Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Menntaráð - 34. fundur

í Kársnesskóla

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Margrét Friðriksdóttir - formaður
  • Guðmundur Gísli Geirdal - aðalmaður
  • Helgi Magnússon - aðalmaður
  • Ingibjörg Auður Guðmundsdóttir - aðalmaður
  • Ragnhildur Reynisdóttir - aðalmaður
  • Pétur Hrafn Sigurðsson - aðalmaður
    Boðaði forföll
    Pétur Hrafn Sigurðsson - varamaður
    Sat fundinn í staðinn
  • Helga María Hallgrímsdóttir - aðalmaður
  • Sigurbjörg Erla Egilsdóttir - áheyrnarfulltrúi
  • Kristgerður Garðarsdóttir - kennarafulltrúi
  • Þorvar Hafsteinsson - aðalmaður
    Boðaði forföll
    Þorvar Hafsteinsson - vara foreldrafulltrúi
    Sat fundinn í staðinn
  • Björg Baldursdóttir - fulltrúi skólastjóra

Starfsmenn

  • Ragnheiður Hermannsdóttir
  • Anna Birna Snæbjörnsdóttir

Ritari

  • Ragnheiður Hermannsdóttir

Menntaráð þakkar Björgu Baldursdóttur, skólastjóra Kársnesskóla góðar veitingar og áhugaverða kynningu á skólastarfinu.

Dagskrá fundar

01

TUFF verkefnið

Kynning á verkefni.

Verkefnastjórn Tuff - verkefnisins, Dr Shamender Talwar og Hrund Hafsteinsdóttir frá TUFF, Hekla Hannibalsdóttir og Amanda K. Ólafsdóttir frá menntasviði komu á fund menntaráðs og kynntu verkefnið.

02

Mat og eftirlit sveitastjórna með skólastarfi

Máli frestað frá síðasta fundi.

Niðurstöður viðhorfakannana meðal starfsfólks og nemenda í grunnskólum Kópavogs fyrir skólaárið 2017-2018 lagðar fram. Hvetja þarf starfsfólk skólanna til að taka þátt í könnuninni og svara með fullnægjandi hætti svo niðurstöður verði marktækari og nýtist stjórnendum betur til að styrkja starfsumhverfi skólanna.

03

Arnarskóli-mat og eftilit

Starfsáætlun og innritunarreglur skólans lagðar fram.

Menntaráð samþykkir með öllum greiddum atkvæðum starfsáætlun og innritunarreglur Arnarskóla.

04

Starfsáætlun Waldorfskóla

Starfsáætlun skólans lögð fram.

Menntaráð samþykkti starfsáætlun Waldorfsskólans með öllum greiddum atkvæðum.

05

Ytra mat á grunnskólum - Waldorfskólinn valinn

Yfirlit yfir stöðu umbóta í kjölfar ytra mats á Waldorfsskólanum í Lækjarbotnum lagt fram.

Lagt fram.

06

Starfsáætlun Tröð

Starfsáætlun Traðar lögð fram.

Starfsáætlun Traðar samþykkt með öllum greiddum atkvæðum.

07

Ungmennaráð Kópavogs 2018

Kynningarbréf frá Ungmennaráði Kópavogs lagt fram.

Menntaráð fagnar því að ungmennaráð hafi tekið til starfa.