Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Bæjarráð - 3264. fundur

í bæjarstjórnarsal, Hábraut 2

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Andri Steinn Hilmarsson - formaður
  • Hjördís Ýr Johnson - aðalfulltrúi
  • Orri Vignir Hlöðversson - varaformaður
  • Jónas Már Torfason - aðalfulltrúi
  • Einar Jóhannes Guðnason - aðalfulltrúi
  • María Ellen Steingrímsdóttir - áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Ásdís Kristjánsdóttir - bæjarstjóri
  • Pálmi Þór Másson - bæjarritari

Ritari

  • Pálmi Þór Másson

Dagskrá fundar

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

01

Sex mánaða uppgjör Kópavogsbæjar 2026

Lagt fram sex mánaða uppgjör Kópavogsbæjar fyrir árið 2026.

Lagt fram.

Kynning og umræður.

Gestir viku af fundi kl. 8:55

Fundarhlé hófst kl. 9:15, fundi fram haldið kl. 11:24


Bókun:

"Árshlutauppgjör Kópavogsbæjar sýnir að grunnrekstur sveitarfélagsins sé traustur. Rekstur grunnþjónustu er betri en áætlanir gerðu ráð fyrir og veltufé frá rekstri nam 2,5 milljörðum króna á tímabilinu. Áhersla hefur verið lögð á að verja ráðstöfunartekjur heimilanna, m.a. með lágum fasteignagjöldum og hóflegum gjaldskrárhækkunum á barnafjölskyldur, sem Kópavogsbær takmarkaði við 2,5% á árinu m.a. í viðleitni til þess að stuðla að lægri verðbólgu og friði á vinnumarkaði.

Áhrif krefjandi efnahagsaðstæðna, hárra vaxta og verðbólgu eru hins vegar umtalsverð og hafa þung áhrif á reiknaða fjármagnsliði og þar með rekstrarniðurstöðu tímabilsins."

Ásdís Kristjánsdóttir

Andri Steinn Hilmarsson

Orri Hlöðversson

Hjördís Ýr Johnson


Bókun:

"Fulltrúar minnihlutans fagna því að meirihlutinn sé nú að sýna viðleitni til að verja fjárhag barnafjölskyldna, en á síðasta kjörtímabili hækkuðu gjöld á barnafjölskyldur mikið og auk þess voru innleiddar hækkanir á leikskólagjöldum fjórum sinnum á ári tengdar launavísitölu. Mikilvægt er að sveitarfélagið leggi sitt af mörkum í baráttunni við vexti og verðbólgu.

Undirritaðir fulltrúar hafa áhyggjur af langtímasjálfbærni rekstrar Kópavogsbæjar. Meirihlutinn talar um að grunnþjónusta standi vel en vísar svo til afkomu samstæðu A- og B-hluta til að draga upp fegraða mynd. Veltufé frá rekstri A-hluta er 1,9 milljarðar en þegar tekið hefur verið tillit til þróunar skammtímaskulda og fjárfestinga dugir veltufé ekki til og þarf bærinn áfram að treysta á lóðaúthlutanir og lántöku til að standa við skuldbindingar sínar, en tekið var 2,5 milljarða króna lán í byrjun árs. Er það sérstaklega varhugavert að bærinn treysti jafn mikið og raun ber vitni á byggingarréttargjöld og lántöku, sérstaklega í ljósi þeirra vandkvæða sem hafa verið uppi með síðustu lóðaúthlutanir á Vatnsenda, þar sem löng bið hefur verið eftir að framkvæmdir geti hafist og lóðarhafar hafa í auknum mæli skilað lóðum vegna þessa og fengið byggingarréttargjöld endurgreidd. Tekið skal fram að afkoma A-hluta væri neikvæð um 772 milljónir ef ekki kæmi til lóðatekna, sem voru 550 milljónir.

Með þetta að leiðarljósi er mikilvægt að bæjarstjórn sýni aðhald í komandi fjárhagsáætlunargerð og haldi lántöku í lágmarki."



Jónas Már Torfason

Einar Jóhannes Guðnason

María Ellen Steingrímsdóttir


Bókun:

"Fullyrðingar um að rekstur bæjarins standi eða falli með lóðaúthlutunum standast ekki skoðun. Sterkt veltufé frá rekstri og betri afkoma grunnrekstrar en áætlað var eru staðreyndir sem mikilvægt er að halda til haga þegar fjárhagsstaðan er metin. Tilraunir til að plokka út einstaka tekjur án þess að útgjöld sem falla til við uppbyggingu hverfa fari út á móti eru ekki fallnar til þess að draga upp rétta mynd af fjárhagsstöðunni. Minnihlutinn fellur í sama pytt þegar tekinn er hluti af gjaldskrárbreytingum leikskólanna án þess að ræða þann hluta gjaldanna sem féllu niður á sama tíma. Þar er dregin upp mynd sem er beinlínis röng og villandi.

