Umsókn um styrki frá menningar- og mannlífsnefnd Kópavogsbæjar
Málsnúmer: 26103004
Ferill máls
01
Menningar- og mannlífsnefnd - 17. fundur
Kraðak óskar eftir styrk að upphæð 2.286.500 kr. til að standa fyrir fjórum hátíðlegum samverustundum fyrir börn og fjölskyldur á aðventunni í Guðmundarlundi undir heitinu Jólalundur þar sem náttúra, menning og íslenskar jólahefðir mætast. Óskað er eftir þriggja ára samstarfssamningi fyrir árin 2027-2029 til að tryggja samfellu og uppbyggingu verkefnisins, en til vara styrk fyrir árið 2027.
Menningar- og mannlífsnefnd ákveður að veita ekki styrk að þessu sinni. Við afgreiðslu umsóknarinnar var tekið mið af markmiðum og áherslum sjóðsins, heildarmati á innsendum umsóknum og því fjármagni sem nefndin hefur til ráðstöfunar.
Nefndin telur verkefnið áhugavert og felur forstöðumanni menningarmála að kanna möguleika á samstarfi um verkefnið á öðrum vettvangi.