Sex mánaða uppgjör Kópavogsbæjar 2026
Málsnúmer: 2609568
Ferill máls
01
Bæjarráð - 3264. fundur
Lagt fram sex mánaða uppgjör Kópavogsbæjar fyrir árið 2026.
Lagt fram.
Kynning og umræður.
Gestir viku af fundi kl. 8:55
Fundarhlé hófst kl. 9:15, fundi fram haldið kl. 11:24
Bókun:
"Árshlutauppgjör Kópavogsbæjar sýnir að grunnrekstur sveitarfélagsins sé traustur. Rekstur grunnþjónustu er betri en áætlanir gerðu ráð fyrir og veltufé frá rekstri nam 2,5 milljörðum króna á tímabilinu. Áhersla hefur verið lögð á að verja ráðstöfunartekjur heimilanna, m.a. með lágum fasteignagjöldum og hóflegum gjaldskrárhækkunum á barnafjölskyldur, sem Kópavogsbær takmarkaði við 2,5% á árinu m.a. í viðleitni til þess að stuðla að lægri verðbólgu og friði á vinnumarkaði.
Áhrif krefjandi efnahagsaðstæðna, hárra vaxta og verðbólgu eru hins vegar umtalsverð og hafa þung áhrif á reiknaða fjármagnsliði og þar með rekstrarniðurstöðu tímabilsins."
Ásdís Kristjánsdóttir
Andri Steinn Hilmarsson
Orri Hlöðversson
Hjördís Ýr Johnson
Bókun:
"Fulltrúar minnihlutans fagna því að meirihlutinn sé nú að sýna viðleitni til að verja fjárhag barnafjölskyldna, en á síðasta kjörtímabili hækkuðu gjöld á barnafjölskyldur mikið og auk þess voru innleiddar hækkanir á leikskólagjöldum fjórum sinnum á ári tengdar launavísitölu. Mikilvægt er að sveitarfélagið leggi sitt af mörkum í baráttunni við vexti og verðbólgu.
Undirritaðir fulltrúar hafa áhyggjur af langtímasjálfbærni rekstrar Kópavogsbæjar. Meirihlutinn talar um að grunnþjónusta standi vel en vísar svo til afkomu samstæðu A- og B-hluta til að draga upp fegraða mynd. Veltufé frá rekstri A-hluta er 1,9 milljarðar en þegar tekið hefur verið tillit til þróunar skammtímaskulda og fjárfestinga dugir veltufé ekki til og þarf bærinn áfram að treysta á lóðaúthlutanir og lántöku til að standa við skuldbindingar sínar, en tekið var 2,5 milljarða króna lán í byrjun árs. Er það sérstaklega varhugavert að bærinn treysti jafn mikið og raun ber vitni á byggingarréttargjöld og lántöku, sérstaklega í ljósi þeirra vandkvæða sem hafa verið uppi með síðustu lóðaúthlutanir á Vatnsenda, þar sem löng bið hefur verið eftir að framkvæmdir geti hafist og lóðarhafar hafa í auknum mæli skilað lóðum vegna þessa og fengið byggingarréttargjöld endurgreidd. Tekið skal fram að afkoma A-hluta væri neikvæð um 772 milljónir ef ekki kæmi til lóðatekna, sem voru 550 milljónir.
Með þetta að leiðarljósi er mikilvægt að bæjarstjórn sýni aðhald í komandi fjárhagsáætlunargerð og haldi lántöku í lágmarki."
Jónas Már Torfason
Einar Jóhannes Guðnason
María Ellen Steingrímsdóttir
Bókun:
"Fullyrðingar um að rekstur bæjarins standi eða falli með lóðaúthlutunum standast ekki skoðun. Sterkt veltufé frá rekstri og betri afkoma grunnrekstrar en áætlað var eru staðreyndir sem mikilvægt er að halda til haga þegar fjárhagsstaðan er metin. Tilraunir til að plokka út einstaka tekjur án þess að útgjöld sem falla til við uppbyggingu hverfa fari út á móti eru ekki fallnar til þess að draga upp rétta mynd af fjárhagsstöðunni. Minnihlutinn fellur í sama pytt þegar tekinn er hluti af gjaldskrárbreytingum leikskólanna án þess að ræða þann hluta gjaldanna sem féllu niður á sama tíma. Þar er dregin upp mynd sem er beinlínis röng og villandi.
Þá eru heildar skuldir og skuldbindingar sveitarfélagsins að lækka að raunvirði. Kópavogsbær er ekki að safna skuldum heldur eru skuldir sveitarfélagsins að lækka. Þá steig Kópavogsbær fram með góðu fordæmi í vor og mikilvægt er að önnur sveitarfélög, ríki og opinberar stofnanir stígi fram með áþekkum hætti. Mikið er í húfi fyrir heimilin að ná tökum á verðbólgunni og vöxtum.
