Menningar- og þróunarráð - 10. fundur
í Fannborg 2, Bæjarráðsherbergi
Mætt til fundar
Ritari
- Arna Schram
Dagskrá fundar
Ingólfur Arnarson fjármálastjóri fór yfir stöðu lista- og menningarsjóðs.

Drög að nýjum úthlutunarreglum lögð fram.

Afgreiðslu frestað til næsta fundar. Bæjarlögmanni falið að fara yfir reglurnar.

Umsögn bæjarlögmanns liggur ekki fyrir og málinu því frestað.

Umsögn nefndarinnar: Á fundi um ferðamál í Kópavogi sem menningar- og þróunarráð hélt með hagsmunaaðilum í júní sl. kom fram eindreginn vilji um að koma upp tjaldstæði í Kópavogi. Það er því fagnaðarefni að skriður er kominn á málið og fyrir liggja tillögur um staðsetningu. Ráðið telur þó að áður en staðsetning er ákvörðuð þurfi að liggja fyrir þarfagreining, þ.e. hvers konar ferðamenn muni sækja tjaldstæði í Kópavogi sem og greining á kostnaði og rekstri. Menningar- og þróunarráð vill að m.a. verði skoðað hvaða möguleikar eru á sérstöðu tjaldstæðis í Kópavogi sem hafi aðdráttarafl fyrir á þá innlendu jafnt sem erlendu ferðamenn sem við viljum laða að bænum. Jafnframt þarf að skoða vel hvernig tjaldgestir geti sem greiðlegast nýtt sér þá þjónustu sem fyrir er í bænum. Brýnt er að slík greining fari fram hið fyrsta í tengslum við stefnumótun í ferðamálum svo að mögulegt verði að koma upp tjaldstæði eins fljótt og auðið er í samráði við þau íbúðahverfi sem kunna að koma við sögu.

Ákveðið að auglýsa eftir ljóðum. Starfsmanni falið að halda utan um það.

Ársskýrsla Gerðarsafns lögð fram.

Úthlutun hafnað þar eð styrkúthlunum ársins er lokið.

Hátíðin verður haldin laugardaginn 22. október í Molanum og á Spot.