Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Til umsagnar 59. máli - frumvarp til laga um breytingu á sveitarstjórnarlögum, nr.138-2011 (fjöldi fulltrúa í sveitarstjórn).

Málsnúmer: 26102560

Ferill máls

01

Bæjarráð - 3268. fundur

Frá umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis, dags. 13.10.2026, lagt fram til umsagnar 59. máli - frumvarp til laga um breytingu á sveitarstjórnarlögum, nr. 138/2011 (fjöldi fulltrúa í sveitarstjórn).

Lagt fram.

Bókun bæjarráðs:

"Bæjarráð Kópavogsbæjar telur mikilvægt að sveitarfélög hafi sem víðtækast sjálfdæmi um fjölda sveitarstjórnarmanna og telur því að ganga mætti lengra í þá átt en gert er ráð fyrir í fyrirliggjandi frumvarpi til breytinga á sveitarstjórnarlögum.

Þrátt fyrir þær breytingar sem lagðar eru til í frumvarpinu verður Kópavogsbæ áfram skylt að fjölga bæjarfulltrúum úr 11 í 15 þegar íbúafjöldi sveitarfélagsins fer yfir 50.000. Fyrirsjáanlegt er að þeim íbúafjölda verði náð á næstu árum.

Bæjarráð vekur sérstaka athygli á því að fjöldi bæjarfulltrúa í Kópavogi er nú þegar við lögbundið lágmark samkvæmt gildandi lögum. Bæjarráð telur því rétt að sveitarfélögum, Kópavogi sem öðrum, verði veitt aukið svigrúm til að ákveða fjölda sveitarstjórnarmanna með hliðsjón af staðbundnum aðstæðum og þörfum hvers sveitarfélags."