Bæjarráð - 3272. fundur
í bæjarstjórnarsal, Hábraut 2
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Andri Steinn Hilmarsson - formaður
- Hjördís Ýr Johnson - aðalfulltrúi
- Orri Vignir Hlöðversson - varaformaður
- Jónas Már Torfason - aðalfulltrúi
- Einar Jóhannes Guðnason - aðalfulltrúi
- María Ellen Steingrímsdóttir - áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Ásdís Kristjánsdóttir - bæjarstjóri
- Pálmi Þór Másson - bæjarritari
Ritari
- Pálmi Þór Másson
Dagskrá fundar
Frá bæjarstjóra, lögð fram tillaga að fjárhagsáætlun 2027 til fyrri umræðu.
Lögð fram breytingartillaga fulltrúa Samfylkingar við fjárhagsáætlun Kópavogsbæjar fyrir árið 2027. Bæjarstjórn samþykkir með 11 atkvæðum að vísa breytingartillögu Samfylkingarinnar til umfjöllunar bæjarráðs og síðari umræðu.
Lögð fram breytingartillaga fulltrúa Miðflokks við fjárhagsáætlun Kópavogsbæjar fyrir árið 2027. Bæjarstjórn samþykkir með 11 atkvæðum að vísa breytingartillögum Miðflokks til umfjöllunar bæjarráðs og síðari umræðu.
Bæjarstjórn samþykkir að vísa fjárhagsáætlun Kópavogsbæjar fyrir árið 2027 til síðari umræðu með 11 atkvæðum.
Umræður.
Gestir viku af fundi kl. 9:30.
Bæjarráð samþykkir að vísa framlögðum tillögum til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Fundarhlé hófst kl. 12:03, fundi fram haldið kl. 12:07
Gestir
- Guðrún Edda Finnbogadóttir, skrifstofustjóri umhverfissviðs - mæting: 08:15
- Ásthildur Helgadóttir sviðsstjóri umhverfisviðs - mæting: 08:15
- Sindri Sveinsson áhættu og fjárstýringarstjóri - mæting: 08:15
- Ingólfur Arnarson deildarstjóri greiningardeildar. - mæting: 08:15
02
Fyrirspurn bæjarfulltrúa Jónasar Más Torfasonar um stöðu starfshóps um áætlun um notkun snjalltækja
Frá sviðsstjóra menntasviðs, dags. 16.11.2026, lagt fram svar við fyrirspurn varðandi stöðu starfshóps um áætlun um notkun snjalltækja.
Lagt fram.
Umræður.
Frá sviðsstjóra velferðarsviðs, dags. 16.11.2026, lagt fram svar við fyrirspurn um þjónustusamninga Kópavogsbæjar við einkarekin úrræði fyrir börn með fjölþættan vanda.
Lagt fram og kynnt.
Umræður.
Frá umhverfissviði, dags. 17.11.2026, lögð fram drög að yfirlýsingu um leigu á atvinnuhúsnæði að Dalvegi 18.
Lagt fram og kynnt.
Gestir viku af fundi kl. 10:00.
Bæjarráð samþykkir framlagða yfirlýsingu um leigu á atvinnuhúsnæði að Dalvegi 18 og veitir heimild til að ganga frá leigusamningi um húsnæðið. Erindinu vísað til staðfestingar bæjarstjórnar.
Bæjarráð óskar eftir að notandaráði í málefnum fatlaðs fólks sé kynnt fyrirkomulagið og veiti umsögn.
Gestir
- Guðrún Edda Finnbogadóttir skrifstofustjóri umhverfissviðs - mæting: 09:46
- Jón Kristján Rögnvaldsson - mæting: 09:46
- Ingólfur Arnarson - mæting: 09:46
- Ásthildur Helgadóttir sviðsstjóri umhverfissviðs - mæting: 09:46
05
Tillaga að reglum um greiðsludreifingu gatnagerðargjalda vegna uppbyggingar í Vatsnendahvarfi
Frá umhverfissviði, dags. 17.11.2026, lögð fram tillaga að reglum um greiðsludreifingu gatnagerðargjalda vegna uppbyggingar í Vatnsendahvarfi.
Lagt fram og kynnt.
Gestur vék af fundi kl.9:58.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum framlögð drög að reglum.
Gestir
- Guðrún Edda Finnbogadóttir skrifstofustjóri - mæting: 09:50
Frá úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála, dags. 21.10.2026, lagður fram úrskurður nr. UUA2607016, kæra á ákvörðun byggingarfulltrúa Kópavogsbæjar frá 17. júlí 2026, um að heimila niðurrif eftirstandandi mannvirkja á lóð nr. 2 við Fannborg.
