Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Til umsagnar Tillögur um viðmið um sjálfbæra þróun sveitarfélaga

Málsnúmer: 26102351

Ferill máls

01

Bæjarráð - 3268. fundur

Frá innviðaráðuneytinu, dags. 12.10.2026, lagðar fram tillögur um viðmið um sjálfbæra þróun sveitarfélaga í samráðsgátt stjórnvalda til umsagnar. Í tillögunum eru sett fram 30 mælikvarðar og skilgreind viðmið sem gefa til kynna hvort sveitarfélög hafi nauðsynlegar forsendur til að þróast með sjálfbærum hætti til lengri tíma. Vonir standa til að viðmiðin og mælaborðið nýtist sem leiðsögn og tæki fyrir gagnadrifna stefnumótun og ákvarðanatöku fyrir sveitarfélög til langs tíma. Hægt er að senda inn umsögn til og með 13. nóvember nk.

Lagt fram.

Bókun:

"Undirrituð gera alvarlegar athugasemdir við fyrirhuguð viðmið um það sem ríkið kýs að kalla "sjálfbæra þróun sveitarfélaga."

Hér er enn ein tilraun ríkisins til að auka afskipti af starfsemi sveitarfélaga í stað þess að taka til heima hjá sér. Í stað þess að treysta sveitarfélögum til að sinna lögbundnum verkefnum sínum og forgangsraða í þágu íbúanna er verið að þróa umfangsmikið kerfi mælikvarða sem kallar á aukna upplýsingasöfnun, umsýslu og skriffinnsku.

Undirrituð telja að verkefnið sé til þess fallið að stækka stjórnsýslubáknið fremur en að bæta þjónustu við íbúa. Sveitarfélög þurfa aukið sjálfstæði og svigrúm til hagræðingar, ekki fleiri viðmið og aukna miðstýringu frá ríkinu.

Hvetja undirrituð ráðherrann og ríkisstjórnina til þess að beina sjónum sínum að brýnni verkefnum, t.d. að taka á vöxtum, verðbólgu, uppfærslu fæðingarorlofslaga og raunverulegri endurskoðun útlendingalaga, svo eitthvað sé nefnt."

Einar Jóhannes Guðnason

Andri Steinn Hilmarsson

Orri Vignir Hlöðversson

Ásdís Kristjánsdóttir

Hjördís Ýr Johnson