Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Menntaráð - 168. fundur

í bæjarstjórnarsal, Hábraut 2

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Karen Rúnarsdóttir - formaður
  • Hildur Karen Sveinbjarnardóttir - aðalfulltrúi
  • Hildur Einarsdóttir - aðalfulltrúi
  • Arnór Aðalsteinsson - aðalfulltrúi
  • Gunnar Sær Ragnarsson - aðalfulltrúi
  • María Ellen Steingrímsdóttir - aðalfulltrúi
  • Bryndís Rut Logadóttir - aðalfulltrúi
  • Björn Þór Rögnvaldsson - áheyrnarfulltrúi
  • Kristgerður Garðarsdóttir - kennarafulltrúi
  • Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir - fulltrúi skólastjóra
  • Ævar Örn Jóhannsson - vara áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Anna Birna Snæbjörnsdóttir - Sviðsstjóri menntasviðs
  • Ingunn Mjöll Birgisdóttir - starfsmaður menntasviðs
  • Amanda Karima Ólafsdóttir - starfsmaður menntasviðs

Ritari

  • Ingunn Mjöll Birgisdóttir

Dagskrá fundar

Almenn erindi

01

Fyrirspurn frá fulltrúum Viðreisnar um systkinaforgang við úthlutun leikskólaplássa í Kópavogi

Fyrirspurn frá fulltrúum Viðreisnar um systkinaforgang við úthlutun leikskólaplássa í Kópavogi lögð fram.

Fyrirspurn frá fulltrúum Viðreisnar um systkinaforgang við úthlutun leikskólaplássa í Kópavogi vísað til úrvinnslu á menntasviði.

Almenn erindi

02

Fyrirspurn frá áheyrnarfullltrúa Miðflokksins, Nínu Berglindi Sigurgeirsdóttur um forgang um innritun í leikskóla

Lögð er fram fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Miðflokks, Nínu Berglindi Sigurgeirsdóttur um forgang um innritun í leikskóla.

Fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Miðflokksins um forgang innritunar í leikskóla Kópavogs er vísað til úrvinnslu á menntasviði.

Almenn erindi

03

Fyrirspurn frá áheyrnarfulltrúa Miðflokksins, Nínu Berglindi Sigurgeirsdóttur um vistunartíma í leikskólum

Lögð er fram fyrirspurn frá áheyrnarfulltrúa Miðflokksins, Nínu Berglindi Sigurgeirsdóttur um vistunartíma í leikskólum.

Fyrirspurn frá áheyrnarfulltrúa Miðflokksins um vistunartíma í leikskólum er vísað til úrvinnslu á menntasviði.

Almenn erindi

04

Fyrirspurn frá fulltrúum meirihluta í menntaráði um sundurliðun niðurstaðna PISA fyrir bæjarfélagið og grunnskóla

Lögð fram fyrirspurn frá meirihluta menntaráðs um að Kópavogsbær óski eftir sundurliðuðum niðurstöðum PISA-2025 fyrir Kópavog og grunnskóla Kópavogs frá Mennta- og barnamálaráðuneytinu.

Fyrirspurn frá meirihluta menntaráðs um að Kópavogsbær óski eftir sundurliðuðum niðurstöðum PISA er vísað til úrvinnslu á menntasviði.

Umræða.

Almenn erindi

05

Tillaga frá fulltrúum Viðreisnar í menntaráði um að fresta innleiðingu nýs námsmatkvarða fyrir 10. bekk.

Lögð er fram tillaga frá fulltrúum Viðreisnar í menntaráði um að fresta innleiðingu námsmatskvarða fyrir nemendur í 10. bekk.

Lagt fram.

Bókun:

Miðflokkurinn styður tillögu Viðreisnar um að fresta innleiðingu nýs verulega vanútfærðs námskvarða ríkisstjórnarinnar fyrir 10. bekk.

Ævar Örn Jóhannsson

Umræða.

Fundarhlé hófst kl. 16:22, fundi framhaldið 16:35.