Lagt fram.
Gestur vék af fundi kl. 10:08
Gestir
- Guðrún Edda Finnbogadóttir, skrifstofustjóri umhverfissviðs - mæting: 10:01
Frá umhverfissviði, dags. 09.11.2026, lögð fram umsögn um tillögu bæjarfulltrúa Miðflokksins um áramótabrennu í Kópavogi.
Bæjarráð frestaði erindinu 12.11.2026 og sammældist um að skoða möguleikann á því að skapa fyrirkomulag sem býður upp á þátttöku úr samfélaginu um smærri áramótabrennur, t.d. eina í hverju póstnúmeri.
Umræður.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að fela bæjarstjóra að útfæra og kanna áhuga íbúa og félagasamtaka til nýs fyrirkomulags brennuhalds. Lagt sé upp með að kanna hvort brennur geti verði í hverju póstnúmeri.
Frá SSH, dags. 16.11.2026, lögð fram starfs- og fjárhagsáætlun SSH fyrir 2027.
Bæjarráð vísar erindinu til staðfestingar bæjarstjórnar.
Löðg fram uppfærð gjaldskrá fyrir árið 2027.
Lagt fram.
Bæjarráð vísar erindinu til staðfestingar bæjarstjórnar.
Frá umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis, lagt fram til umsagnar 313. mál -Stefnumótandi byggðaáætlun fyrir árin 2027-2041.
Lagt fram.
Frá velferðarnefnd Alþingis, lagt fram til umsagnar 286. mál - Stefna og aðgerðaáætlun gegn fátækt barna til ársins 2031.
Lagt fram.
Fundargerð í 21 lið.
Vísað til staðfestingar bæjarstjórnar.
Fundargerð í 11 liðum.
Lagt fram.
Fundargerð í 20 liðum.
Lagt fram.
15
Beiðni bæjarfulltrúa Einars Jóhannesar Guðnasonar um umræðu um erindisbréf menntaráðs og áheyrnarfulltrúa foreldra leikskólabarna
Frá bæjarfulltrúa Miðflokks, dags. 13.11.2026, lögð fram beiðni um umræðu í bæjarráði um nýlega samþykkt erindisbréf menntaráðs, minnisblað menntasviðs og val áheyrnarfulltrúa foreldra leikskólabarna.
Umræður.
Frá bæjarfulltrúa Samfylkingar, dags. 11.11.2026, lögð fram fyrirspurn um kaup á spjaldtölvum fyrir menntasvið.
Vísað til umsagnar sviðsstjóra menntasviðs.
Bókun:
"Undirritaður tekur undir fyrirspurnina og óskar eftir því að við hana verði bætt upplýsingum um rekstrarkostnað og utanumhald spjaldtölvuvæðingarinnar. Í skýrslu um spjaldtölvuvæðingu grunnskóla Kópavogs frá árinu 2023 kom fram að skemmdir á spjaldtölvum og endurkaup vegna þeirra hefðu reynst mun umfangsmeiri en gert hafði verið ráð fyrir.
Óskað er eftir eftirfarandi upplýsingum, sundurliðuðum eftir árum frá 2014 eftir því sem kostur er:
- Fjöldi skemmdra spjaldtölva, sundurliðað eftir skólum og aldursstigum
- Kostnaður við viðgerðir og endurkaup vegna skemmda
- Fjöldi týndra og stolinna spjaldtölva og kostnaður vegna þeirra
- Greiðslur foreldra vegna skemmda eða týndra tækja
- Kostnaður við hugbúnað, leyfisgjöld og aukabúnað
- Launakostnaður og fjöldi stöðugilda vegna utanumhalds verkefnisins
- Tekjur af endursölu eldri spjaldtölva"
Einar Jóhannes Guðnason.
Bæjarráð samþykkir að bæta spurningunum við fyrirspurnina.
17
Fyrirspurn bæjarfulltrúa Jónasar Más Torfasonar um fjárhagslega áhættu og endurheimtur vegna framkvæmda við Barnaskóla Kársness
Frá bæjarfulltrúa Samfylkingar, dags. 17.11.2026, lögð fram fyrispurn í 15 liðum varðandi Barnaskóla Kársness.
Vísað til umsagnar sviðsstjóra umhverfissviðs.
Frá bæjarfulltrúa Viðreisnar, dags. 17.11.2026, lagðar fram breytingartillögur við fjárhagsáætlun 2027.
Bæjarráð vísar tillögunum til afgreiðslu bæjarstjórnar.