Meirihlutinn tekur að öðru leyti undir að áfram þurfi að gæta aðhalds og fagnar þeim tóni sem kemur frá minnihlutanum í aðdraganda fjárhagsáætlunarvinnunnar framundan."
Ásdís Kristjánsdóttir
Andri Steinn Hilmarsson
Orri Hlöðversson
Hjördís Ýr Johnson
Bókun:
"Minnihlutinn heldur því hvergi fram að rekstur bæjarins standi í ljósum logum eða að hann standi og falli með einstaka liðum. Hins vegar eru áskoranir fram undan og hlýtur að vera rými til að ræða staðreyndir um rekstur bæjarins og möguleika til úrbóta. Bæjarstjórn þarf að horfast í augu við að land sem tækt er til úthlutunar innan hefðbundins þéttbýlis Kópavogsbæjar er af skornum skammti og fyrirsjáanlegt að tekjur af lóðaúthlutunum muni í náinni framtíð dragast verulega saman úr því sem verið hefur síðastliðin ár. Eftirfarandi eru staðreyndir sem dregnar eru beint upp úr árshlutauppgjöri og verður opið öllum til skoðunar og staðfestingar:
- Án tekna af lóðaúthlutunum (550 m.kr.), sem aldrei eru teknar með í áætlunargerð, er rekstrarniðurstaða A-hluta bæjarins neikvæð um 772 milljónir króna;
- Án lántöku upp á 2,5 milljarða og lóðatekna upp á 550 milljónir króna er lækkun á handbæru fé meiri en 2,5 milljarðar; og
- Veltufjárhlutfall bæjarins, sem mælir möguleika bæjarins til að standa í skilum á skammtímaskuldbindingum án lántöku, er 0,52 sem þýðir að skammtímaskuldir eru um tvöfalt hærri en eignir bæjarins sem þeim geta mætt.
Hvað varðar leikskólagjöld er rétt að halda því til haga að foreldrar tæplega þriðjungs leikskólabarna njóta niðurfellingar leikskólagjalda. Restin, um 70%, greiðir hæstu leikskólagjöld á landinu sem hækkuðu um 62% á síðasta kjörtímabili og hefur það mikil áhrif á þau heimili."
Jónas Már Torfason
Einar Jóhannes Guðnason
María Ellen Steingrímsdóttir
Bókun:
"Meirihlutinn eltir ekki frekar ólar við útlistanir minnihlutans á árshlutauppgjöri Kópavogsbæjar en vísar til fyrri bókana þar sem kemur fram að það sé til þess fallið að draga fram ranga og villandi mynd af rekstri sveitarfélagsins að telja frá tekjur vegna nýrra hverfa án þess að horfa til þeirra útgjalda sem falla til á móti. Sveitarfélagið reiðir sig ekki á lóðaúthlutanir og er sterkt veltufé frá rekstri vitnisburður þar um, sem og lækkun skulda að raunvirði.
Þá bendir meirihlutinn á að leikskólamál eru óvíða í betra horfi á landinu en í Kópavogi eftir innleiðingu á Kópavogsmódelinu á síðasta kjörtímabili."
Ásdís Kristjánsdóttir
Andri Steinn Hilmarsson
Orri Hlöðversson
Hjördís Ýr Johnson
Bókun:
"Minnihlutinn er ekki að biðja meirihlutann um að útlista neitt og hvetur áhugasama að kynna sér ársreikning bæjarins þar sem allt sem minnihlutinn hefur bent á kemur fram.
Minnihlutinn segir hvergi að leikskólamálin séu í ólestri en fagnar að meirihlutinn sé hættur að afneita því að leikskólagjöldin séu þau hæstu á landinu."
Jónas Már Torfason
Einar Jóhannes Guðnason
María Ellen Steingrímsdóttir
Bókun:
"Leikskólagjöld eru sömuleiðis þau lægstu á landinu fyrir börn í 30 tíma vistun eða skemur, sem telur um þriðjung leikskólabarna í Kópavogi. Að sama skapi voru teknir upp tekjutengdir afslættir fyrir foreldra barna með lengri vistun. Markmiðið með Kópavogsmódelinu var að skapa stöðugleika á leikskólunum og bregðast við 212 lokunardögum sem voru veturinn fyrir innleiðingu módelsins. Sá stöðugleiki hefur náðst, leikskólarnir eru betur mannaðir og inntökualdur barna hefur lækkað gríðarlega frá því að breytingarnar voru gerðar."
Ásdís Kristjánsdóttir
Andri Steinn Hilmarsson
Orri Hlöðversson
Hjördís Ýr Johnson