Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Menntaráð - 20. fundur

í Smáraskóla

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Margrét Friðriksdóttir - formaður
  • Ólafur Örn Karlsson - aðalmaður
  • Helgi Magnússon - aðalmaður
  • Ragnhildur Reynisdóttir - aðalmaður
  • Hreiðar Oddsson - aðalfulltrúi
  • Gísli Baldvinsson - aðalmaður
    Boðaði forföll
    Gísli Baldvinsson - varamaður
    Sat fundinn í staðinn
  • Bergljót Kristinsdóttir - aðalfulltrúi
  • Helga María Hallgrímsdóttir - áheyrnarfulltrúi
  • Kristgerður Garðarsdóttir - kennarafulltrúi
  • Ágúst Frímann Jakobsson - fulltrúi skólastjóra
  • Þorvar Hafsteinsson - foreldrafulltrúi

Starfsmenn

  • Ragnheiður Hermannsdóttir
  • Anna Birna Snæbjörnsdóttir

Ritari

  • Ragnheiður Hermannsdóttir

Menntaráð þakkar Ingibjörgu Hannesdóttur, kennara í Smáraskóla, góða kynningu á stöðu þróunarverkefnis sem unnið er í samstarfi við Listasafn Íslands og Háskólann í Reykjavík. Jafnframt þakkar ráðið Friðþjófi Helga Karlssyni, skólastjóra Smáraskóla, góðar móttökur og veitingar.

Dagskrá fundar

01

Grunnskóladeild-íslenska sem annað mál-reglur og ferlar

Kynning á fyrirkomulagi kennslu nemenda með annað móðurmál en íslensku og stuðningi við skóla.

Hekla Hannibalsdóttir, verkefnastjóri á grunnskóladeild og Donata Honkowicz-Bukowska, ráðgjafi og kennari við Alþjóðaver Álfhólsskóla kynntu.

02

Grunnskóladeild-Nordisk platform

Kynning á samvinnu norrænna vinabæja Kópavogs á sviði skólamála.

Tómas Jónsson, fulltrúi skólaþjónustu, fór yfir sögu og skipulag norrænnar samvinnu.

03

Stofnun öldungaráðs

Bréf frá öldungaráði lagt fram.

Menntaráð fagnar stofnun öldungaráðs.

04

Menntasvið-fyribyggjandi starf og foreldrasamstarf

Tillaga um stofnun forvarnarhóps lögð fram og kynning á samstarfi menntasviðs og Samkóp.

Menntaráð samþykkir með öllum greiddum atkvæðum tillögu um myndun forvarnarhóps með áorðnum breytingum.