Þá eru heildar skuldir og skuldbindingar sveitarfélagsins að lækka að raunvirði. Kópavogsbær er ekki að safna skuldum heldur eru skuldir sveitarfélagsins að lækka. Þá steig Kópavogsbær fram með góðu fordæmi í vor og mikilvægt er að önnur sveitarfélög, ríki og opinberar stofnanir stígi fram með áþekkum hætti. Mikið er í húfi fyrir heimilin að ná tökum á verðbólgunni og vöxtum.

Meirihlutinn tekur að öðru leyti undir að áfram þurfi að gæta aðhalds og fagnar þeim tóni sem kemur frá minnihlutanum í aðdraganda fjárhagsáætlunarvinnunnar framundan."

Ásdís Kristjánsdóttir

Andri Steinn Hilmarsson

Orri Hlöðversson

Hjördís Ýr Johnson


Bókun:

"Minnihlutinn heldur því hvergi fram að rekstur bæjarins standi í ljósum logum eða að hann standi og falli með einstaka liðum. Hins vegar eru áskoranir fram undan og hlýtur að vera rými til að ræða staðreyndir um rekstur bæjarins og möguleika til úrbóta. Bæjarstjórn þarf að horfast í augu við að land sem tækt er til úthlutunar innan hefðbundins þéttbýlis Kópavogsbæjar er af skornum skammti og fyrirsjáanlegt að tekjur af lóðaúthlutunum muni í náinni framtíð dragast verulega saman úr því sem verið hefur síðastliðin ár. Eftirfarandi eru staðreyndir sem dregnar eru beint upp úr árshlutauppgjöri og verður opið öllum til skoðunar og staðfestingar:

- Án tekna af lóðaúthlutunum (550 m.kr.), sem aldrei eru teknar með í áætlunargerð, er rekstrarniðurstaða A-hluta bæjarins neikvæð um 772 milljónir króna;

- Án lántöku upp á 2,5 milljarða og lóðatekna upp á 550 milljónir króna er lækkun á handbæru fé meiri en 2,5 milljarðar; og

- Veltufjárhlutfall bæjarins, sem mælir möguleika bæjarins til að standa í skilum á skammtímaskuldbindingum án lántöku, er 0,52 sem þýðir að skammtímaskuldir eru um tvöfalt hærri en eignir bæjarins sem þeim geta mætt.

Hvað varðar leikskólagjöld er rétt að halda því til haga að foreldrar tæplega þriðjungs leikskólabarna njóta niðurfellingar leikskólagjalda. Restin, um 70%, greiðir hæstu leikskólagjöld á landinu sem hækkuðu um 62% á síðasta kjörtímabili og hefur það mikil áhrif á þau heimili."

Jónas Már Torfason

Einar Jóhannes Guðnason

María Ellen Steingrímsdóttir


Bókun:

"Meirihlutinn eltir ekki frekar ólar við útlistanir minnihlutans á árshlutauppgjöri Kópavogsbæjar en vísar til fyrri bókana þar sem kemur fram að það sé til þess fallið að draga fram ranga og villandi mynd af rekstri sveitarfélagsins að telja frá tekjur vegna nýrra hverfa án þess að horfa til þeirra útgjalda sem falla til á móti. Sveitarfélagið reiðir sig ekki á lóðaúthlutanir og er sterkt veltufé frá rekstri vitnisburður þar um, sem og lækkun skulda að raunvirði.

Þá bendir meirihlutinn á að leikskólamál eru óvíða í betra horfi á landinu en í Kópavogi eftir innleiðingu á Kópavogsmódelinu á síðasta kjörtímabili."

Ásdís Kristjánsdóttir

Andri Steinn Hilmarsson

Orri Hlöðversson

Hjördís Ýr Johnson


Bókun:

"Minnihlutinn er ekki að biðja meirihlutann um að útlista neitt og hvetur áhugasama að kynna sér ársreikning bæjarins þar sem allt sem minnihlutinn hefur bent á kemur fram.

