Bæjarráð - 3268. fundur
í bæjarstjórnarsal, Hábraut 2
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Andri Steinn Hilmarsson - formaður
- Hjördís Ýr Johnson - aðalfulltrúi
- Orri Vignir Hlöðversson - varaformaður
- Jónas Már Torfason - aðalfulltrúi
- Einar Jóhannes Guðnason - aðalfulltrúi
- María Ellen Steingrímsdóttir - áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Ásdís Kristjánsdóttir - bæjarstjóri
- Pálmi Þór Másson - bæjarritari
Ritari
- Pálmi Þór Másson
Dagskrá fundar
Kynning á stöðu máls.
Kynning og umræður.
Gestir véku af fundi kl. 8:46
Bókun:
"Undirritaður setur spurningamerki við upplýsingagjöf meirihlutans og bæjarins er varðar Barnaskóla Kársness til kjörinna fulltrúa. Misræmi í upplýsingagjöf milli deilda vekja ekki upp mikið traust og upplifir undirritaður ákveðna leyndarhyggju yfir staðreyndum málsins.
Starfsmenn bæjarins og meirihlutinn geta ekki falið sig á bakvið hagsmuni bæjarins sem ástæðu þess að kjörnir fulltrúar fái ekki aðgang að heildarmyndinni."
Einar Jóhannes Guðnason
Bókun:
"Bæjarfulltrúi Viðreisnar telur fullt tilefni til þess að farið verið í óháða úttekt á framkvæmdum við Barnaskóla Kársness án tafar, allt frá undirbúningi verkefnisins til verkloka.
Viðreisn hefur ítrekað gagnrýnt hvernig staðið hefur verið að þessu verkefni og kallað eftir því að málið verði skoðað ofan í kjölinn. Heildarkostnaður við framkvæmdina nemur nú rúmlega 8,7 milljörðum króna og fyrirhuguð krafa Kópavogsbæjar á hendur verktakanum er tæpir 3,9 milljarðar króna. Hér er um gríðarlega fjármuni að ræða og það þarf að fara yfir hvað fór úrskeiðis, hvers vegna og hvort hægt hefði verið að koma í veg fyrir það.
Nú þegar framkvæmdinni er nær lokið og kostnaðaruppgjör liggur að mestu fyrir verður ekki séð að ástæða sé til að bíða lengur með slíka úttekt. Gerðardómsmálið snýst um ábyrgð verktakans gagnvart Kópavogsbæ, en það er ekki síður mikilvægt að skoða hvernig bærinn sjálfur stóð að undirbúningi, ákvarðanatöku, eftirliti og stjórnun verkefnisins.
Bæjarbúar eiga rétt á svörum um hvernig svo fór að ein umfangsmesta framkvæmd Kópavogsbæjar endaði með þessum hætti. Það er ekki nóg að sækja rétt bæjarins gagnvart verktakanum. Bæjaryfirvöld þurfa líka að vera tilbúin að skoða eigin ákvarðanir og vinnubrögð. Það er mikilvægt að draga lærdóm af þessu máli og tryggja að sambærileg mistök endurtaki sig ekki."
María Ellen Steingrímsdóttir
Bókun:
"Undirritaður harmar þann gríðarlega kostnað sem fallið hefur á bæjarsjóð vegna mistaka í framkvæmdum vegna Barnaskóla Kársness og riftunar á verksamningi í kjölfarið. Hægt er að fullyrða að um dýrasta grunnskóla landsins sé að ræða og er áfallinn kostnaður löngu orðinn margfeldi af upphaflegri kostnaðaráætlun. Veruleg óvissa er um hvort kostnaður endurheimtist frá verktakanum að óbreyttu jafnvel þótt Kópavogsbær beri sigur úr býtum í yfirstandandi málaferlum, enda liggur fyrir að verktakinn er í verulegum fjárhagserfiðleikum og hefur verið í greiðslustöðvun í um þrjú ár.
