Menntaráð - 166. fundur
í bæjarstjórnarsal, Hábraut 2
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Karen Rúnarsdóttir - formaður
- Hildur Karen Sveinbjarnardóttir - aðalfulltrúi
- Hildur Einarsdóttir - aðalfulltrúi
- Arnór Aðalsteinsson - aðalfulltrúi
- Gunnar Sær Ragnarsson - aðalfulltrúi
- María Ellen Steingrímsdóttir - aðalfulltrúi
- Bryndís Rut Logadóttir - aðalfulltrúi
- Björn Þór Rögnvaldsson - áheyrnarfulltrúi
- Nína Berglind Sigurgeirsdóttir - áheyrnarfulltrúi
- Kristgerður Garðarsdóttir - kennarafulltrúi
- Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir - fulltrúi skólastjóra
Starfsmenn
- Anna Birna Snæbjörnsdóttir - Sviðsstjóri menntasviðs
- Ingunn Mjöll Birgisdóttir - starfsmaður menntasviðs
- Amanda Karima Ólafsdóttir - starfsmaður menntasviðs
- Ingibjörg Ýr Pálmadóttir - embættismaður
Ritari
- Ingunn Mjöll Birgisdóttir
Dagskrá fundar
Lagt fram til kynningar verkefnið Barnvænt sveitarfélag.
Lagt fram.
02
Umsögn til Alþingis vegna fjárlagafrumvarps ársins 2027 og áhrif þess á framtíðar samþættrar þjónustu í þágu farsældar barna
Lögð fram til kynningar umsögn Kópavogsbæjar um frumvarp til fjárlaga 2027 vegna niðurfellingar fjárframlaga til sveitarfélaga vegna samþættingar þjónustu í þágu farsældar barna.
Lagt fram.
Fundarhlé hófst kl. 16.11, fundi framhaldið kl. 16.15.
Gestir viku af fundi kl. 16.16.
Bókun:
Meirihluti menntaráðs Kópavogs auk fulltrúa kennara, skólastjórnenda og Miðflokksins taka undir og styðja heilshugar umsögn Kópavogsbæjar dags. 22. september 2026 vegna frumvarps til fjárlaga 2027. Sú fyrirætlan ríkisvaldsins að fella einhliða niður fjárframlög til sveitarfélaga vegna samþættingar þjónustu í þágu farsældar barna gengur gegn skýrum lagaskyldum sem lagðar hafa verið á leik- og grunnskóla sveitarfélagsins.
Samkvæmt farsældarlögum, leikskólalögum og grunnskólalögum er skólakerfi sveitarfélagsins beinlínis gert skylt að tryggja öllum börnum aðgengi að tengiliðum farsældar, sinna málstjórn og halda úti stuðningsteymum. Þessum fortakslausu lagaskyldum verður ekki mætt nema viðeigandi fjármagn fylgi.
Sagan hefur sýnt að full yfirfærsla verkefna á sveitarstjórnarstigið án nægjanlegs samráð í aðdraganda þess né viðunandi fjárútláta að hálfu ríkisins hefur í för með sér ófyrirsjáanleika og kemur niður á notendum þjónustunnar. Í þessu tilfelli er um börn að ræða sem þessi úrræði geta hjálpað verulega.
Karen Rúnarsdóttir
Hildur Karen Sveinbjarnardóttir
Hildur Einarsdóttir
Arnór Aðalsteinsson
Gunnar Sær Ragnarsson
Kristgerður Garðarsdóttir
Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir
Nína Berglind Sigurgeirsdóttir
Bókun:
Skólastjórar grunnskóla Kópavogs lýsa yfir áhyggjum af því að í fyrirliggjandi fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2027 sé ekki gert ráð fyrir áframhaldandi sérstöku framlagi til sveitarfélaga vegna samþættingar þjónustu í þágu farsældar barna.
Við innleiðingu farsældarlaganna var hluti þess fjármagns sem Kópavogsbær fékk frá ríkinu nýttur í grunnskólum bæjarins til að styrkja framkvæmd og skýra hlutverk tengiliða farsældar. Tengiliðir farsældar gegna mikilvægu hlutverki við að tryggja snemmtækan stuðning, samfellu í þjónustu og samstarf milli skóla, fjölskyldna og annarra þjónustukerfa.
Verði frumvarpið samþykkt óbreytt höfum við áhyggjur af því að breyting á fjármögnun geti dregið úr ábyrgð sveitarfélagsins á því að tryggja skólunum nauðsynlegt svigrúm til að sinna þessu lögbundna hlutverki. Farsældarlögin fela í sér varanlegar skyldur en er ekki tímabundið verkefni.
Skólastjórar grunnskóla Kópavogs hvetja Alþingi og ríkisstjórn, sem og sveitarfélögin, að tryggja í sameiningu áframhaldandi og fyrirsjáanlegt fjármagn vegna framkvæmdar farsældarlaganna, svo tryggja megi börnum og fjölskyldum þann snemmtæka og samþætta stuðning sem lögin kveða á um.
F.h. skólastjóra,
Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir
Lagt fram til kynningar erindisbréf menntaráðs.
Lagt fram.
Gestur vék af fundi kl. 16.23.
Lögð fram til samþykktar endurskoðuð fundaáætlun fyrir vorið 2027 ásamt starfsáætlun menntaráðs 2026-2027.
Menntaráð samþykkir endurskoðaða fundarætlun menntasviðs fyrir vorið 2027 ásamt starfsáætlun.
Lögð fram umsögn menntasviðs um tillögu fulltrúa Miðflokks í menntaráði varðandi framkvæmd stefnu um skóla án aðgreiningar.
Lagt fram.
Umræða.
06
Fyrirspurn frá meirihluta í menntaráði um fartölvur fyrir elstu nemendur í grunnskólum Kópavogs.
Lögð fram fyrirspurn frá meirihluta í menntaráði um fartölvur fyrir elstu nemendur í grunnskólum Kópavogs.
Menntaráð vísar fyrirspurn til úrvinnslu á menntasviði.
Umræða.
Lögð fram til kynningar minnisblað og drög að reglum um styrki til náms í grunnskólakennarafræðum.
Lagt fram.
Gestur vék af fundi kl. 17,00.