Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Umsókn um styrki frá menningar- og mannlífsnefnd Kópavogsbæjar

Málsnúmer: 26102988

Ferill máls

01

Menningar- og mannlífsnefnd - 17. fundur

Einstaklingur óskar eftir styrk að upphæð 450.000 kr. til verkefnisins ÆTIBEÐ, sem felst í að setja upp gróðurbeð með ætilegum plöntum á fjórum leiksvæðum í Kópavogi sumarið 2027 og fræða íbúa um ræktun þeirra.

Menningar- og mannlífsnefnd ákveður að veita ekki styrk að þessu sinni. Við afgreiðslu umsókna var tekið mið af markmiðum og áherslum sjóðsins, heildarmati á innsendum umsóknum og því fjármagni sem nefndin hefur til ráðstöfunar. Nefndin bendir umsækjanda góðfúslega á að verkefnið gæti átt samleið með umhverfissviði Kópavogsbæjar.