Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Menntaráð - 76. fundur

Fjarfundur - Microsoft Teams

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Margrét Friðriksdóttir - formaður
  • Helgi Magnússon - aðalmaður
  • Guðmundur Gísli Geirdal - aðalmaður
    Boðaði forföll
    Guðmundur Gísli Geirdal - varamaður
    Sat fundinn í staðinn
  • Ingibjörg Auður Guðmundsdóttir - aðalmaður
  • Ragnhildur Reynisdóttir - aðalmaður
  • Birkir Jón Jónsson - aðalmaður
  • Sigurbjörg Erla Egilsdóttir - áheyrnarfulltrúi
  • Kristgerður Garðarsdóttir - kennarafulltrúi
  • Jóhannes Birgir Jensson - foreldrafulltrúi
  • Börkur Vígþórsson - aðalmaður
    Boðaði forföll
    Börkur Vígþórsson - vara áheyrnarfulltrúi
    Sat fundinn í staðinn
  • Erlendur H. Geirdal - aðalmaður

Starfsmenn

  • Ragnheiður Hermannsdóttir - starfsmaður nefndar
  • Anna Birna Snæbjörnsdóttir - Sviðsstjóri menntasviðs

Ritari

  • Ragnheiður Hermannsdóttir

Dagskrá fundar

01

Frístundastyrkir Kópavogs

Svar við fyrirspurn frá Sigurbjörgu Erlu Egilsdóttur, áheyrnarfulltrúa Pírata um frístundastyrki lagt fram.

Jón Júlíusson, deildarstjóri íþróttadeildar kom á fund menntaráðs og gerði grein fyrir svari við fyrirspurn um frístundastyrki.

02

Öryggi á skólalóðum

Farið yfir niðurstöður á vinnu vegna breytinga á kastala á skólalóð Snælandsskóla.

Lagt fram.

03

Skemmtilegri skólalóðir.

Lögð fram tillaga um framkvæmdir á skólalóðum grunnskóla 2021 frá sviðsstjórum mennta- og umhverfissviðs.

Menntaráð samþykkir með öllum greiddum atkvæðum tillögu um framkvæmdir á skólalóðum grunnskóla 2021 með þeim fyrirvara að leitað verði leiða við að nauðsynlegar öryggisúrbætur á kastala við Snælandsskóla verði ekki fjármagnaðar af úthlutun til Skemmtilegri skólalóða.

04

Menntasvið-skólaþjónusta, starfsreglur sérdeilda, sérúrræða og sérfræðinga

Starfsreglur sérdeilda við grunnskóla Kópavogs ásamt inn- og útskriftareglum lagðar fram.

Menntaráð samþykkir með öllum greiddum atkvæðum starfsreglur sérdeilda við grunnskóla Kópavogs, inn- og útskriftarreglur fyrir einhverfudeildir í Álfhóls- og Salaskóla sem og inn- og útskriftarreglur fyrir sérdeild í Kópavogsskóla og inn- og útskriftarreglur í sérdeild Snælandsskóla.

05

Hinsegin fræðsla í grunnskólum Kópavogs fyrirspurn frá Erlendi H. Geirdal

Svar við fyrirspurn lagt fram.

Lagt fram.

06

Álfhólsskóli, húsnæðismál

Sigrún Bjarnadóttir, skólastjóri Álfhólsskóla sagði frá stöðu mála vegna rakaskemmda og myglu í skólahúsnæðinu.