Minnihlutinn segir hvergi að leikskólamálin séu í ólestri en fagnar að meirihlutinn sé hættur að afneita því að leikskólagjöldin séu þau hæstu á landinu."

Jónas Már Torfason

Einar Jóhannes Guðnason

María Ellen Steingrímsdóttir


Bókun:

"Leikskólagjöld eru sömuleiðis þau lægstu á landinu fyrir börn í 30 tíma vistun eða skemur, sem telur um þriðjung leikskólabarna í Kópavogi. Að sama skapi voru teknir upp tekjutengdir afslættir fyrir foreldra barna með lengri vistun. Markmiðið með Kópavogsmódelinu var að skapa stöðugleika á leikskólunum og bregðast við 212 lokunardögum sem voru veturinn fyrir innleiðingu módelsins. Sá stöðugleiki hefur náðst, leikskólarnir eru betur mannaðir og inntökualdur barna hefur lækkað gríðarlega frá því að breytingarnar voru gerðar."

Ásdís Kristjánsdóttir

Andri Steinn Hilmarsson

Orri Hlöðversson

Hjördís Ýr Johnson

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

02

Tillaga bæjarfulltrúa Jónasar Más Torfasonar um skipun samráðsvettvangs

Frá bæjarstjóra, lögð fram umsögn um tillögu að skipun samráðsvettvangs um framkvæmdir í miðbæ Kópavogs.

Lagt fram.

Umræður.

Bæjarráð óskar eftir kynningu frá samskiptahópnum á næsta fund bæjarráðs.

Ýmis erindi

03

Álit sveitarstjórna á vindorkuhugmyndum sem er til umfjöllunar í 6. áfanga rammaáætlunar - kynning

Kynning frá fulltrúa faghóps 3 í rammaáætlun um áhrif virkjunarhugmynda.

Kynning og umræður.

Gestur vék af fundi kl. 9:13

Ýmis erindi

04

Notendaráð sveitarfélaga

Frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, dags. 08.09.2026, lagt fram erindi varðandi skipun í lögbundin notendaráð sveitarfélaga.

Lagt fram.

Fundargerðir nefnda

05

Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 451. fundur frá 28.08.2026

Fundargerð í 21 lið.

Vísað til staðfestingar bæjarstjórnar.

Fundargerðir nefnda

06

Innkaupanefnd - 19. fundur frá 07.09.2026

Fundargerð í þremur liðum.

Lagt fram.

Fundargerðir nefnda

07

Skipulags- og umhverfisráð - 34. fundur frá 07.09.2026

Fundargerð í 12 liðum.

Lagt fram.


7.10 - 26051989 - Sunnubraut 29. Byggingarleyfisumsókn.

Lögð fram byggingarleyfisumsókn Helgu Guðrúnar Vilmundardóttur arkitekts f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 29 við Sunnubraut. Sótt er um að 29,9 m² ósamþykkt bátaskýli verði breytt í íbúðarrými sem hluti af núverandi húsnæði. Ytra byrði hússins breytist, gluggum fjölgar, núverandi gluggar stækka og hurðum bætt við. Hæð hússins og lóðarmörk haldast óbreytt. Byggingarmagn eykst úr 356,2 m² í 386,1 m². Nýtingarhlutfall hækkar úr 0,62 í 0,67. Uppdrættir dags. 5. febrúar 2026, uppfærðir 26. maí 2026. Byggingarleyfisumsóknin var grenndarkynnt frá 16. júní til 17. júlí 2026, athugasemd barst. Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 25. ágúst 2026 var erindinu vísað til skipulags- og umhverfisráðs. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 26. ágúst 2026.

Samþykkt með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 26. ágúst 2026. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.

Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar



7.8 - 26061073 - Dimmuhvarf 9. Breytt deiliskipulag.

Lögð fram umsókn Guðmundar Gunnlaugssonar arkitekts dags. 9. júní 2026 f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 9 við Dimmuhvarf um breytingu á deiliskipulagi. Í breytingunni felst að lóðinni er skipt í tvær lóðir fyrir parhús í stað einbýlishúss, tilfærsla á byggingarreit og verður nýtingarhlutfallið 0,55. Þrjú bílastæði verða á hvorri lóð. Uppdrættir dags. 9. júní 2026, uppfærðir 7. júlí 2026 og 1. september 2026. Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 10. ágúst 2026 var erindinu vísað til skipulags- og umhverfisráðs. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 2. september 2026.
Ester Anna Ármannsdóttir verkefnastjóri tók sæti á fundinum undir þessum lið.

