Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Umsókn um styrki frá menningar- og mannlífsnefnd Kópavogsbæjar

Málsnúmer: 26102712

Ferill máls

01

Menningar- og mannlífsnefnd - 17. fundur

Karlakór Kópavogs sækir um styrk að upphæð 650.000 kr. til að styðja við menningar- og félagsstarf kórsins á starfsárinu 2026-2027. Kórinn hefur það að markmiði að efla söngmenningu, varðveita íslenskar sönghefðir og stuðla að virku og fjölbreyttu félagsstarfi.

Menningar- og mannlífsnefnd samþykkir að veita Karlakór Kópavogs styrk að upphæð 300.000 kr. vegna verkefnisins. Gert er ráð fyrir að kórinn komi fram á vegum Kópavogsbæjar einu sinni á árinu skv. samkomulagi við forstöðumann menningarmála. Samþykkt styrkveitingarinnar er háð endanlegu samþykki fjárhagsáætlunar Kópavogsbæjar fyrir árið 2027.