Menntaráð - 160. fundur
í bæjarstjórnarsal, Hábraut 2
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Hanna Carla JóhannsdóttirBoðaði forföllHanna Carla JóhannsdóttirSat fundinn í staðinn
- Hildur Karen Sveinbjarnardóttir - aðalmaður
- Jónas Haukur Thors Einarsson - aðalmaður
- Hjördís Einarsdóttir - aðalmaður
- Björn Þór Rögnvaldsson - aðalmaður
- Sigurbjörg Erla Egilsdóttir - aðalmaður
- Tryggvi Felixson - aðalmaður
- María Ellen Steingrímsdóttir - áheyrnarfulltrúi
- Kristgerður Garðarsdóttir - aðalmaður
- Karen Rúnarsdóttir - aðalmaður
- Sigrún Bjarnadóttir - aðalmaður
Starfsmenn
- Anna Birna Snæbjörnsdóttir - Sviðsstjóri menntasviðs
- Ingibjörg Ýr Pálmadóttir - starfsmaður menntasviðs
Ritari
- Ingibjörg Ýr Pálmadóttir
Dagskrá fundar
Kynning á þróun frístundastarfs félagsmiðstöðva.
Victori Berg Guðmundssyni, deildarstjóra frístundadeildar, er þökkuð góð kynning á þróun frístundastarfs félagsmiðstöðva í Kópavogi.
Umræður.
Menntaráð fagnar auknum opnunartíma félagsmiðstöðva í Kópavogi.
Victor Berg kemur inn á fund kl. 16:45.
02
Fyrirspurn frá Birni Þór Rögnvaldssyni, fulltrúa Samfylkingar í menntaráði, varðandi starfsemi félagsmiðstöðva
Erindi frestað á síðasta fundi menntaráðs og vísað til næsta fundar.
Svar við fyrirspurn Björns Þórs Rögnvaldssonar um opnunartíma, starfsemi og mönnun félagsmiðstöðva í Kópavogi lagt fram.
Umræður.
Victor Berg Guðmundsson vék af fundi kl. 17:25.
03
Fyrirspurn frá Birni Þór Rögnvaldssyni, fulltrúa Samfylkingar í menntaráði, varðandi húsnæðismál skóla
Erindi frestað á síðasta fundi menntaráðs og vísað til næsta fundar.
Svar við fyrirspurn Björns Þórs Rögnvaldssonar varðandi húsnæðismál Kópavogsskóla lagt fram.
Bókun frá Birni Þór Rögnvaldssyni: Undirritaður þakkar gott svar frá menntasviði og hvetur til góðrar upplýsingagjafar til foreldra varðandi myglu í skólanum. Lýst er áhyggjum yfir því að engin aðstaða er fyrir skólabókasafn í Kópavogsskóla, en mikilvægt er að sveitarfélagið skaffi börnum jöfn tækifæri hvað varðar aðgengi að bókum í skólum, en nú er svo ástatt að a.m.k. tveir grunnskólar í sveitarfélaginu eru án aðstöðu fyrir bókasafn.
Bókun frá meirihlutanum: Meirihluti menntaráðs bendir á að bókasöfn eru til staðar í öllum grunnskólum Kópavogs, utan tímabundinnar lokunar í Kópavogsskóla.
Meirihlutinn fagnar jafnframt fjölbreyttum útfærslum bókasafna skólanna, enda hlýtur lokamarkmiðið að vera að hvetja til aukins lesturs barna.
Kynning á aðgerðaráætlun Barnvæns sveitarfélags.
Amöndu K. Ólafsdóttur, skrifstofustjóra menntasviðs, er þökkuð góð kynning á Aðgerðaáætlun Barnvæns sveitarfélags 2025-2027 í Kópavogi.
Umræður.
Amanda K. Ólafsdóttir víkur af fundi kl. 16:45.
Kynning á þróunarverkefni "Gervigreind - uppspretta nýrra tækifæra?" lögð fram.
Bergþóra Þórhallsdóttir, verkefnastjóri upplýsingatækni í skólastarfi, kynnir þróunarverkefni sem hlaut styrk úr Sprotasjóði í mars 2026.
Umræður.
Bergþóra Þórhallsdóttir kemur inn á fund kl. 17:50 og víkur af fundi kl. 18:25.