Umsögn til Alþingis vegna fjálagafrumvarps ársins 2027 og áhrif þess á framtíðar samþættrar þjónustu í þágu farsældar barna
Málsnúmer: 26092068
Ferill máls
01
Bæjarráð - 3267. fundur
Lögð fram til kynningar umsögn Kópavogsbæjar um frumvarp til fjárlaga 2027 vegna niðurfellingar fjárframlaga til sveitarfélaga vegna samþættingar þjónustu í þágu farsældar barna.
02
Menntaráð - 166. fundur
Lögð fram til kynningar umsögn Kópavogsbæjar um frumvarp til fjárlaga 2027 vegna niðurfellingar fjárframlaga til sveitarfélaga vegna samþættingar þjónustu í þágu farsældar barna.
Lagt fram.
Fundarhlé hófst kl. 16.11, fundi framhaldið kl. 16.15.
Gestir viku af fundi kl. 16.16.
Bókun:
Meirihluti menntaráðs Kópavogs auk fulltrúa kennara, skólastjórnenda og Miðflokksins taka undir og styðja heilshugar umsögn Kópavogsbæjar dags. 22. september 2026 vegna frumvarps til fjárlaga 2027. Sú fyrirætlan ríkisvaldsins að fella einhliða niður fjárframlög til sveitarfélaga vegna samþættingar þjónustu í þágu farsældar barna gengur gegn skýrum lagaskyldum sem lagðar hafa verið á leik- og grunnskóla sveitarfélagsins.
Samkvæmt farsældarlögum, leikskólalögum og grunnskólalögum er skólakerfi sveitarfélagsins beinlínis gert skylt að tryggja öllum börnum aðgengi að tengiliðum farsældar, sinna málstjórn og halda úti stuðningsteymum. Þessum fortakslausu lagaskyldum verður ekki mætt nema viðeigandi fjármagn fylgi.
Sagan hefur sýnt að full yfirfærsla verkefna á sveitarstjórnarstigið án nægjanlegs samráð í aðdraganda þess né viðunandi fjárútláta að hálfu ríkisins hefur í för með sér ófyrirsjáanleika og kemur niður á notendum þjónustunnar. Í þessu tilfelli er um börn að ræða sem þessi úrræði geta hjálpað verulega.
Karen Rúnarsdóttir
Hildur Karen Sveinbjarnardóttir
Hildur Einarsdóttir
Arnór Aðalsteinsson
Gunnar Sær Ragnarsson
Kristgerður Garðarsdóttir
Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir
Nína Berglind Sigurgeirsdóttir
Bókun:
Skólastjórar grunnskóla Kópavogs lýsa yfir áhyggjum af því að í fyrirliggjandi fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2027 sé ekki gert ráð fyrir áframhaldandi sérstöku framlagi til sveitarfélaga vegna samþættingar þjónustu í þágu farsældar barna.
Við innleiðingu farsældarlaganna var hluti þess fjármagns sem Kópavogsbær fékk frá ríkinu nýttur í grunnskólum bæjarins til að styrkja framkvæmd og skýra hlutverk tengiliða farsældar. Tengiliðir farsældar gegna mikilvægu hlutverki við að tryggja snemmtækan stuðning, samfellu í þjónustu og samstarf milli skóla, fjölskyldna og annarra þjónustukerfa.
Verði frumvarpið samþykkt óbreytt höfum við áhyggjur af því að breyting á fjármögnun geti dregið úr ábyrgð sveitarfélagsins á því að tryggja skólunum nauðsynlegt svigrúm til að sinna þessu lögbundna hlutverki. Farsældarlögin fela í sér varanlegar skyldur en er ekki tímabundið verkefni.
Skólastjórar grunnskóla Kópavogs hvetja Alþingi og ríkisstjórn, sem og sveitarfélögin, að tryggja í sameiningu áframhaldandi og fyrirsjáanlegt fjármagn vegna framkvæmdar farsældarlaganna, svo tryggja megi börnum og fjölskyldum þann snemmtæka og samþætta stuðning sem lögin kveða á um.
F.h. skólastjóra,
Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir
03
Bæjarráð - 3266. fundur
Lögð fram til kynningar drög að umsögn til fjárlaganefndar Alþingis vegna farsældar barna dags. 22.9.2026.
