Skemmtilegri grunnskólalóðir
Málsnúmer: 1512172
Ferill máls
01
Menntaráð - 92. fundur
Tillaga um framkvæmdir á skólalóðum grunnskóla sumarið 2022 lögð fram.
Menntaráð samþykkir tillögu um framkvæmdir á skólalóðum 2022 með öllum greiddum atkvæðum og áréttar af því tilefni að í jafnréttisáætlun Kópavogsbæjar er fjallað um jafnréttissjónarmið í skipulagsmálum þar sem áhersla er lögð á að skapa gott og öruggt umhverfi sem mætir þörfum ólíkra hópa og tryggja aðgengi fyrir alla, sérstaklega aðgengi fatlaðra. Ennfremur er í nýrri menntastefnu bæjarins fjallað um aðstöðu sem styður við nám og leik, þar sem áhersla er á aukið samráð við börn um mótun umhverfis og aðstöðu til náms og leikja. Barnasáttmáli Sameinuðu þjóðanna kveður jafnframt á um að börn eigi rétt á því að tjá sig frjálslega um öll málefni sem hafa áhrif á líf þeirra. Fullorðnir eiga að hlusta og taka mark á þeim.
02
Menntaráð - 76. fundur
Lögð fram tillaga um framkvæmdir á skólalóðum grunnskóla 2021 frá sviðsstjórum mennta- og umhverfissviðs.
Menntaráð samþykkir með öllum greiddum atkvæðum tillögu um framkvæmdir á skólalóðum grunnskóla 2021 með þeim fyrirvara að leitað verði leiða við að nauðsynlegar öryggisúrbætur á kastala við Snælandsskóla verði ekki fjármagnaðar af úthlutun til Skemmtilegri skólalóða.
03
Menntaráð - 57. fundur
Tillaga að framkvæmdum á skólalóðum fyrir árið 2020 lögð fram.
Friðrik Baldursson, garðyrkjustjóri kynnti framkvæmdir síðustu 4 ára á skólalóðum og endurmat á þeim.
Menntaráð samþykkir fyrir sitt leyti, með öllum greiddum atkvæðum tillögu um ráðstöfun fjármagns til verkefnisins "Skemmtilegri skólalóðir" samkvæmt fram lögðu verkefni Önnu Birnu Snæbjörnsdóttur, sviðstjóra menntasviðs og Steingríms Haukssonar, sviðstjóra umhverfissviðs.
04
Menntaráð - 37. fundur
Lagt fram minnisblað um framkvæmdir frá síðasta ári og fyrirhugaðar framkvæmdir.
Menntaráð samþykkir fyrir sitt leyti með öllum greiddum atkvæðum tillögu um ráðstöfun fjármagns til verkefnisins "Skemmtilegri skólalóðir" samkvæmt fram lögðu erindi Friðriks Baldurssonar, garðyrkjustjóra Kópavogs.
05
Menntaráð - 23. fundur
Lagt fram minnisblað um framkvæmdir frá síðasta ári og fyrirhugaðar framkvæmdir á því næsta.
Menntaráð samþykkir fyrir sitt leyti tillögu að framkvæmdum á skólalóðum 2018 með öllum greiddum atkvæðum.
Gísli Baldvinsson vék af fundi kl. 18:55.
06
Menntaráð - 6. fundur
Kynning á fyrirhuguðum framkvæmdum á skólalóðum við grunnskóla bæjarins á árinu.
Friðrik Baldursson, garðyrkjustjóri kynnti framkvæmdir á skólalóðum.
07
Bæjarráð - 2860. fundur
Frá garðyrkjustjóra, dags. 20. febrúar, lagt fram erindi um framkvæmdir á skólalóðum 2017 þar sem lagt er til að 50 m.kr. fjárveiting á gjaldalið 32164 Gunnskólar - lóðir, endurbætur verði ráðstafað með þeim hætti sem fram kemur í erindinu.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum framlagt erindi um ráðstöfun fjár vegna framkvæmda á skólalóðum 2017.
08
Skólanefnd - 104. fundur
Greinargerð starfshóps um skemmtilegri skólalóðir í Kópavogi ásamt tillögum lögð fram. $line$$line$Bæjarráð samþykkti á grundvelli hennar að á árinu 2016 verði ráðist í endurbætur á skólalóðum Kópavogsskóla, Kársnesskóla og Salaskóla.
Skólanefnd lýsir ánægju sinni með skýrsluna um Skemmtilegar skólalóðir í Kópavogi. Skýrsla og samþykkt bæjarráðs í kjölfar hennar kynnt.
09
Bæjarráð - 2817. fundur
Frá sviðsstjóra menntasviðs, sviðsstjóra umhverfissviðs og garðyrkjustjóra, dags. 12. apríl, lögð fram greinargerð starfshóps um skemmtilegri skólalóðir í Kópavogi ásamt tillögum.
Bæjarráð samþykkir á grundvelli tillagna í framlagðri greinargerð að á árinu 2016 verði ráðist í endurbætur á skólalóðum Kópavogsskóla, Kársnesskóla og Salaskóla.
10
Umhverfis- og samgöngunefnd - 74. fundur
Garðyrkjustjóri Kópavogsbæjar kynnir verkefnið skemmtilegri skóla- og leikskólalóðir.
Kynnt.
11
Íþróttaráð - 57. fundur
Undir þessum dagskrárlið sat Garðyrkjustjóri Kópvavogs fundinn en hann stýrir verkefninu.
Garðyrkjustóri kynnti verkefnið "Skemmtilegri skólalóðir" fyrir fundarmönnum og gerði grein fyrir næstu skrefum í því.$line$Eftir almennar umræður og fyrirspurnir var Garðyrkjusjóra þökkuð kynningin.
12
Skólanefnd - 99. fundur
Garðyrkjustjóri Kópvavogs kemur og kynnir verkefnið.
Friðrik Baldursson garðyrkjustjóri kom og sagði frá verkefninu skemmtilegri skólalóðir.