Niðurstöður undirskriftasöfnunar um lengri opnunartíma sundlauga
Málsnúmer: 26103845
Ferill máls
01
Bæjarráð - 3269. fundur
Lagður fram undirskriftarlisti vegna lengri opnunartima sundlauga í Kópavogi þar sem skorað er á bæjarstjórn Kópavogs að tryggja fjármagn í fjárhagsáætlun 2027 til lengri opnunartíma sundlauga um helgar.
Bæjarráð vísar erindinu til fjárhagsáætlunargerðar.
Bókun:
"Undirritaður þakkar framtak Kópavogsbúa og þeim sem skrifað hafa undir undirskriftalistann. Samfylking lagði mikla áherslu á lengingu opnunartíma í kosningabaráttunni síðastliðið vor og tekur heilshugar undir áskorunina. Mikilvægt er að opnunartímar séu lengdir og færi best á því að opið væri til kl. 22 alla daga ársins í bæði Kópavogslaug og Salalaug.
Þá er fullt tilefni til að kanna hvort áhugi sé fyrir því meðal ungmenna bæjarins að framlengja opnunartímann enn frekar, til kl. 23, á föstudögum og laugardögum um sumar, líkt og tillaga Samfylkingar sem flutt var í bæjarstjórn Kópavogs þann 23. júní 2026 kvað á um. Sú tillaga var ekki samþykkt af meirihluta bæjarráðs þann 2. júlí. Undirritaður mun eftir sem áður leggja áherslu á lengingu opnunartíma við komandi fjárhagsáætlunargerð."
Jónas Már Torfason
Bókun:
"Í meirihlutasáttmála Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar er gert ráð fyrir lengri helgaropnun sundlauga og regluleg miðnæturopnun til að mæta þörfum íbúa og efla lýðheilsu. Þessi umræða verður tekin í afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2027."
Andri Steinn Hilmarsson
Orri Vignir Hlöðversson
Ásdís Kristjánsdóttir
Hjördís Ýr Johnson