Bókun:

Meirihluti menntaráðs hefur kynnt sér málið vel og rætt við nemendur, foreldra, skólastjórnendur og kennara í Kópavogi. Samtölin staðfesta að undirbúningur og kynningu ríkisstjórnarinnar á nýjum einkunnakvarða hafi verið ófullnægjandi, svo ekki sé fastar að orði kveðið og að skólarnir hafi ekki fengið nægan stuðning vð innleiðingu hans. Meirihlutinn gerir alvarlega athugasemd við það.

Þó er tölukvarði að okkar mati skref í rétta átt. Hann eykur gagnsæi og samræmir betur mat á frammistöðu og framvindu nemenda en bókstafakvarðinn, sem hefur sætt harðri gagnrýni, meðal annars vegna ólíkrar tíðni A-einkunna milli skóla. Frestun innleiðingar viðheldur gagnrýndu fyrirkomulagi og væri því óábyrg.

Kópavogur hefur unnið að samræmingu einkunnagjafar til að tryggja réttlátari niðurstöðu fyrir nemendur. Margir skólar eru langt komnir og frestun myndi auka óvissu, ekki síst hjá nemendum sem útskrifast í vor. Vinna skólanna í Kópavogi samræmist frekar ákalli samfélagsins um breytingar en sú tillaga sem fjallað er um hér.

Rót vandans liggur í annmörkum aðalnámskrár og í því hvernig námsárangur er metinn. Nýr kvarði leysir það ekki einn og sér, en er skárri kostur en sá gamli.

Meirihlutinn hefur fullan skilning á áhyggjum foreldra og nemenda í 10. bekk og kallar því eftir tafarlausum, auknum stuðningi ráðuneytisins við innleiðinguna. Nauðsynlegt er að bæta úr annmörkum, ekki að snúa við í miðju ferli.

Lagt er fyrir menntasvið að kynna innleiðingu kvarðans fyrir foreldrum og nemendum.

Karen Rúnarsdóttir

Hildur Karen Sveinbjarnardóttir

Arnór Sveinn Aðalsteinsson

Hildur Einarsdóttir

Gunnar Sær Ragnarsson

Fundarhlé hófst, 16:42, fundi framhaldið 17:01.

Bókun:

Fyrir hönd Miðflokksins við bókun meirihlutans: Undirritaður skilur ekki að meirihluti menntaráðs Kópavogsbæjar vilji ekki fresta innleiðingu ókláraðrar útfærslu einkunnakvarðans, þar sem bókstöfum er skipt út fyrir tölur, án nokkurra raunverulegra breytinga. Einkunnarskalinn 4-7 er einungis til þess fallinn að rugla börn enn frekar í rýminu. Afstaða meirihlutans ætti þó kannski ekki að koma á óvart í ljósi þess að þessi meirihluti hefur staðið fyrir fordæmalausri spjaldtölvuvæðingu grunnskólanna sem undirritaður telur hluta af orsök versnandi námsárangurs barna í bæjarfélaginu.

Ævar Örn Jóhannsson

Bókun:

Fulltrúar Viðreisnar í menntaráði taka undir áhyggjur meirihlutans af ófullnægjandi undirbúningi og kynningu á nýjum námsmatskvarða. Það skýtur hins vegar skökku við að meirihlutinn viðurkenni sjálfur verulega annmarka á undirbúningi og skort á stuðningi við skólana, en telji á sama tíma óábyrgt að fresta innleiðingunni.

Viðreisn styður markmið breytinganna um aukið samræmi og jafnræði í námsmati. Ágreiningurinn snýst um tímasetningu innleiðingarinnar. Það að margir skólar séu langt komnir í undirbúningi tryggir ekki að allir skólar geti beitt nýjum kvarða með sambærilegum hætti.

