Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Umsókn um styrki frá menningar- og mannlífsnefnd Kópavogsbæjar

Málsnúmer: 26103000

Ferill máls

01

Menningar- og mannlífsnefnd - 17. fundur

Einstaklingur óskar eftir styrk að upphæð 400.000 kr. til að setja upp hljóðinnsetninguna Tif á Kópavogshátíðinni 2027. Verkið felur í sér hljóðræna gönguleið um grænt svæði í Kópavogi, sem listamaðurinn mun leiða í eitt eða tvö skipti.

Menningar- og mannlífsnefnd samþykkir að veita umsækjanda styrk að upphæð 200.000 kr. vegna verkefnisins. Nefndin telur Tif geta hentað vel í dagskrá Bæjarhátíðar Kópavogs 2027 og mögulega í samstarfi við Náttúrusafn. Samþykkt styrkveitingarinnar er háð endanlegu samþykki fjárhagsáætlunar Kópavogsbæjar fyrir árið 2027.