Samþykkt að framlögð umsókn um breytingu á deiliskipulagi verði auglýst með vísan til 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.

Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar



7.9 - 26011426 - Vatnsendablettur 1B. Breyting á aðal- og deiliskipulagi.

Lögð fram að nýju umsókn Kristins Ragnarssonar arkitekts dags. 16. janúar 2026 f.h. lóðarhafa lóðanna nr. 1B og 510 við Vatnsendablett og landeiganda um breytingu á aðal- og deiliskipulagi. Í breytingunni felst breytt landnotkun á opnu svæði skv. aðalskipulagi sem afmarkast af Elliðavatni til norðurs, lóðinni Kríunes til austurs, lóðunum við Vatnsendablett 1A og 716 til 718 til suðurs og lóðunum við Vatnsendablett 710 til 712 til vesturs í íbúðabyggð. Gert er ráð fyrir 18 nýjum einbýlishúsalóðum á svæðinu. Umsókninni fylgir greinargerð dags. 30. desember 2025, uppdráttur og skýringarmyndir dags. 11. desember 2024, hönnunaráætlun ódags. og framkvæmdaáætlun ódags. Á fundi skipulags- og umhverfisráðs þann 17. ágúst 2026 var afgreiðslu málsins frestað. Einnig er kögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 13. ágúst 2026 og erindi lóðarhafa dags. 24. ágúst 2026.

Fundarhlé hófst kl. 17:19 , fundi fram haldið kl. 17:58.

Synjað með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 13. ágúst 2026 með þremur atkvæðum Hjördísar Ýrar Johnson, Árnínu Steinunnar Kristjánsdóttur og Guðmundar Jóhanns Jónssonar. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Andri Steinn Hilmarsson, Kristinn Dagur Gissurarson, Orri Thor Eggertsson og Eydís Inga Valsdóttir sátu hjá við afgreiðslu málsins.

Bókun:
„Framlögð tillaga er umtalsverð þétting á svæði sem er skilgreint í aðalskipulagi sem opið svæði og kallar því á heildarskoðun á svæðinu. Þó er nauðsynlegt koma gatnagerð og tengdum innviðum í betra horf á svæðinu. Undirrituð leggja áherslu á mikilvægi þess að Kópavogsbær haldi áfram samtali við landeigenda hvað varðar gatnagerð og nauðsynlegu viðhaldi á tengdum innviðum. Telja undirrituð einnig ástæðu til að skoða möguleikann á að hraða aðgerðum fyrir veturinn sem tryggja umferðaröryggi á svæðinu, s.s. götulýsingu“
Árnína Steinunn Kristjánsdóttir, Guðmundur Jóhann Jónsson og Hjördís Ýr Johnson.

Bókun:
„Miðflokkurinn harmar að umsókn landeiganda og lóðarhafa á Vatnsendabletti sé hafnað. Sú niðurstaða skýtur skökku við stefnu Sjálfstæðisflokksins, sem skilgreinir eignarrétt sem grundvallarmannréttindi sem beri að styrkja og vernda. Miðflokkurinn telur að eðlilegra hefði verið að leyfa málinu að fara áfram í skipulagsferli, auglýsa tillöguna, kalla eftir umsögnum og meta umhverfisáhrif hennar eftir því sem við á. Sérstaklega er óviðunandi að höfnuninni fylgi hvorki tillaga um næstu skref né tímasett áætlun um þá heildstæðu stefnumótun sem vísað er til. Málið hverfur ekki við höfnun og sú staða sem íbúar búa við hverfur ekki heldur.
Fyrir liggur að gatnagerð, viðhaldi gatna og umferðaröryggi á svæðinu er ábótavant og að unnið hefur verið að lausnum í samráði við Kópavogsbæ. Þá hefur þegar farið fram umfangsmikil vinna við hönnun gatna, fráveitu og annarra innviða, auk þess hafa svo gott sem allir íbúar á svæðinu lýst stuðningi við fyrirhugaðar framkvæmdir. Miðflokkurinn telur því að bæjaryfirvöld verði nú að leggja fram raunhæf næstu skref og tímasetta leið til lausnar. Það er ekki boðlegt að hafna fyrirliggjandi leið án þess að geta jafnframt sagt íbúum hvaða leið eigi þá að fara og hvenær raunhæf lausn muni liggja fyrir.“
Einar Jóhannes Guðnason

