Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Beiðni um framlag til menningarhúsanna árið 2027

Málsnúmer: 2610548

Ferill máls

01

Menningar- og mannlífsnefnd - 17. fundur

Óskað er eftir framlagi til menningarhúsanna í Kópavogi vegna sameiginlegra viðburða og annarra verkefna 2027.

Menningar- og mannlífsnefnd samþykkir framlag að upphæð 23.000.000 kr. til sameiginlegra viðburða og verkefna menningarhúsa Kópavogs árið 2027. Samþykkt styrkveitingarinnar er háð endanlegu samþykki fjárhagsáætlunar Kópavogsbæjar fyrir árið 2027.

Bókun:

Samkvæmt reglum menningarsjóðsins skulu tekjur hans vera 0,5% af 6,7% útsvarsstofni nema annað sé ákveðið við gerð fjárhagsáætlunar. Sjóðurinn var skorinn niður eftir hrun og hefur ekki náð þessu marki síðan sem bitnar á menningarstarfi í menningarhúsum bæjarins. Löngu tímabært er að sjóðurinn sé leiðréttur.

Margrét Tryggvadóttir