Menntaráð - 161. fundur
í Kársnesskóla
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Hanna Carla JóhannsdóttirBoðaði forföllHanna Carla JóhannsdóttirSat fundinn í staðinn
- Hildur Karen Sveinbjarnardóttir - aðalmaður
- Jónas Haukur Thors Einarsson - aðalmaður
- Hjördís Einarsdóttir - aðalmaður
- Björn Þór Rögnvaldsson - aðalmaður
- Sigurbjörg Erla Egilsdóttir - aðalmaður
- Tryggvi Felixson - aðalmaður
- María Ellen Steingrímsdóttir - áheyrnarfulltrúi
- Kristgerður Garðarsdóttir - aðalmaður
- Karen Rúnarsdóttir - aðalmaður
- Sigrún Bjarnadóttir - aðalmaður
Starfsmenn
- Anna Birna Snæbjörnsdóttir - Sviðsstjóri menntasviðs
- Bergþóra Þórhallsdóttir
Ritari
- Bergþóra Þórhallsdóttir
Andri Steinn Hilmarsson bæjarfulltrúi D lista sat fundinn í stað Hönnu Cörlu Jóhannsdóttur D lista.
Dagskrá fundar
Heimsókn menntaráðs í grunnsóla Kópavogs - Kársnesskóli
Menntaráð þakkar Björgvini Þór Þórhallssyni aðstoðarskólastjóra fyrir góðar móttökur og veitingar. Jafnframt þakkar ráðið Lindu Brá Hafsteinsdóttur kennara og nemendum hennar í 6. bekk fyrir frábæra kynningu á sögurammaverkefni þeirra um pláneturnar.
Lagt fram til kynningar minnisblað og upplýsingar um framkvæmd og útfærslu á verkefninu Okkar skóli.
Amanda K. Ólafsdóttir, skrifstofustjóri menntasviðs, kynnti verkefnið og svaraði fyrirspurnum.
Amanda vék af fundi 17:45.
Lagt fram til upplýsinga, kynningar á tilnefningum og viðurkenningum Kópsins 2026, viðurkenningu menntaráðs fyrir framúrskarandi skóla- og frístundastarf.
Fulltrúar menntaráðs í valnefnd Kópsins fóru yfir verkefnin sem fengu viðurkenningu og gerðu grein fyrir hvernig staðið var að vali þeirra 7 verkefna sem fengu viðurkenningu, af þeim 35 sem tilnefnd voru.
Lagt fram erindi frá skólaráði Snælandsskóla vegna viðhalds húsnæðis. Samhliða lagt fram minnisblað frá sviðsstjórum menntasviðs og umhverfissviðs.
Lagt fram og umræður.
Frekari umræðu frestað til næsta fundar. Menntaráð óskar eftir frekari gögnum og tillögu að svari til skólaráðs Snælandsskóla.