Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Umsókn um styrki frá menningar- og mannlífsnefnd Kópavogsbæjar

Málsnúmer: 26102907

Ferill máls

01

Menningar- og mannlífsnefnd - 17. fundur

Einstaklingur sækir um styrk að upphæð 1.300.000 kr. fyrir dans- og tónlistarverkefnið Dansandi krakkastappa sem felur í sér gjaldfrjálsar danssmiðjur og mögulega lokasýningu.

Menningar- og mannlífsnefnd samþykkir ekki sérstakan styrk úr sjóðnum að svo stöddu en telur verkefnið geta hentað sem fjölskyldu- og þátttökuverkefni í sameiginlegri dagskrá menningarhúsanna og/eða á Bæjarhátíð Kópavogs 2027. Nefndin felur forstöðumanni menningarmála að kanna þann möguleika.