Ársskýrsla grunnskóladeildar 2025-2026
Málsnúmer: 26103605
Ferill máls
01
Menntaráð - 169. fundur
Lögð fram til kynningar ársskýrsla grunnskóladeildar.
Lagt fram og kynnt.
Fundarhlé hófst kl. 17:05, fundi fram haldið kl. 17:13.
Bókun:
Fulltrúar Samfylkingarinnar, Viðreisnar og Miðflokks þakkar starfsfólki menntasviðs fyrir vandaða og upplýsandi skýrslu sem endurspeglar umfangsmikið og mikilvægt starf í þágu barna og fjölskyldna í Kópavogi.
Skýrslan sýnir að víða er unnið metnaðarfullt starf en jafnframt að áskoranir í skólaþjónustu eru til staðar og kalla á áframhaldandi stuðning, skýra forgangsröðun og markvissa eftirfylgni. Í skýrslunni koma fram mikilvægar upplýsingar um stöðu þjónustunnar, meðal annars að gæðamarkmið um biðtíma eftir sérfræðiþjónustu, þ.m.t. þjónustu sálfræðinga og talmeinafræðinga, nást ekki að fullu, að biðlisti hafi myndast eftir námskeiðum fyrir foreldra barna með ADHD. Mikilvæg þjónusta sem þessi má ekki raskast. Þá er ljóst að veruleg þörf er fyrir aukinn stuðning við íslenskunám nemenda með fjölbreyttan menningar- og tungumálabakgrunn.
Mikilvægt er að meirihluti sjálfstæðisflokks og framsóknarflokks tryggi starfsfólki bæjarins og skólum þær forsendur sem þarf til að mæta vaxandi og fjölbreyttum þörfum nemenda. Metnaðarfull markmið í skólaþjónustu verða ekki að veruleika nema þeim fylgi nauðsynlegur stuðningur, fjármunir og skýr framtíðarsýn.
María Ellen Steingrímsdóttir
Bryndís Rut Logadóttir
Björn Þór Rögnvaldsson
Nína Berglind Sigurgeirsdóttir
02
Menntaráð - 168. fundur
Lögð fram til kynningar ársskýrsla grunnskóladeildar 2025-2026.
Frestað.