímabundinna tafa. Í framkvæmdinni felst endurgerð núverandi gatnamóta þar sem beygjuvasar og framhjáhlaup verða aflögð, ný umferðarljós sett upp og aðstaða gangandi og hjólandi vegfarenda bætt. Lagður verður nýr göngustígur að gatnamótunum og gönguþveranir styttar til að auka öryggi allra vegfarenda. Á fundi skipulags- og umhverfisráðs þann 5. október 2026 var afgreiðslu frestað. Einnig er lagt fram minnisblað VSÓ dags. 16. október 2026 og umsögn Lögreglunnar á Höfuðborgarsvæðinu dags. 16. október 2026.
06
Roðahvarf 10-32. Fyrirspurn.
Lögð fram fyrirspurn Hjalta Brynjarssonar arkitekts dags. 1. október 2026 f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 10-32 við Roðahvarf um fjölgun íbúða úr 73 í 97. Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 13. október 2026 var fyrirspurninni vísað til skipulags- og umhverfisráðs. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 16. október 2026.
07
Hallahvarf 25-33. Fyrirspurn.
Lögð fram fyrirspurn Hjalta Brynjarssonar arkitekts dags. 7. október 2026 f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 25-33 við Hallahvarf um breytingu á deiliskipulagi. Í breytingunni felst fjölgun íbúða um þrjár, úr 33 í 36. Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 13. október 2026 var fyrirspurninni vísað til skipulags- og umhverfisráðs. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 16. október 2026.
08
Tillaga bæjarfulltrúa Eydísar Ingu Valsdóttur og varabæjarfulltrúa Orra Thors Eggertssonar vegna Kópavogslækjar.
Lögð fram að nýju tillaga bæjarfulltrúa Eydísar Ingu Valsdóttur og varabæjarfulltrúa Orra Thors Eggertssonar um forgangsröðun aðgerða vegna hreinsunar Kópavogslækjar. Á fundi skipulags- og umhverfisráðs þann 21. september 2026 var erindinu vísað til umsagnar verkefnastjóra umhverfismála. Einnig er lögð fram umsögn verkefnastjóra umhverfismála dags. 14. október 2026.