Til baka í fundargerðir
Umsókn um styrki frá menningar- og mannlífsnefnd Kópavogsbæjar
Málsnúmer: 26102992
Ferill máls
01
Menningar- og mannlífsnefnd - 17. fundur
Einstaklingur óskar eftir styrk að upphæð 600.000 kr. til að halda fimm ókeypis söngstundir með virkri þátttöku barna á aldrinum 0-10 ára og fjölskyldum þeirra á mismunandi stöðum í Kópavogi á tímabilinu frá janúar 2027 til janúar 2028.
Menningar- og mannlífsnefnd samþykkir ekki sérstakan styrk úr sjóðnum að svo stöddu en telur Syngjum saman í Kópavogi geta hentað sem fjölskylduverkefni í bókasöfnum, öðrum menningarhúsum og/eða á Bæjarhátíð Kópavogs 2027. Nefndin felur forstöðumanni menningarmála að kanna samstarfsgrundvöll.