Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Menntaráð - 9. fundur

í fundarsal Fannborg 2, 2. hæð

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Margrét Friðriksdóttir - formaður
  • Ólafur Örn Karlsson - aðalmaður
  • Helgi Magnússon - aðalmaður
  • Sverrir Óskarsson - varaformaður
  • Ragnhildur Reynisdóttir - aðalmaður
  • Helga María Hallgrímsdóttir - aðalmaður
  • Gísli Baldvinsson - aðalmaður
  • Bergljót Kristinsdóttir - áheyrnarfulltrúi
  • Arnar Björnsson - foreldrafulltrúi
  • Kristgerður Garðarsdóttir - kennarafulltrúi
  • Sigrún Bjarnadóttir - fulltrúi skólastjóra

Starfsmenn

  • Ragnheiður Hermannsdóttir
  • Anna Birna Snæbjörnsdóttir

Ritari

  • Ragnheiður Hermannsdóttir

Næsti fundur menntráðs verður föstudaginn 9. júní kl. 8.

Dagskrá fundar

Almenn erindi

01

Menntaráð-stefnumótun

Rætt um efni fyrirhugaðs sameigninlegs fundar fastanefnda menntasviðs.

Margrét Friðriksdóttir formaður menntaráðs kynnti drög að dagskrá.

Almenn erindi

02

Innleiðing spjaldtölva í grunnskólum Kópavogsbæjar

Verkefnastjóri kemur og kynnir stöðu mála.

Björn Gunnlaugsson verkefnastjóri spjaldtölvuverkefnis kom og kynnti fyrstu niðurstöður úr könnun meðal kennara.

Almenn erindi

03

Grunnskóladeild-Viðmiðunarstundaskrá í list- og verkgreinum

Svar við fyrirspurn menntaráðs um hvort grunnskólar í Kópavogi uppfylli viðmiðunnarstundaskrá í list- og verkgreinum lögð fram.

Menntaráð fagnar því að flestir grunnskólar í Kópavogi fylgja viðmiðunarstundaskrá í list- og verkgreinum. Jafnframt áréttar ráðið að allir grunnskólar fari eftir viðmiðunarstundarskrá.

Almenn erindi

04

Málefni frístundaklúbbsins Hrafnsins

Kynning á starfsemi Hrafnsins.

Kynningu frestað til næsta fundar.

Almenn erindi

05

Frístundadeild-Molinn ungmennahús

Kynning á starfsemi Molans.

Kynningar frestað til næsta fundar.

Önnur mál

06

Kópurinn 2017

Umsóknarfrestur hefur verið framlengdur til 19. mái. Kópurinn verður afhentur 31. maí kl.15 í Salnum.