Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Umsókn um styrki frá menningar- og mannlífsnefnd Kópavogsbæjar

Málsnúmer: 26102995

Ferill máls

01

Menningar- og mannlífsnefnd - 17. fundur

Y gallery sækir um styrk að upphæð 1.500.000 kr. til að halda sex sýningar íslenskra og erlendra samtímalistamanna árin 2027-2028 í sýningarrými fyrrum bensínstöðvar Olís í Hamraborg. Aðgangur að sýningunum er gjaldfrjáls.

Menningar- og mannlífsnefnd samþykkir með fjórum atkvæðum gegn atkvæði Maríu Ellenar Steingrímsdóttur að veita Y gallery styrk að upphæð 500.000 kr. vegna verkefnisins. Samþykkt styrkveitingarinnar er háð endanlegu samþykki fjárhagsáætlunar Kópavogsbæjar fyrir árið 2027.