Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Stofnleiðir hjólreiða. Brú yfir Nýbýlaveg neðan Ásbrautar. Upphaf deiliskipulagsvinnu.

Málsnúmer: 26111367

Ferill máls

01

Skipulags- og umhverfisráð - 39. fundur

Lagt fram erindi skipulagsfulltrúa dags. 13. nóvember 2026 þar óskað er eftir heimild skipulags- og umhverfisráðs til að hefja gerð deiliskipulags fyrir hjóla- og göngubrú yfir Nýbýlaveg neðan Ásbrautar. Einnig eru lögð fram forhönnunargögn dags. í september 2026.

Hlynur Sævarsson frá Glámu Kím gerði grein fyrir erindinu. Birkir Rútsson, deildarstjóri gatnadeildar, Katrín Halldórsdóttir frá Betri Samgöngum og Bjarni Viðarsson frá VBV verkfræðistofu tóku sæti á fundinum undir þessum lið.

Samþykkt að hafin verði vinna við gerð deiliskipulags fyrir göngu- og hjólabrú yfir Nýbýlaveg í samræmi við erindi skipulagsfulltrúa dags. 13. nóvember 2026.

Bókun:

“Miðflokkurinn fagnar þeim áformum að ráðast eigi í aðgerðir sem hefta ekki för einkabílsins en tryggja jafnframt öryggi óvarinna vegfarenda við götuþverun. Með þessu fyrirkomulagi má bæta flæði akandi umferðar um gatnamótin til muna og auka um leið öryggi óvarinna vegfarenda. Þá má einnig benda á að með tilkomu nýrrar göngu- og hjólabrúar dregur það verulega úr þörf fyrir lagningu háhraða hjólastígs um Kársnes".

Beitir Ólafsson