Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Skipulags- og umhverfisráð - 39. fundur

í bæjarstjórnarsal, Hábraut 2

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Eydís Inga Valsdóttir - aðalfulltrúi
  • Hjördís Ýr Johnson - formaður
  • Andri Steinn Hilmarsson - varaformaður
  • Árnína Steinunn Kristjánsdóttir - aðalfulltrúi
  • Guðmundur Jóhann Jónsson - aðalfulltrúi
  • Kristinn Dagur Gissurarson - aðalfulltrúi
  • Hákon Gunnarsson - aðalfulltrúi
  • Beitir Ólafsson - áheyrnarfulltrúi
  • Pétur Björgvin Sveinsson - aðalmaður
    Boðaði forföll
    Hafsteinn Hrannar Ásgrímsson - vara áheyrnarfulltrúi
    Sat fundinn í staðinn

Starfsmenn

  • Auður Dagný Kristinsdóttir - skipulagsfulltrúi
  • Ásthildur Helgadóttir - sviðsstjóri umhverfissviðs
  • Andrea Kristinsdóttir - verkefnastjóri
  • Karlotta Helgadóttir - fulltrúi skipulagsdeildar
  • Harri Ormarsson - lögfræðingur

Ritari

  • Karlotta Helgadóttir

Dagskrá fundar

Afgreiðsla bæjarráðs og bæjarstjórnar

01

Bæjarstjórn - 1348. fundur frá 10.11.2026

Skipulags- og umhverfisráð - 38. fundur frá 02.11.2026

26081545 - Brekkuhvarf 5. Breytt deiliskipulag.

Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsráðs með 11 atkvæðum.

Afgreiðsla bæjarráðs og bæjarstjórnar

02

Bæjarráð - 3270. fundur frá 05.11.2026

Skipulags- og umhverfisráð - 38. fundur frá 02.11.2026

26081545 - Brekkuhvarf 5. Breytt deiliskipulag.

Bæjarráð samþykkir að vísa erindinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Almenn erindi

03

Fóðurgjafir fugla á höfuðborgarsvæðinu

Lagt fram til kynningar minnisblað sérfræðinga hjá umhverfissviði Kópavogsbæjar, umhverfis- og skipulagssviði Reykjavíkurborgar, Dýraþjónustu Reykjavíkur, umhverfis- og skipulagssviði Hafnarfjarðarbæjar og skipulags- og umhverfissviði Seltjarnarness dags. 26. október 2026 um fóðurgjafir fugla á höfuðborgarsvæðinu og möguleg áhrif þeirra á heilsu fugla, útbreiðslu sjúkdóma, vatnsgæði og vistkerfi.

Einnig lögð fram, til upplýsinga, beiðni Dýravaktarinnar til bæjarráðs um fjárstyrk dags. 11. nóvemeber 2026.

Karen Jónasdóttir, verkefnastjóri umhverfismála og Hlynur Steinsson, sérfræðingur hjá Náttúrusafni Kópavogs gerðu grein fyrir erindinu.

Lagt fram og kynnt.

Skipulags- og umhverfisráð tekur undir niðurlag framlagðs minnisblaðs um að fóðrun villtra dýra ætti að vera takmörkuð við sérstakar aðstæður og unnin í samráði við viðeigandi sérfræðinga og stjórnvöld.

Almenn erindi

04

Stofnleiðir hjólreiða. Brú yfir Nýbýlaveg neðan Ásbrautar. Upphaf deiliskipulagsvinnu.

Lagt fram erindi skipulagsfulltrúa dags. 13. nóvember 2026 þar óskað er eftir heimild skipulags- og umhverfisráðs til að hefja gerð deiliskipulags fyrir hjóla- og göngubrú yfir Nýbýlaveg neðan Ásbrautar. Einnig eru lögð fram forhönnunargögn dags. í september 2026.

Hlynur Sævarsson frá Glámu Kím gerði grein fyrir erindinu. Birkir Rútsson, deildarstjóri gatnadeildar, Katrín Halldórsdóttir frá Betri Samgöngum og Bjarni Viðarsson frá VBV verkfræðistofu tóku sæti á fundinum undir þessum lið.

Samþykkt að hafin verði vinna við gerð deiliskipulags fyrir göngu- og hjólabrú yfir Nýbýlaveg í samræmi við erindi skipulagsfulltrúa dags. 13. nóvember 2026.

