Til baka í fundargerðir
Umsókn um styrki frá menningar- og mannlífsnefnd Kópavogsbæjar
Málsnúmer: 26103010
Ferill máls
01
Menningar- og mannlífsnefnd - 17. fundur
Einstaklingur óskar eftir styrk að upphæð 940.000 kr. til að standa fyrir fjórum fjölþjóðlegum viðburðum í Gerðarsafni þar sem myndlist, silkiþrykk á textíl og matarupplifun mætast með þátttöku ólíkra listamanna.
Menningar- og mannlífsnefnd ákveður að veita ekki styrk að þessu sinni. Við afgreiðslu umsókna var tekið mið af markmiðum og áherslum sjóðsins, heildarmati á innsendum umsóknum og því fjármagni sem nefndin hefur til ráðstöfunar. Nefndin bendir umsækjanda á að verkefnið gæti átt samleið með viðburðum í Gerðarsafni.