Erindi frá skólaráði Snælandsskóla vegna viðhalds húsnæðis
Málsnúmer: 26041870
Ferill máls
01
Menntaráð - 162. fundur
Minnisblað um viðhald húsnæðis Snælandsskóla lagt fram.
Tillaga að svari menntaráðs við erindi skólaráðs Snælandsskóla vegna viðhalds húsnæðis lögð fram til samþykktar.
Asthildur Helgadóttir, sviðsstjóri umhverfissviðs, gerði grein fyrir viðhaldi á húsnæði Snælandsskóla. Ásthildi er þökkuð góð yfirferð yfir viðhaldsverkefni í skólanum.
Umræður.
Tillaga að svari menntaráðs við erindi skólaráðs Snælandsskóla er samþykkt með áorðnum breytingum.
Ásthildur Helgadóttir víkur af fundi kl. 17:05
02
Menntaráð - 161. fundur
Lagt fram erindi frá skólaráði Snælandsskóla vegna viðhalds húsnæðis. Samhliða lagt fram minnisblað frá sviðsstjórum menntasviðs og umhverfissviðs.
Lagt fram og umræður.
Frekari umræðu frestað til næsta fundar. Menntaráð óskar eftir frekari gögnum og tillögu að svari til skólaráðs Snælandsskóla.