Mat og eftirlit sveitastjórna með skólastarfi
Málsnúmer: 14011128
Ferill máls
01
Menntaráð - 35. fundur
Svar fyrir fyrirspurn fulltrúa Samfylkingar í menntaráði frá 2. október 2018 lagt fram.
Donata Honkowicz-Bukowska, kennsluráðgjafi og Hekla Hannibalsdóttir, verkefnastjóri kynntu hvernig Kópavogsbær skipuleggur og vinnur að stuðningi við nemendur með annað móðurmál en íslensku.
Menntaráð Kópavogs beinir því til Menntamálastofnunar að stofnunin bæti sem allra fyrst úr skorti á viðeigandi námsefni fyrir börn og unglinga með annað móðurmál en íslensku. Mikilvægt er að bætt verði úr, þar sem rannsóknir sýna að skorturinn veldur meðal annars ótímabæru brottfalli úr skóla.
Svar við fyrirspurn var lagt fram. Pétur Hrafn Sigurðsson, fulltrúi Samfylkingar, þakkar svarið.
02
Menntaráð - 34. fundur
Máli frestað frá síðasta fundi.
Niðurstöður viðhorfakannana meðal starfsfólks og nemenda í grunnskólum Kópavogs fyrir skólaárið 2017-2018 lagðar fram. Hvetja þarf starfsfólk skólanna til að taka þátt í könnuninni og svara með fullnægjandi hætti svo niðurstöður verði marktækari og nýtist stjórnendum betur til að styrkja starfsumhverfi skólanna.
03
Menntaráð - 33. fundur
Nemenda- og starfsmannakönnun fyrir skólaárið 2017-2018 lögð fram.
Máli frestað til næsta fundar.
04
Menntaráð - 31. fundur
Lykiltölur í grunnskóla- og frístundastarfi 2018 lagðar fram.
Lykiltölur lagðar fram.
05
Menntaráð - 19. fundur
Meginniðurstöður viðhorfakannanna sem lagðar voru fyrir nemendur og foreldra skólaárið 2016 -2017 kynntar og viðbrögð við þeim.
Menntaráð felur menntasviði að kanna möguleika á þjónustu dægradvala í júní og kostnaðargreina þá þjónustu.
06
Menntaráð - 17. fundur
Lykiltölur í skólastarfi lagðar fram.
Lykiltölur lagðar fram.
07
Menntaráð - 12. fundur
Niðurstöður samræmdra prófa sem frestað var á fundi ráðsins 9. júní kynntar.
Niðurstöður samræmdra prófa 2016 ræddar.
08
Menntaráð - 11. fundur
Skýrsla um samræmdpróf í Kópavogi 2016 lögð fram.
Máli frestað til næsta fundar.
09
Menntaráð - 1. fundur
Lagðar fram aukaspurningar fyrir Kópavog inn í foreldrakönnun í grunnskólunum.
Menntaráð samþykkir fyrir sitt leyti aukaspurningar með áorðnum breytingum.
10
Skólanefnd - 110. fundur
Lykiltölur um skólastarf og niðurstöður starfsmannakönnunar lagðar fram aftur en málinu var frestað á síðasta fundi nefndar.
Skólanefnd þakkar fyrir góða samantekt á lykiltölum.
Starfsmannkönnun og greinargerðir skólanna ræddar. Skólanefnd þakkar skólum góðar greinargerðir. Skólanefnd mun fylgjast með frekari greiningu og vinnu við að styðja skólanna í þeim þáttum sem úrbóta er þörf.
11
Skólanefnd - 109. fundur
Lykiltölur um skólastarf lagðar fram. Jafnframt er skýrsla um niðurstöður starfsmannakönnunnar í grunnskólum Kópavogs lögð fram.
Frestað til næsta fundar.
12
Skólanefnd - 108. fundur
Skýrsla um könnun á viðhorfi nemenda og skýrsla um samræmd próf lagðar fram.
Skýrslur lagðar fram til kynningar.
13
Skólanefnd - 97. fundur
Máli frestað frá síðasta fundi. Foreldrakönnun lögð fram.
Farið var yfir einstaka þætti foreldrakönnunar og þeir ræddir. Ákveðið var að skoða niðurstöður aftur þegar niðurstöður nemendakönnunar og starfsmannakönnunar liggja fyrir í haust.$line$Fulltrúi foreldra í skólanefnd Arnar Björnsson lagði fram eftirfarandi bókun: "Óskað er eftir því að fá samantekt á hvernig innleiðingu á aðalnámskrá hefur verið háttað í grunnskólum Kópavogs með áherslu á hlutverk foreldra í grunnskólastarfi."
14
Skólanefnd - 96. fundur
Viðhorfskönnun meðal foreldra kynnt.
Máli frestað til næsta fundar.
15
Skólanefnd - 93. fundur
Lykiltölur voru lagðar fram á síðasta fundi skólanefndar og umræðu um þær frestað.
Lykiltölur ræddar.
16
Skólanefnd - 92. fundur
Lykiltölur lagðar fram.
Lykiltölur lagðar fram og teknar til umræðu á næsta fundi nefndar.
17
Skólanefnd - 91. fundur
Yfirlit yfir lagalega þætti lagt fram.
Lagalegir þættir við mat og eftirlit með skólastarfi kynntir og umræður sköpuðust.
18
Skólanefnd - 90. fundur
Skipulag á mati og eftirliti lagt fram til umræðu.
Formaður skólanefndar Margrét Friðriksdóttir kynnti hlutverk og ábyrgð skólanefndar varðandi mat og eftirlit sveitarstjórna með skólastarfi.
19
Skólanefnd - 84. fundur
Niðurstöður samræmdra könnunarprófa í Kópavogi lagðar fram.
Niðurstöður kynntar. Skólanefnd óskar grunnskólum bæjarins til hamingju með árangurinn.
20
Skólanefnd - 76. fundur
Lykiltölur lagðar fram.
Farið yfir lykiltölur og þær ræddar.
21
Skólanefnd - 68. fundur
Niðurstöður samræmdra prófa í grunnskólum Kópavogs lagðar fram.$line$Tillaga að breytingum á viðmiðum fyrir starfsáætlun grunnskóla lögð fram.
Skólanefnd fagnar niðurstöðum samræmdra prófa í grunnskólum Kópavogs. Skólanefnd samþykkir breytingar á viðmiðum fyrir starfsáætlun grunnskóla.