Líkt og fram hefur komið eru framkomnar upplýsingar ekki til þess fallnar að veita glögga mynd af ferlinu í heild. Undirritaður telur brýnt að farið verði yfir málið í heild sinni og lærdómur dreginn af því um hvað hafi farið úrskeiðis, hver raunverulegur kostnaður bæjarsjóðs hafi verið, hvort ákvarðanataka í kjölfar riftunar hafi verið forsvaranleg og hvaða úrbóta þurfi að grípa til svo að svona stórslys í framkvæmdum bæjarins eigi sér ekki aftur stað. Enginn þörf er á að bíða endanlegrar niðurstöðu málaferla enda liggja málsatvik um framkvæmd útboðs og eftirlit með framkvæmdunum af hálfu Kópavogsbæjar fyrir og munu ekki taka breytingum upp úr þessu."
Jónas Már Torfason
Bókun:
"Kostnaður við byggingu Barnaskóla Kársness er umfram áætlanir og það er óumdeilt, en hins vegar er það ekki rétt að kostnaðurinn sé margfeldi á við upphaflegar kostnaðaráætlanir. Mikilvægt er að halda staðreyndum málsins til haga og setja þær ákvarðanir sem hafa verið teknar í rétt samhengi.
Framkvæmdin var boðin út í samræmi við lög um opinber innkaup. Rizzani de Eccher átti lægsta gilda tilboðið og Kópavogsbæ bar að fylgja þeim reglum sem gilda um val á verktaka í opinberum útboðum.
Vorið 2023 var öllum orðið ljóst að í óefni var komið og því steig bæjarstjórn sterkt inn með riftun og áformum og kröfugerð sem nú er komin fram. Verulegar tafir, alvarlegir ágallar og ítrekaðar vanefndir verktakans urðu til þess að bæjaryfirvöld brugðust við þessum hætti. Sú ákvörðun var bæði nauðsynleg og rétt, enda hefur gerðardómur þegar staðfest að riftunin hafi verið lögmæt. Rétt er að árétta að riftunin var samþykkt af öllum bæjarfulltrúum, úr meiri- og minnihluta, utan eins. Að mati meirihlutans hefur ákvörðunin um riftun sannað sig enda er í dag risinn glæsilegur skóli þar sem fer fram skólahald grunn- og leikskóla.
Meirihlutinn telur tilraunir til þess að gera pólitískan ágreining úr máli þar sem bæjaryfirvöld þurftu að bregðast við alvarlegum vanefndum verktaka ekki vera málefnalegar. Sjálfsagt er að fara yfir það sem betur hefði mátt fara en slík yfirferð ætti að byggja á staðreyndum en ekki pólitískum upphrópunum.
Hefði ekki verið gripið til þeirra afgerandi aðgerða sem bæjaryfirvöld ákváðu á sínum tíma er alls óvíst að skólinn væri risinn í dag."
Andri Steinn Hilmarsson
Orri Vignir Hlöðversson
Ásdís Kristjánsdóttir
Hjördís Ýr Johnson
Gestir
- Ásthildur Helgadóttir sviðsstjóri umhverfisviðs - mæting: 08:15
- Jóhannes Karl Sveinsson, lögmaður - mæting: 08:15
- Steinn Finnbogason, yfirlögfræðingur - mæting: 08:15
Lagt fram til samþykktar erindisbréf menntaráðs.
Vísað til staðfestingar bæjarstjórnar.
03
Fyrirspurn bæjarfulltrúa Einars Jóhannesar Guðnasonar varðandi kostnað vegna þjóðaratkvæðagreiðslu
Lagt fram svar, dags. 13. október 2026, við fyrirspurn Einars Jóhannesar Guðnasonar um kostnað við þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst 2026.
Lagt fram.
Frá umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis, dags. 08.10.2026, lagt fram til umsagnar 156. mál - frumvarp til laga um breytingu á lögum um Byggðastofnun, nr. 106/1999 (lagfæringar).
Lagt fram.
05
Til umsagnar 59. máli - frumvarp til laga um breytingu á sveitarstjórnarlögum, nr.138-2011 (fjöldi fulltrúa í sveitarstjórn).
Frá umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis, dags. 13.10.2026, lagt fram til umsagnar 59. máli - frumvarp til laga um breytingu á sveitarstjórnarlögum, nr. 138/2011 (fjöldi fulltrúa í sveitarstjórn).
Lagt fram.
