Menningar- og mannlífsnefnd - 12. fundur
í bæjarstjórnarsal, Hábraut 2
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Elísabet Berglind Sveinsdóttir - formaður
- Jónas Skúlason - aðalfulltrúi
- Helga Hauksdóttir - aðalmaðurBoðaði forföllKristín Hermannsdóttir - varamaðurSat fundinn í staðinn
- Margrét Vilborg Tryggvadóttir - aðalfulltrúi
- Indriði Ingi Stefánsson - aðalfulltrúi
- Guðmundur Gunnarsson - aðalmaðurBoðaði forföllSoumia I. Georgsdóttir - vara áheyrnarfulltrúiSat fundinn í staðinn
Starfsmenn
- Vilborg Soffía Karlsdóttir
Ritari
- Soffía Karlsdóttir
Dagskrá fundar
Samkvæmt bókun menningar- og mannlífsnefndar, bæjarráðs og bæjarstjórnar um nýja menningarmiðstöð í Smáralind var gerð þarfagreining á bókasafni í efri byggðum sem hér er lögð fram.
Menningar- og mannlífsnefnd þakkar Ármanni Halldórssyni deildarstjóra umhverfissviðs kynningu á tillögu að staðsetningu menningarkjarna/bókasafns í efri byggðum út frá þarfagreiningu. Nefndin fagnar niðurstöðunni og samþykkir hana fyrir sitt leyti og vísar henni til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar. Nefndin telur að með nýrri menningarmiðstöð í Smáralind og nýjum menningarkjarna/bókasafni í Kórnum sé stuðlað að jöfnu aðgengi allra íbúa að menningarstarfsemi í Kópavogi, eins og menningarstefna bæjarins kveður á um. Nefndin leggur áherslu á aðkomu menningar- og mannlífsnefndar og starfsmanna menningarmála bæjarins að áframhaldandi mótun og þróun verkefnisins.
Gestir
- Ármann Halldórsson deildarstjóri umhverfissviðs - mæting: 08:15
Lísa Z. Valdimarsdóttir forstöðumaður kynnir starfsemi Bókasafns Kópavogs og svarar fyrirspurnum.
Menningar- og mannlífsnefnd þakkar Lísu Z. Valdimarsdóttur fyrir greinargóða og upplýsandi kynningu á starfsemi bókasafnsins og fagnar þeirri fjölbreyttu dagskrá sem safnið hefur upp á að bjóða, sérstaklega hvað varðar fjölmenningarlega viðburði. Einnig lýsir nefndin sérstakri ánægju með gríðarlega aukningu gesta frá ári til árs.
Gestir
- Lísa Z. Valdimarsdóttir forstöðumaður Bókasafns Kópavogs - mæting: 09:00
Axel Ingi Árnason forstöðumaður kynnir starfsemi Salarins og svarar fyrirspurnum.
Menningar- og mannlífsnefnd þakkar Axel Inga Árnasyni fyrir greinargóða og upplýsandi kynningu á starfsemi Salarins og fagnar þeirri fjölbreyttu dagskrá sem framundan er. Nefndin lýsir einnig sérstakri ánægju með aukna miðasölu og fjölgun gesta.
Gestir
- Axel Ingi Árnason forstöðumaður Salarins - mæting: 09:20
Brynja Sveinsdóttir forstöðumaður kynnir starfsemi Náttúrusafns Kópavogs og svarar fyrirspurnum.
Menningar- og mannlífsnefnd þakkar Brynju Sveinsdóttur fyrir greinargóða og upplýsandi kynningu á starfsemi Náttúrusafns og fagnar þeirri fjölbreyttu og fjölskylduvænu dagskrá sem safnið hefur upp á að bjóða. Einnig vill nefndin þakka forstöðumanni og starfsfólki fyrir einstaka útsjónasemi við öflun styrkja. Þá lýsir nefndin sérstakri ánægju með gríðarlega aukningu gesta frá ári til árs.
Gestir
- Brynja Sveinsdóttir forstöðumaður Náttúrufræðistofu - mæting: 09:40
Brynja Sveinsdóttir forstöðumaður kynnir starfsemi Gerðarsafns og svarar fyrirspurnum.
Menningar- og mannlífsnefnd þakkar Brynju Sveinsdóttur fyrir greinargóða og upplýsandi kynningu á starfsemi Gerðarsafns og fagnar þeirri fjölbreyttu dagskrá sem safnið hefur upp á að bjóða. Einnig vill nefndin lýsa sérstakri ánægju með gríðarlega aukningu gesta á undanförnum árum.
Gestir
- Brynja Sveinsdóttir forstöðumaður Náttúrufræðistofu - mæting: 09:55