Bókun:
„Fulltrúar Samfylkingarinnar og Viðreisnar gera fyrirvara við ákvörðun meirihlutans um að hafna umsókn um breytingu á aðal- og deiliskipulagi á Vatnsendabletti 1B.
Málið hefur verið lengi til meðferðar og mikil vinna verið lögð í undirbúning þess, bæði af hálfu umsækjenda og Kópavogsbæjar. Ljóst er að umtalsverðum tíma og fjármunum hefur verið varið í vinnslu málsins áður en komist var að þeirri niðurstöðu að hafna umsókninni.
Þörf er á úrbótum á svæðinu, meðal annars hvað varðar gatnagerð, lýsingu, fráveitu og umferðaröryggi. Við gagnrýnum að málið hafi fengið að vera svo lengi í vinnslu án þess að skýr niðurstaða liggi fyrir eða fullreynt sé hvort unnt væri að ná ásættanlegri niðurstöðu í samtali við umsækjendur og íbúa svæðisins.
Vandaðri og markvissari málsmeðferð hefði getað komið í veg fyrir að svo miklum tíma og fjármunum yrði varið án niðurstöðu. Það er sérstaklega ámælisvert í ljósi þess að brýn úrlausnarefni á svæðinu, þar á meðal varðandi umferðaröryggi barna og uppbyggingu innviða, eru enn óleyst og ekki liggur fyrir hvenær ráðist verður í nauðsynlegar úrbætur.
Eydís Inga Valsdóttir, Orri Thor Eggertsson og Pétur Björgvin Sveinsson.

Bókun:
„Við ítrekum fyrri bókun að ráðist verði í aðgerðir til að tryggja umferðaröryggi fyrir íbúa á svæðinu og að farið verði í heildarendurskoðun á því.“
Árnína Steinunn Kristjánsdóttir , Guðmundur Jóhann Jónsson og Hjördís Ýr Johnson.

Fundarhlé hófst kl. 12:19, fundi fram haldið kl. 12:33.

Bæjarráð samþykkir með þremur atkvæðum, gegn atkvæðum Jónasar Más Torfasonar og Einar Jóhannesar Guðnasonar að vísa afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar.

Bókun:
"Þrátt fyrir að undirritaður hafi setið hjá í skipulags- og umhverfisráði við afgreiðslu málsins greiði ég atkvæði með því að málinu verði vísað áfram til bæjarstjórnar til þess að gefa kjörnum bæjarfulltrúum færi á að taka efnislega afstöðu til þess."

Andri Steinn Hilmarsson

Bókun:
"Undirritaður telur ekki að forsendur meirihlutans fyrir synjun séu í samræmi við gögn málsins og er því fylgjandi að vísa málinu aftur til meðferðar skipulags- og umhverfisráðs."

Jónas Már Torfason

Bókun:
"Undirritaður ítrekar fyrri bókun Miðflokksins úr skipulagsráði sem bendir á að það sé óboðlegt að hafna fyrirliggjandi leið án þess að geta jafnframt sagt íbúum með afgerandi hætti hvaða leið eigi þá að fara og hvenær sú vinna eigi að hefjast.

Öryggi barna á svæðinu, lýsing og aðstæður vega lagast ekki sjálfkrafa. Þó um einkaland sé að ræða og ábyrgð liggi hjá lóðarhöfum og landeiganda þá er fyrirliggjandi umsókn tillaga að lausn á því ástandi.

Ef litið er á atkvæðagreiðslu skipulagsráðs er ekki einu sinni meirihluti fyrir synjun, enda voru einungis 3 af 7 fulltrúum sem greiddu atkvæði með synjun.

Röksemdarfærsla meirihlutans gengur ekki upp og fer undirritaður því fram á að meirihlutinn útskýri þá sýn sem hann hefur á Vatnsendabletti."

Einar Jóhannes Guðnason


Fundargerðir nefnda

08

Fundargerð 1001. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 28.08.2026

Fundargerð 1001. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 28.08.2026.

Lagt fram.

Erindi frá bæjarfulltrúum

09

Tillaga bæjarfulltrúa minnihluta um fela forsætinefnd að vinna tillögu að verklagsreglum um upplýsingamiðlun, auglýsingar og notkun samfélagsmiðla

Lögð fram tillaga frá fulltrúum Miðflokks, Samfylkingar og Viðreisnar um að fela forsætisnefnd að vinna tillögu að verklagsreglum um upplýsingamiðlun, auglýsingar og notkun samfélagsmiðla.

Bæjarráð vísar erindinu til forsætisnefndar.