Fyrirspurn bæjarfulltrúa Jónasar Más Torfasonar um kaup á spjaldtölvum fyrir menntasvið
Málsnúmer: 26111481
Ferill máls
01
Bæjarráð - 3272. fundur
Frá bæjarfulltrúa Samfylkingar, dags. 11.11.2026, lögð fram fyrirspurn um kaup á spjaldtölvum fyrir menntasvið.
Vísað til umsagnar sviðsstjóra menntasviðs.
Bókun:
"Undirritaður tekur undir fyrirspurnina og óskar eftir því að við hana verði bætt upplýsingum um rekstrarkostnað og utanumhald spjaldtölvuvæðingarinnar. Í skýrslu um spjaldtölvuvæðingu grunnskóla Kópavogs frá árinu 2023 kom fram að skemmdir á spjaldtölvum og endurkaup vegna þeirra hefðu reynst mun umfangsmeiri en gert hafði verið ráð fyrir.
Óskað er eftir eftirfarandi upplýsingum, sundurliðuðum eftir árum frá 2014 eftir því sem kostur er:
- Fjöldi skemmdra spjaldtölva, sundurliðað eftir skólum og aldursstigum
- Kostnaður við viðgerðir og endurkaup vegna skemmda
- Fjöldi týndra og stolinna spjaldtölva og kostnaður vegna þeirra
- Greiðslur foreldra vegna skemmda eða týndra tækja
- Kostnaður við hugbúnað, leyfisgjöld og aukabúnað
- Launakostnaður og fjöldi stöðugilda vegna utanumhalds verkefnisins
- Tekjur af endursölu eldri spjaldtölva"
Einar Jóhannes Guðnason.
Bæjarráð samþykkir að bæta spurningunum við fyrirspurnina.