Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Umsókn um styrki frá menningar- og mannlífsnefnd Kópavogsbæjar

Málsnúmer: 26102924

Ferill máls

01

Menningar- og mannlífsnefnd - 17. fundur

Einstaklingur óskar eftir styrk að upphæð 600.000 kr. til að afla heimilda og skrá sögu Kársness. Verkefnið er óhagnaðardrifið og niðurstaðan opin öllum á vefnum Götusögur.

Menningar- og mannlífsnefnd ákveður að veita ekki styrk að þessu sinni. Við afgreiðslu umsókna var tekið mið af markmiðum og áherslum sjóðsins, heildarmati á innsendum umsóknum og því fjármagni sem nefndin hefur til ráðstöfunar. Nefndin bendir einnig góðfúslega á mögulegt samstarf umsækjanda við Sögufélag Kópavogs.