Bókun:

“Miðflokkurinn fagnar þeim áformum að ráðast eigi í aðgerðir sem hefta ekki för einkabílsins en tryggja jafnframt öryggi óvarinna vegfarenda við götuþverun. Með þessu fyrirkomulagi má bæta flæði akandi umferðar um gatnamótin til muna og auka um leið öryggi óvarinna vegfarenda. Þá má einnig benda á að með tilkomu nýrrar göngu- og hjólabrúar dregur það verulega úr þörf fyrir lagningu háhraða hjólastígs um Kársnes".

Beitir Ólafsson

Gestir

  • Katrín Halldórsdóttir - mæting: 15:50
  • Bjarni Viðarsson - mæting: 15:50
  • Hlynur Sævarsson - mæting: 15:50
Almenn erindi

05

Dalvegur 1. Breytt aðalskipulag. Skipulags- og matslýsing.

Lögð fram að nýju að lokinni kynningu sameiginleg skipulags- og matslýsing unnin af Kópavogsbæ dags. 17. september 2026 fyrir breytingu á aðalskipulagi og breytingu á deiliskipulagi fyrir Dalveg 1. Fyrirhugað er að byggja upp verslunar- og þjónustuhúsnæði í góðum tengslum við Kópavogsdal í samræmi við tillögur Klasa þróunarfélags og Tendra arkitekta. Tillagan var auglýst frá 22. október til 10. nóvember 2026. Einnig eru lagðar fram athugasemdir og ábendingar sem bárust á kynningartíma ásamt samantekt umsagna, dags. 13. nóvember 2026.

Skipulagsfulltrúa er falið að hefja vinnu við gerð tillögu að breyttu aðal- og deiliskipulagi fyrir Dalveg 1 á grundvelli framlagðrar skipulags- og matslýsingar dags. 17. september 2026 og með hliðsjón af framkomnum athugasemdum og ábendingum á kynningartíma.

Bókun:

„Miðflokkurinn leggur áherslu á að í skipulagsferli vegna Dalvega 1. verði tryggt að bílastæðafjöldi á reitnum taki mið af þeirra starfsemi sem þar er fyrirhuguð og þörfum Kópavogsdals. Kópavogsdalur er vinsælt svæði til afþreyingar og lýðheilsu sem laðar að gesti úr öðrum hverfum, en margir þeirra þurfa að reiða sig á einkabíl. Til þess að lágmarka álag og koma í veg fyrir að ökutækjum sé lagt í íbúðargötur norðan dalsins eða á bílastæði hagsmunaaðila í nágrenninu, er mikilvægt að gert sé ráð fyrir fullnægjandi bílastæðafjölda við uppbygginguna."

Beitir Ólafsson

Bókun:

„Meirihlutinn tekur undir að mikilvægt sé að bílastæða- og aðkomumál séu með þeim hætti að þau anni umferð húsanna eins vel og hægt er.“

Hjördís Ýr Johnson, Andri Steinn Hilmarsson, Árnína Steinunn Kristjánsdóttir, Guðmundur Jóhann Jónsson og Kristinn Dagur Gissurarson.

Almenn erindi

06

Dalvegur 1. Breytt deiliskipulag. Skipulags- og matslýsing.

07

Silfursmári 1-7. Breytt aðalskipulag. Skipulags- og matslýsing.

Lögð fram að nýju að lokinni auglýsingu tillaga að sameiginlegri skipulags- og matslýsingu dags. 15. september 2026 vegna breytinga á Aðalskipulagi Kópavogs 2019-2040 og breytinga á deiliskipulagi Silfursmára 1-7 í samræmi við 1. mgr. 30. gr. og 1. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og laga um umhverfismat framkvæmda og áætlana nr. 111/2021. Skipulags- og matslýsing fjallar um fyrirhugaða breytingu á aðalskipulagi þar sem til stendur að hækka hámarks hæðir húsa í allt að 10 hæðir, efsta inndregin, og breytingar á deiliskipulagi þar sem fyrirhugað er að fjölga íbúðum, auka við heimilt byggingarmagn, breyta fyrirkomulagi og hæðum bygginga og bæta torgsvæði og tengingar við og um svæðið. Tillagan var kynnt frá 22. október til 10. nóvember 2026. Einnig eru lagðar fram athugasemdir sem bárust á kynningartíma og samantekt umsagna dags. 13. nóvember 2026.

Samþykkt með fimm atkvæðum Hjördísar Ýrar Johnson, Andra Steins Hilmarssonar, Árnínu Steinunnar Kristjánsdóttur, Guðmundar Jóhanns Jónssonar og Kristins Dags Gissurarsonar að fela skipulagsfulltrúa að hefja vinnu við gerð tillögu að breyttu aðal- og deiliskipulagi fyrir fyrir Silfursmára 1-7 á grundvelli framlagðrar skipulags- og matslýsingar dags. 15. september 2026 og með hliðsjón af framkomnum athugasemdum og ábendingum á kynningartíma.