Ákall samfélagsins er um aukið gagnsæi og samræmi í námsmati, ekki óvissu, ófullnægjandi undirbúning og hættu á að nemendur sitji ekki við sama borð við lok grunnskólagöngu. Það er miður að meirihluti menntaráðs í Kópavogi, næststærsta sveitarfélagi landsins, skuli ekki nýta tækifærið til að senda ráðherra skýr skilaboð um mikilvægi þess að vandað sé til verka. Í stað þess skilar meirihlutinn auðu þegar kemur að því að tryggja að forsendur breytinganna séu til staðar áður en þær taka gildi.

Bryndís Rut Logadóttir

María Ellen Steingrímsdóttir


Fundarhlé hófst, 17:05, fundi framhaldið 17:17.

Bókun:

Mikilvægt er að allir þeir aðilar sem koma að innleiðingu nýs námsmatskvarða fyrir nemendur vandi til verka og sýni fagmennsku í undirbúningi og framkvæmd. Tryggja þarf að kennarar fái skýrar leiðbeiningar, viðeigandi stuðning og nægan tíma til að tileinka sér nýtt fyrirkomulag.

Jafnframt er mikilvægt að eiga gott samráð við skólasamfélagið, hlusta á sjónarmið þeirra sem koma að framkvæmdinni og tryggja að breytingarnar séu kynntar með skýrum og samræmdum hætti.

Það er á ábyrgð meirihlutans að tryggja að nauðsynlegur undirbúningur og stuðningur sé til staðar og að brugðist sé við þeim áskorunum sem upp kunna að koma. Hagsmunir nemenda eiga ávallt að vera í forgrunni.


Björn Þór Rögnvaldsson

Bókun:

Meirihlutinn hafnar ásökunum um það að hann skili auðu i þessu stóra og mikilvæga máli. Afstaða meirihlutans er skýr um að gott menntakerfi í Kópavogi og á landinu öllu verði byggt upp á samræmdum mælikvörðum og gagnadrifnum ákvörðunum. Breyting í tölukvarða er skref í rétta átt að mati meirihlutans.

Meirihlutinn ítrekar ákall sitt um tafarlausan aukinn stuðning við innleiðingu og undirstrikar alvarlegar athugasemdir við framkvæmd ríkisstjórnarinnar.

Karen Rúnarsdóttir

Hildur Karen Sveinbjarnardóttir

Arnór Sveinn Aðalsteinsson

Hildur Einarsdóttir

Gunnar Sær Ragnarsson

Fundarhlé hófst 17:20, fundi framhaldið 17:35.

Bókun:

Meirihlutinn slær úr og í. Aukinn stuðningur er mikilvægur en dugar ekki einn og sér á meðan óvissa ríkir um hvort skólarnir geti beitt nýjum kvarða á sömu forsendum. Ef mat byggir á ólíkum forsendum eftir skólum er jafnræði nemenda stefnt í hættu, og þá eru það börnin sem bera skaðann. Frestun er rétta leiðin til að tryggja fagleg vinnubrögð og bregðast við ákalli samfélagsins. Tillaga Viðreisnar að áskorun til ráðherra snýst ekki um að hafna breytingunum heldur um að gera þær rétt. Ákall Viðreisnar snýst um að tryggja jafnræði nemenda áður en breytingarnar taka gildi.

Bryndís Rut Logadóttir

María Ellen Steingrímsdóttir

Meirihluti menntaráðs hafnar tillögu Viðreisnar.

Karen Rúnarsdóttir

Hildur Karen Sveinbjarnardóttir

Arnór Sveinn Aðalsteinsson

Hildur Einarsdóttir

Gunnar Sær Ragnarsson

Almenn erindi

06

Erindi frá skólaráði Snælandsskóla varðandi viðhald skólans

Lagt fram svar sviðsstjóra umhverfissviðs, dags. 5.okt.2026, við erindi frá Skólaráði Snælandskóla varðandi viðhald skólans.

Lagt fram.

Gestur vék af fundi kl. 17:54.


Gestir

  • Ásthildur Helgadóttir - mæting: 17:38
Almenn erindi

07

Áætlun um fyrirlagnir skimana og stöðu- og framvinduprófa

Lögð fram áætlun um fyrirlagnir skimana og stöðu- og framvinduprófa í leik- og grunnskólum Kópavogs.

