Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Innkaupanefnd - 21. fundur frá 12.10.2026

Málsnúmer: 2610007F

Ferill máls

01

Bæjarráð - 3268. fundur

Fundargerð í þremur liðum.

Lagt fram.

Gestir viku af fundi kl. 9:16.

Bókun:

"Það reynist Kópavogsbæ sífellt erfiðara að standa að útboðum sem baka bænum ekki vandræði. Undirritaður telur mikilvægt að farið verði í vinnu til þess að koma í veg fyrir þau vinnubrögð sem hafa opinberast í útboðsvinnunni er snýr að stúku HK og furðar sig á málsatvikum."

Einar Jóhannes Guðnason


Bókun:

"Undirritaður þakkar kynningu á stöðu útboðs á stúku HK. Líkt og undirritaður hefur áður sagt ber framkvæmdin merki um að ekki hafi verið vandað nægilega til verka og ítrekar enn á ný að pólitískur metnaður til að standa við loforð gefin í kosningabaráttu megi ekki koma niður á vönduðum vinnubrögðum. Líkt og í máli Barnaskóla Kársness, samanber fundarlið 1, er um gríðarlega stóra framkvæmd að ræða og er það áhyggjuefni hve illa bænum hefur tekist til við framkvæmd útboðsferla og stærri framkvæmda á vegum bæjarins. Líkt og ávallt er mikilvægt að farið verði í saumana á því hvað hefur farið úrskeiðis og lærdómur dreginn af því svo að svona eigi sér ekki stað á ný."

Jónas Már Torfason


Bókun:

"Það er ekki leyndarmál að meirihlutinn hefur pólitískan metnað til þess að klára stúkubyggingu fyrir HK en það hefur legið fyrir frá því að hverfaskiptingu starfssvæða íþróttafélaga bæjarins var komið á árið 2012 að ráðist yrði í byggingu stúku fyrir HK. Hér er því verið að standa við löngu gefið loforð.

Niðurstaða kærunefndar vegna innkaupaferlisins hefur ekkert með pólitískan metnað meirihlutans að gera heldur er fundið að því hvernig ákveðnum matsþáttum var háttað. Lögfræðingar bæjarins eru nú að fara yfir næstu skref varðandi innkaupaferlið en áfram verður unnið vel og örugglega að því að hefja framkvæmdir við stúkuna."

Andri Steinn Hilmarsson

Orri Vignir Hlöðversson

Ásdís Kristjánsdóttir

Hjördís Ýr Johnson