Eydís Inga Valsdóttir og Hákon Gunnarsson sátu hjá við afgreiðslu málsins.

Bókun:

„Fulltrúi Viðreisnar styður við markmið skipulagsbreytinga í Silfursmára 1-7 þar sem, meðal annars, grænu svæði og opnum svæðum er gert hærra undir höfði.

Mikilvægt er að hafa í huga að íbúar hafa keypt húsnæði á svæðinu í góðri trú út frá gildandi skipulagi.

Nú eru eru komnar fram fjölmargar athugasemdir frá íbúum í nágrenninu og það þarf að tryggja að komið sé til móts við íbúa og að gerð sé grein fyrir því hvernig brugðist er við þessum athugasemdum með skýrum hætti til íbúa áður en skipulag er samþykkt.“

Hafsteinn Hrannar Ásgrímsson.

Bókun:

„Miðflokkurinn telur ljóst að sú skipulagsbreyting sem hér er lögð til muni hafa veruleg neikvæð áhrif á svæðið í heild nær hún fram að ganga óbreytt. Ef vinna á málið áfram er nauðsynlegt að taka skýrt tillit til áhyggja bæði íbúa og verslunareiganda á svæðinu.

Að því sögðu telur undirritaður að nýja skipulagstillagan feli í sér ýmsa jákvæða þætti og sé að mörgu leyti betur heppnuð en gildandi skipulag. Undirritaður myndi gjarnan vilja vinna áfram með grunn hugmyndir hennar, en þó með skýrum skilyrðum, gæta þarf hófs í auknu byggingarmagni, og ekki eigi að víkja frá hámarkshæð húsa samkvæmt eldra skipulagi með þeim háhýsum sem hér er sótt um. Breytingartillagan sem hér er sótt um felur í sér aukið byggingarmagn úr 22.160 fermetrum, ofan og neðanjarðar í 42.970 fermetra sem er um 94% aukning á byggingarmagni á lóðinni, einnig er sótt um að hámarkshæð húsa fari úr 5 hæðum í 10 hæðir.

Þá eru bílastæðamál á svæðinu þegar í miklum ólestri. Vanda þarf sérstaklega vel til verka við útfærslu þeirra svo skortur á bílastæðum verði ekki til þess að rýra gæði og notagildi svæðisins hvort það er á framkvæmdartíma eða til framtíðar.

Að lokum minnir fulltrúi Miðflokksins á að kjörnir fulltrúar starfa í umboði bæjarbúa. Við jafn stórar og afdrifaríkar ákvarðanir og hér um ræðir verði hagsmunir og raddir íbúa Kópavogs ávallt að vega þyngra en vinsemd og óskir framkvæmdaraðila.?

Beitir Ólafsson

Bókun:

„Fulltrúar Samfylkingar sitja hjá við afgreiðslu þessa máls og ítreka fyrri bókun við þetta mál. Við styðjum hóflega þéttingu byggðar, en boðaðar breytingar á aðal- og deiliskipulagi Silfursmára 1?7 ganga of langt. Fyrst voru boðaðar 11 hæðir, nú 10, þar sem nýlegt deiliskipulag heimilar mest fimm hæðir, og byggingarmagn nær tvöfaldast. Minnkun frá ítrustu tillögu réttlætir ekki þá aukningu sem eftir stendur.

Íbúar hafa mótmælt áformunum, ekki síst turnunum og áhrifum þeirra á útsýni, en jafnframt hinu aukna álagi sem að aukið byggingarmagn kemur til með að hafa í för með sér. Það vegur auk þess þungt að sami framkvæmdaaðili og seldi íbúðir í næsta nágrenni sem útsýnisíbúðir hyggist nú byggja fyrir það útsýni. Sveitarfélagið á ekki að greiða götu þess að framkvæmdaaðili hagnist tvisvar á sama útsýninu. Kaupendur máttu treysta því að gildandi skipulag stæði.

Undirrituð óska eftir því að umsögnum íbúa verði svarað efnislega og að fram komi hvernig tekið hafi verið tillit til þeirra, og að áhrif á útsýni frá nærliggjandi íbúðum og aukið álag á hverfið verði metin og þörf á auknu byggingarmagni rökstudd áður en tillaga verður auglýst.“

Eydís Inga Valsdóttir og Hákon Gunnarsson.

