Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Notendaráð í málefnum fatlaðs fólks - 15. fundur

í bæjarstjórnarsal, Hábraut 2

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Björg Baldursdóttir - formaður
  • Kolbeinn Reginsson - aðalmaður
  • Magnús Þorsteinsson - aðalmaður
  • Ingveldur Jónsdóttir - aðalmaður
  • Axel Þór Eysteinsson - aðalmaður
    Boðaði forföll
    Axel Þór Eysteinsson - varamaður
    Sat fundinn í staðinn
  • Salóme Mist Kristjánsdóttir - aðalmaður
    Boðaði forföll
    Salóme Mist Kristjánsdóttir - varaformaður
    Sat fundinn í staðinn
  • Hekla Björk Hólmarsdóttir - aðalmaður

Starfsmenn

  • Jón Kristján Rögnvaldsson - starfsmaður velferðarsviðs
  • Kristín Þyri Þorsteinsdóttir - starfsmaður velferðarsviðs

Ritari

  • Jón Kristján Rögnvaldsson

Dagskrá fundar

01

Aðgengi fatlaðs fólks að Heilsugæslunni Hamraborg

Erindi frá fulltrúum í notendaráði um aðgengi fatlaðs fólks að Heilsugæslunni í Hamraborg.

Fulltrúar í notendaráði óska eftir endurskoðun á fjölda bílastæða fyrir hreyfihamlaða við Heilsugæslustöðina að Hamraborg 8 vegna eðlis starfsseminnar. Í dag eru þrjú bílastæði við húsið en eitt þeirra er langt frá aðalinngangi hússins.

02

Erindi frá notendaráði í málefnum fatlaðs fólks til skipulagsráðs

Notendaráð í málefnum fatlaðs fólks krefst þess að núverandi deiliskipulag í

miðbænum fyrir reiti B1-1, B1-3, B2 og B4 verði fellt úr gildi.

Þegar nýtt deiliskipulag verður unnið fyrir þessa reiti, þarf aðgengi íbúa í

nágrenninu að heimilum sínum að vera tryggt, bæði á byggingartíma og eftir

hann, í fullu samræmi við byggingareglugerð.

Bókun.

Í gildi er deiliskipulag fyrir svæðið sem ekki hefur komið til framkvæmda. Bæjaryfirvöld munu ekki veita leyfi til uppbyggingar svæðisins nema að áður hafi framkvæmdaaðili lagt fram áætlun um hvernig aðgengi íbúa á svæðinu að eignum sínum verði tryggt á framkvæmdatíma. Eðli máls samkvæmt verða engar framkvæmdir heimilaðar nema að þær séu í samræmi við byggingarreglugerð, mannvirkjalög og önnur lagafyrirmæli.

Björg Baldursdóttir.

Magnús Þorsteinsson.



03

Aðgengisfulltrúi

Notendaráð óskar eftir aðgengisfulltrúi Kópavogsbæjar komi á næsta fund ráðsins og geri grein fyrir hlutverki sínu.

04

Íbúðakjarni - Kleifakór 2

Nýr íbúðakjarni við Kleifakór 2 verður opnaður snemma árs 2025. Framkvæmdin kynnt og farið yfir teikningar að húsinu.

Notendaráð þakkar góða kynningu á nýjum íbúðakjarna við Kleifakór 2 og lýst vel á þessar fyrirætlanir.

05

Heimsóknir á starfsstöðvar

Rætt um áhuga meðlima notendaráðs á að heimsækja starfsstöðvar sem falla undir málaflokk fatlaðs fólk.

Rætt um áhuga meðlima notendaráðs á að heimsækja valdar starfsstöðvar sem falla undir málaflokk fatlaðs fólk.

06

Húsnæðismál í málaflokki fatlaðs fólks

Jón Kristján Rögnvaldsson flytur kynningu á því sem er framundan í húsnæðismálum hjá skrifstofu starfsstöðva og þróunar.

Skrifstofustjóri starfsstöðva og þróunar fór yfir það sem er á döfinni í húsnæðismálum málaflokksins.