Bókun bæjarráðs:
"Bæjarráð Kópavogsbæjar telur mikilvægt að sveitarfélög hafi sem víðtækast sjálfdæmi um fjölda sveitarstjórnarmanna og telur því að ganga mætti lengra í þá átt en gert er ráð fyrir í fyrirliggjandi frumvarpi til breytinga á sveitarstjórnarlögum.
Þrátt fyrir þær breytingar sem lagðar eru til í frumvarpinu verður Kópavogsbæ áfram skylt að fjölga bæjarfulltrúum úr 11 í 15 þegar íbúafjöldi sveitarfélagsins fer yfir 50.000. Fyrirsjáanlegt er að þeim íbúafjölda verði náð á næstu árum.
Bæjarráð vekur sérstaka athygli á því að fjöldi bæjarfulltrúa í Kópavogi er nú þegar við lögbundið lágmark samkvæmt gildandi lögum. Bæjarráð telur því rétt að sveitarfélögum, Kópavogi sem öðrum, verði veitt aukið svigrúm til að ákveða fjölda sveitarstjórnarmanna með hliðsjón af staðbundnum aðstæðum og þörfum hvers sveitarfélags."
06
Til umsagnar 88. mál - tillaga til þingsályktunar um endurskoðun laga um sjávarflóðavarnir, ofanflóðavarnir og náttúruvá.
Frá umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis, dags. 13.10.2026, lagt fram til umsagnar 88. mál - tillaga til þingsályktunar um endurskoðun laga um sjávarflóðavarnir, ofanflóðavarnir og náttúruvá.
Vísað til afgreiðslu sviðsstjóra umhverfissviðs.
Frá innviðaráðuneytinu, dags. 12.10.2026, lagðar fram tillögur um viðmið um sjálfbæra þróun sveitarfélaga í samráðsgátt stjórnvalda til umsagnar. Í tillögunum eru sett fram 30 mælikvarðar og skilgreind viðmið sem gefa til kynna hvort sveitarfélög hafi nauðsynlegar forsendur til að þróast með sjálfbærum hætti til lengri tíma. Vonir standa til að viðmiðin og mælaborðið nýtist sem leiðsögn og tæki fyrir gagnadrifna stefnumótun og ákvarðanatöku fyrir sveitarfélög til langs tíma. Hægt er að senda inn umsögn til og með 13. nóvember nk.
Lagt fram.
Bókun:
"Undirrituð gera alvarlegar athugasemdir við fyrirhuguð viðmið um það sem ríkið kýs að kalla "sjálfbæra þróun sveitarfélaga."
Hér er enn ein tilraun ríkisins til að auka afskipti af starfsemi sveitarfélaga í stað þess að taka til heima hjá sér. Í stað þess að treysta sveitarfélögum til að sinna lögbundnum verkefnum sínum og forgangsraða í þágu íbúanna er verið að þróa umfangsmikið kerfi mælikvarða sem kallar á aukna upplýsingasöfnun, umsýslu og skriffinnsku.
Undirrituð telja að verkefnið sé til þess fallið að stækka stjórnsýslubáknið fremur en að bæta þjónustu við íbúa. Sveitarfélög þurfa aukið sjálfstæði og svigrúm til hagræðingar, ekki fleiri viðmið og aukna miðstýringu frá ríkinu.
Hvetja undirrituð ráðherrann og ríkisstjórnina til þess að beina sjónum sínum að brýnni verkefnum, t.d. að taka á vöxtum, verðbólgu, uppfærslu fæðingarorlofslaga og raunverulegri endurskoðun útlendingalaga, svo eitthvað sé nefnt."
Einar Jóhannes Guðnason
Andri Steinn Hilmarsson
Orri Vignir Hlöðversson
Ásdís Kristjánsdóttir
Hjördís Ýr Johnson
Frá Umhverfis- og orkustofnun, dags. 13.10.2026, lögð fram til umsagnar, tillaga verkefnisstjórnar 6. áfanga rammaáætlunar um sjö vindorkuverkefni ásamt skýrslu og fylgisskjölum í 12 vikna samráð í samráðsgátt stjórnvalda.