Bókun:

„Þær breytingar sem hér eru lagðar til á aðal- og deiliskipulagi eru að okkar mati til þess fallnar að styrkja betur svæðiskjarnann í Smáranum með betri byggð og torgsvæðum. Dregið hefur verið úr byggingarmagni frá fyrri tillögu frá því í ágúst 2025, eða um u.þ.b. 2500 fermetra frá fyrri útfærslu sem er um fjórðungi minni aukning í byggingarmagni en fyrri tillaga gerði ráð fyrir. Jafnframt er gert ráð fyrir að hús lækki m.v. fyrri tillögu, bæði hærri húsin tvö þar sem hæðum fækkar og lofthæð lækkar, en einnig þau hús sem standa næst núverandi byggð við Silfursmára.

Meirihlutinn telur mikilvægt að í skipulagsferlinu verði unnið með þau sjónarmið sem komu frá íbúum og hagaðilum á svæðinu á kynningartíma og að bílastæðamál verði rýnd sérstaklega, m.a. með það að markmiði að fjölga stæðum neðanjarðar.“

Hjördís Ýr Johnson, Andri Steinn Hilmarsson, Árnína Steinunn Kristjánsdóttir, Guðmundur Jóhann Jónsson og Kristinn Dagur Gissurarson.

Almenn erindi

08

Silfursmári 1-7. Breytt deiliskipulag. Skipulags- og matslýsing.

Fundarhlé hófst kl. 16:17, fundi fram haldið kl. 16:23

Almenn erindi

09

Dimmuhvarf 9. Breytt deiliskipulag.

Lögð fram að nýju að lokinni auglýsingu umsókn Guðmundar Gunnlaugssonar arkitekts dags. 9. júní 2026 f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 9 við Dimmuhvarf um breytingu á deiliskipulagi. Í breytingunni felst að lóðinni er skipt í tvær lóðir fyrir parhús í stað einbýlishúss, tilfærsla á byggingarreit og verður nýtingarhlutfallið 0,55. Þrjú bílastæði verða á hvorri lóð. Uppdrættir dags. 9. júní 2026, uppfærðir 7. júlí 2026 og 1. september 2026. Tillagan var auglýst frá 25. september til 8. nóvember 2026. Einnig eru lagðar fram athugasemdir sem bárust á kynningartíma.

Ester Anna Ármannsdóttir verkefnastjóri gerði grein fyrir erindinu.

Vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.

Almenn erindi

10

Fyrirspurn bæjarfulltrúa Eydísar Ingu Valsdóttur og varabæjarfulltrúa Hákonar Gunnarssonar um hljóðvarnir meðfram Reykjanesbraut

Lögð fram fyrirspun bæjarfulltrúa Eydísar Ingu Valsdóttur og varabæjarfulltrúa Hákonar Gunnarssonar dags. 11. nóvember 2026 um hljóðvarnir meðfram Reykjanesbraut. Óskað er upplýsinga um mögulegar hljóðvarnir, fyrirliggjandi hávaðamælingar og kortlagningu, aðkomu Vegagerðarinnar og fyrirhugaðar aðgerðir Kópavogsbæjar.

Vísað til umsagnar umhverfissviðs.

Bókun:

„Miðflokkurinn tekur undir sjónarmið Samfylkingarinnar um að hér sé um verulegt og brýnt hagsmunamál að ræða. Kópavogsbær og veghaldarar innan Kópavogs bera ríka skyldu til að framfylgja gildandi reglugerð um hljóðvist og hávaða frá umferðargötum. Nauðsynlegt er að ráðast í raunhæfar mælingar á hljóðstyrk við húsveggi íbúðarhúsa í og í nálægð við fjölfarnar umferðargötur, kortleggja stöðuna og fara í viðeigandi úrbætur í samstarfi við veghaldara þar sem það á við. Verkefnið sem slíkt er mikilvægt skref í þágu heilsu, vellíðanar og lífsgæða íbúa Kópavogs"

Beitir Ólafsson

Almenn erindi

11

Fyrirspurn bæjarfulltrúa Eydísar Ingu Valsdóttur og varabæjarfulltrúa Hákonar Gunnarssonar um Kársnesstíg

Lögð fram fyrirspurn bæjarfulltrúa Eydísar Ingu Valsdóttur og varabæjarfulltrúa Hákonar Gunnarssonar dags. 11. nóvember 2026 um Kársnesstíg. Óskað er upplýsinga um stöðu og framhald endurmats valkostagreiningar vegna göngu- og hjólastígs að Fossvogsbrú, þ.m.t. aðkomu óháðs aðila, tímasetningar, tengingu við Fossvogsbrú og kostnað.

Vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.

Fundarhlé hófst kl. 16:34, fundi fram haldið kl. 16:47