Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Fyrirspurn frá Birni Þór Rögnvaldssyni, fulltrúa Samfylkingar í menntaráði, varðandi húsnæðismál skóla

Málsnúmer: 26031611

Ferill máls

01

Menntaráð - 160. fundur

Erindi frestað á síðasta fundi menntaráðs og vísað til næsta fundar.

Svar við fyrirspurn Björns Þórs Rögnvaldssonar varðandi húsnæðismál Kópavogsskóla lagt fram.

Bókun frá Birni Þór Rögnvaldssyni: Undirritaður þakkar gott svar frá menntasviði og hvetur til góðrar upplýsingagjafar til foreldra varðandi myglu í skólanum. Lýst er áhyggjum yfir því að engin aðstaða er fyrir skólabókasafn í Kópavogsskóla, en mikilvægt er að sveitarfélagið skaffi börnum jöfn tækifæri hvað varðar aðgengi að bókum í skólum, en nú er svo ástatt að a.m.k. tveir grunnskólar í sveitarfélaginu eru án aðstöðu fyrir bókasafn.

Bókun frá meirihlutanum: Meirihluti menntaráðs bendir á að bókasöfn eru til staðar í öllum grunnskólum Kópavogs, utan tímabundinnar lokunar í Kópavogsskóla.

Meirihlutinn fagnar jafnframt fjölbreyttum útfærslum bókasafna skólanna, enda hlýtur lokamarkmiðið að vera að hvetja til aukins lesturs barna.

02

Menntaráð - 159. fundur

Svar við fyrirspurn lagt fram.

Menntaráð samþykkir með öllum greiddum atkvæðum að málinu sé frestað til næsta fundar.

Fundi menntaráðs lauk kl. 19:40.