Bæjarráð óskar eftir því að bæjarstjóri taki málið upp á vettvangi SSH.
Fundargerð í sjö liðum.
Lagt fram.
Fundargerð í fjórum liðum.
Lagt fram.
Fundargerð í þremur liðum.
Lagt fram.
Gestir viku af fundi kl. 9:16.
Bókun:
"Það reynist Kópavogsbæ sífellt erfiðara að standa að útboðum sem baka bænum ekki vandræði. Undirritaður telur mikilvægt að farið verði í vinnu til þess að koma í veg fyrir þau vinnubrögð sem hafa opinberast í útboðsvinnunni er snýr að stúku HK og furðar sig á málsatvikum."
Einar Jóhannes Guðnason
Bókun:
"Undirritaður þakkar kynningu á stöðu útboðs á stúku HK. Líkt og undirritaður hefur áður sagt ber framkvæmdin merki um að ekki hafi verið vandað nægilega til verka og ítrekar enn á ný að pólitískur metnaður til að standa við loforð gefin í kosningabaráttu megi ekki koma niður á vönduðum vinnubrögðum. Líkt og í máli Barnaskóla Kársness, samanber fundarlið 1, er um gríðarlega stóra framkvæmd að ræða og er það áhyggjuefni hve illa bænum hefur tekist til við framkvæmd útboðsferla og stærri framkvæmda á vegum bæjarins. Líkt og ávallt er mikilvægt að farið verði í saumana á því hvað hefur farið úrskeiðis og lærdómur dreginn af því svo að svona eigi sér ekki stað á ný."
Jónas Már Torfason
Bókun:
"Það er ekki leyndarmál að meirihlutinn hefur pólitískan metnað til þess að klára stúkubyggingu fyrir HK en það hefur legið fyrir frá því að hverfaskiptingu starfssvæða íþróttafélaga bæjarins var komið á árið 2012 að ráðist yrði í byggingu stúku fyrir HK. Hér er því verið að standa við löngu gefið loforð.
Niðurstaða kærunefndar vegna innkaupaferlisins hefur ekkert með pólitískan metnað meirihlutans að gera heldur er fundið að því hvernig ákveðnum matsþáttum var háttað. Lögfræðingar bæjarins eru nú að fara yfir næstu skref varðandi innkaupaferlið en áfram verður unnið vel og örugglega að því að hefja framkvæmdir við stúkuna."
Andri Steinn Hilmarsson
Orri Vignir Hlöðversson
Ásdís Kristjánsdóttir
Hjördís Ýr Johnson
Gestir
- Ásthildur Helgadóttir sviðsstjóri umhverfisviðs - mæting: 08:47
- Steinn S. Finnbogason yfirlögfræðingur - mæting: 08:47
Fundargerð í sex liðum.
Lagt fram.
12.4 - 26081402 - Breytingar á reglum um akstursþjónustu eldra fólks
Drög að breytingum á reglum um akstursþjónustu eldra fólks lögð fram til afgreiðslu.
Meirihluti velferðar- og mannréttindaráð samþykkir breytingar á reglum um akstursþjónustu eldra fólks fyrir sitt leyti og vísar þeim til afgreiðslu bæjarráðs og staðfestingar bæjarstjórnar.
Örn Arnarson aðalmaður Samfylkingar og Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir aðalmaður Viðreisnar sitja hjá.
Vísað til staðfestingar bæjarstjórnar.
- Minnisblað vegna breytinga á reglum um akstursþjónustu fyrir eldra fólk lagt til afgreiðslu
- Minnisblað vegna breytinga á reglum um akstursþjónustu fyrir eldra fólk
- Minnisblað vegna tillögu að gjaldskrárbreytingum á akstursþjónustu eldra fólks
- Minnisblað vegna breytinga á reglum um akstursþjónustu fyrir eldra fólk öldungaráð
- Drög að breytingum á reglum um akstursþjónustu fyrir eldra fólk 2026
Fundargerð 1003. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 23.09.2026.
Lagt fram.
Fundargerð 284. fundar stjórnar Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins frá 02.10.2026.
Lagt fram.
Fundargerð 57. eigendafundar stjórnar Sorpu bs. frá 05.10.2026.
Lagt fram.