Bókun:
"Undirrituð lýsa verulegum áhyggjum af því að fjárframlög ríkisins til sveitarfélaga vegna innleiðingar farsældarlaga verði felld niður að fullu, samkvæmt fyrirliggjandi fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2027.
Stjórnvöldum ber lögum samkvæmt að tryggja sveitarfélögum fjármagn á innleiðingartímabili farsældarlaganna og að því loknu að fara fram endurmat á fjárþörf sveitarfélaga vegna lögbundinnar þjónustu samkvæmt lögunum.
Áður en fjárframlög eru felld niður ber stjórnvöldum að meta þann viðbótarkostnað sem lögin hafa í för með sér fyrir sveitarfélög, ávinning af framkvæmd þeirra og framtíðarfjárþörf vegna þeirrar þjónustu sem lögin leggja sveitarfélögum á herðar. Slíkt mat hefur ekki farið fram.
Ríkisendurskoðun hefur jafnframt bent á að þrátt fyrir að fimm ár séu liðin frá upphafi innleiðingar laganna sé innleiðingu þeirra ekki lokið. Þar vegur þungt að framkvæmd laganna hefur að ýmsu leyti verið ábótavant og meðal annars hefur ekkert heildstætt árangursmat verið framkvæmt.
Það blasir við að án áframhaldandi stuðnings ríkisins við innleiðingu farsældarlaganna er hætta á að þjónusta skerðist fyrir þær um 900 fjölskyldur í Kópavogi sem reiða sig á þessa þjónustu.
Niðurfelling fjárframlaga ríkisins er því illa rökstudd og vekur upp verulegar spurningar um samræmi hennar við þær skyldur sem lögin leggja á stjórnvöld. Slík ákvörðun getur stefnt markmiðum farsældarlaganna í hættu og jafnframt teflt þeim árangri sem þegar hefur náðst í hættu."
Ásdís Kristjánsdóttir
Andri Steinn Hilmarsson
Orri Vignir Hlöðversson
Hjördís Ýr Johnson
04
Velferðar- og mannréttindaráð - 21. fundur
Lögð fram til kynningar drög að umsögn til fjárlaganefndar Alþingis vegna farsældar barna dags. 22.9.2026.
Lagt fram.
Bókun:
Velferðar- og mannréttindaráð Kópavogs lýsir verulegum áhyggjum af því að sérstakt viðbótarfjármagn ríkisins til sveitarfélaga vegna innleiðingar og framkvæmdar farsældarlaganna falli niður samkvæmt fyrirliggjandi fjárlagafrumvarpi 2027.
Sveitarfélög hafa á undanförnum árum byggt upp þjónustu og tekið á sig lögbundnar skyldur með það að markmiði að börn og fjölskyldur fái snemmtækan, samfelldan og samþættan stuðning. Mikilvægt er að sú uppbygging glatist ekki og að tryggt verði að börn og fjölskyldur fái áfram þá þjónustu og stuðning sem farsældarlögunum er ætlað að tryggja.
Ráðið telur ótímabært að draga úr fjármögnun án þess að fyrir liggi heildstætt mat á raunverulegum kostnaði sveitarfélaga, ávinningi og árangri innleiðingarinnar. Ríkisendurskoðun hefur jafnframt bent á að innleiðingu og framkvæmd laganna hafi að ýmsu leyti verið ábótavant og að ekki séu enn fyrir hendi fullnægjandi forsendur til að ná meginmarkmiðum þeirra.
Velferðar- og mannréttindaráð hvetur því stjórnvöld til að endurskoða fyrirhugaða niðurfellingu framlagsins og tryggja áframhaldandi og fyrirsjáanlega fjármögnun. Samfella og stöðugleiki í þjónustu við börn og fjölskyldur er grundvallaratriði og mikilvægt að sú fjárfesting sem þegar hefur verið ráðist í fái tíma og svigrúm til að skila þeim samfélagslega ávinningi sem farsældarlögunum er ætlað að ná fram.
Björg Baldursdóttir, Sigrún Bjarnadóttir, Haukur Már Hauksson, Gunnlaugur Auðunn Ragnarsson, Hannes H Þorvaldsson og Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir.
Örn Arnarson og Thelma Bergmann Árnadóttir sitja hjá.