Lagt fram og kynnt.

Gestir viku af fundi kl.18.12.


Gestir

  • Sigurlaug Rún Brynleifsdóttir - mæting: 17:55
  • Elín Guðrún Pálsdóttir - mæting: 17:55
Almenn erindi

08

Starfsáætlanir skóla- og frístundastarfs við grunnskóla Kópavogs - viðmið 2025-2030

Lögð fram viðmið starfsáætlana félagsmiðstöðva, frístundaklúbbsins Hrafnsins og Molans miðstöð unga fólksins.

Frestað.

Almenn erindi

09

Starfsáætlanir skóla- og frístundastarfs Vatnsendaskóla 2026-2027

Starfsáætlun félagsmiðstöðvarinnar Dimmu fyrir skólaárið 2026-2027 lögð fram til samþykktar.

Frestað.

Almenn erindi

10

Starfsáætlanir skóla--og frístundastarfs Snælandsskóla 2026-2027

Starfsáætlun félagsmiðstöðvarinnar Igló fyrir skólaárið 2026-2027 lögð fram til samþykktar.

Frestað.

Almenn erindi

11

Starfsáætlanir skóla- og frístundastarfs Smáraskóla 2026-2027

Starfsáætlun félagsmiðstöðvarinnar Þebu fyrir skólaárið 2026-2027 lögð fram til samþykktar.

Frestað.

Almenn erindi

12

Starfsáætlanir skóla- og frístundastarfs Salaskóla 2026-2027

Starfsáætlun félagsmiðtöðvarinnar Fönix fyrir skólaárið 2026-2027 lögð fram til samþykktar.

Frestað.

Almenn erindi

13

Starfsáætlanir skóla- og frístundastarfs Lindaskóla 2026-2027

Starfsáætlun félagsmiðstöðvarinnar Jemen fyrir skólaárið 2026-2027 lögð fram til samþykktar.

Frestað.

Almenn erindi

14

Starfsáætlanir skóla- og frístundastarfs Kóraskóla 2026-2027

Starfsáætlun félagsmiðstöðvarinnar Kúlunnar fyrir skólaárið 2026-2027 lögð fram til samþykktar.

Frestað.

Almenn erindi

15

Starfsáætlanir skóla- og frístundastarfs Kópavogsskóla 2026-2027

Starfsáætlun félagsmiðstöðvarinnar Kjarnans fyrir skólaárið 2026-2027 lögð fram til samþykktar.

Frestað.

Almenn erindi

16

Starfsáætlanir skóla- og frístundastarfs Kársnesskóla 2026-2027

Starfsáætlun félagsmiðstöðvarinnar Ekkó fyrir skólaárið 2026-2027 lögð fram til samþykktar.

Frestað.

Almenn erindi

17

Starfsáætlanir skóla- og frístundastarfs Álfhólsskóla 2026-2027

Starfsáætlun félagsmiðtstöðvarinnar Pegasus fyrir skólaárið 2026-2027 lögð fram til samþykktar.

Frestað.

Almenn erindi

18

Starfsáætlanir Hrafninn frístundaklúbbur 2025-2030

Starfsáætlun frístundaklúbbsins Hrafnsins fyrir skólaárið 2026-2027 lögð fram til samþykktar.

Frestað.

Almenn erindi

19

Starfsáætlanir Molinn - miðstöð unga fólksins 2025-2030

Starfsáætlun Molans, miðstöð unga fólksins fyrir skólaárið 2026-2027 lögð fram til samþykktar.

Frestað.

Almenn erindi

20

Ársskýrsla grunnskóladeildar 2025-2026

Lögð fram til kynningar ársskýrsla grunnskóladeildar 2025-2026.

Frestað.

Fundargerð

21

Ungmennaráð - 59. fundur frá 05.10.2026

Fundargerð í 2 liðum.

Lagt fram.

Fundargerð

22

Ungmennaráð - 60. fundur frá 26.10.2026

Fundargerð í 6 liðum.

Lagt fram.