Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Málefni Gerðarsafns

Málsnúmer: 1104012

Ferill máls

01

Lista- og menningarráð - 89. fundur

Farið yfir stöðu verslunarrýmis og veitingasölu í Gerðarsafni

Lista- og menningarráð þakkar kynningu forstöðumanns menningarmála.

02

Lista- og menningarráð - 72. fundur

Kristín Dagmar Jóhannesdóttir, forstöðumaður Gerðarsafns, fer yfir ýmis mál safnsins, svo sem innkaupastefnu og fleira. Kristín Dagmar sendir fundargögn fyrir fundinn.

Ráðið þakkar Kristínu Dagmar fyrir greinargóða yfirferð á málefnum Gerðarsafns og leggur til að funda með henni aftur sem fyrst í haust.

03

Lista- og menningarráð - 46. fundur

Forstöðumaður Listhúss greinir frá því að viðræður standi við aðila sem hafi svarað auglýsingu um reksturinn í vor og sýnt áhuga á rekstrinum. Vonir standa til að hægt verði að ganga frá ýmsum lausum endum svo hægt verði að opna þar veitingastofu sem fyrst.

04

Lista- og menningarráð - 45. fundur

Kristín Dagmar Jóhannesdóttir, listrænn stjórnandi, kynnir sýningardagskrá og verkefni framundan. Málefni kaffistofu Gerðarsafns einnig rædd.

Lista- og menningarráð þakkar listrænum stjórnanda fyrir kynninguna.

05

Lista- og menningarráð - 38. fundur

Framhald umræðu.

Undirbúningsvinna verði hafin fyrir að bjóða rekstur kaffistofunnar út sem fyrst.

06

Lista- og menningarráð - 37. fundur

Hugmyndir kynntar um að bjóða út rekstur kaffistofunnar og leigja út Gerðarsafn undir veislur.

Umræðu verður framhaldið á næsta fundi.

07

Lista- og menningarráð - 26. fundur

Tillaga Guðbjargar Kristjánsdóttur lögð fram um kaup á útsaumuðum skermi eftir Barböru Árnason á 350.000 kr. Telma Haraldsdóttir sérfræðingur hjá Gerðarsafni situr fundinn undir þessum lið.

Ráðið samþykkir tillögu forstöðumanns Gerðarsafns enda samræmist hún söfnunar - og sýningarstefnu Gerðarsafns.

08

Lista- og menningarráð - 23. fundur

Rætt um að bæta þurfi merkingar við menningartorfuna.

Ráðið felur formanni að ræða við skipulagsstjóri um mögulega úfærslu.

09

Lista- og menningarráð - 22. fundur

Framhald umræðu um styrk til Gerðarsafns til að efna til teiknihátíðar í samstarfi við Árnastofnun og Myndlistaskólann í Reykjavík. Tilefnið er sýning á Íslensku teiknibókinni.

Ráðið samþykkir að veita 550 þúsund krónum til þessa verkefnis.

10

Lista- og menningarráð - 16. fundur

Ákveðið að ræða við forstöðumann um að veitingaaðilar sjái um kaffistofuna á opnunum safnsins.

11

Lista- og menningarráð - 15. fundur

Guðbjörg Kristinsdóttir, forstöðumaður Gerðarsafns, greindi frá því að safninu stæði til boða að kaupa verk eftir Gerði Helgadóttur og Barböru Árnason.

Ráðið samþykkir að kaupa verk eftir Barböru Árnason.

12

Lista- og menningarráð - 10. fundur

Tillögur lagðar fram um nýtingu rýmis sem losnar vegna kaffistofunnar.

Ljóst er að kaffitería Gerðarsafns verður lögð niður frá og með næstu áramótum. Ráðið ætlar að fara í hugmyndavinnu að nýtingu þess rýmis sem losnar með það að markmiði að auka fjölbreytileika safnsins og aðdráttarafl þess.

13

Lista- og menningarráð - 9. fundur

Ráðið upplýst um það að kaffistofu Gerðarsafns verði lokað um áramótin. Reksturinn var boðinn út á sínum tíma en enginn tilboð bárust í hann.

14

Lista- og menningarráð - 2. fundur

Guðbjörg Kristinsdóttir fer fram á heimild til þess að keyptar verði þrjár höggmyndir eftir Magnús Á. Árnason, á alls 130.000 kr.

Ráðið samþykkir þetta.

15

Menningar- og þróunarráð - 11. fundur

Guðbjörg Kristjánsdóttir, forstöðumaður Gerðarsafns, fór yfir málefni safnsins.

<DIV&gt;<DIV&gt;</DIV&gt;</DIV&gt;

16

Menningar- og þróunarráð - 10. fundur

Ársskýrsla Gerðarsafns lögð fram.

<DIV&gt;</DIV&gt;

17

Menningar- og þróunarráð - 8. fundur

<DIV&gt;<P class=MsoNormal 10pt?? 0cm MARGIN:&gt;<SPAN Calibri?? mso-hansi-font-family: Calibri; mso-ascii-font-family: 16pt; FONT-SIZE: 115%; LINE-HEIGHT:&gt;<FONT face=Calibri&gt;Ráðið óskar eftir því að framkvæmdaráð upplýsi um það hver staðan sé á fyrirhuguðu útboði rekstursins.<?xml:namespace prefix = o /&gt;<o:p&gt;</o:p&gt;</FONT&gt;</SPAN&gt;</P&gt;</DIV&gt;

18

Menningar- og þróunarráð - 2. fundur

Tillaga hefur verið lögð fram um að aldraðir og öryrkjar fái frítt inn á safnið auk námsmanna gegn framvísun námsmannaskírteinis.

<DIV&gt;<DIV&gt;<SPAN style=""LINE-HEIGHT: 115%; FONT-FAMILY: ""Calibri"",""sans-serif""; FONT-SIZE: 11pt; mso-ascii-theme-font: minor-latin; mso-fareast-font-family: Calibri; mso-fareast-theme-font: minor-latin; mso-hansi-theme-font: minor-latin; mso-bidi-font-family: ""Times New Roman""; mso-bidi-theme-font: minor-bidi; mso-ansi-language: IS; mso-fareast-language: EN-US; mso-bidi-language: AR-SA""&gt;Tillagan samþykkt. Starfsmanni falið að&nbsp;koma henni á framfæri með&nbsp;fréttatilkynningu.</SPAN&gt;</DIV&gt;</DIV&gt;