Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Erindi frá notendaráði í málefnum fatlaðs fólks til skipulagsráðs

Málsnúmer: 2402420

Ferill máls

01

Bæjarráð - 3190. fundur

Lagt fram svar umhverfissviðs dags. 26.6.2024 við erindi notendaráðs í málefnum fatlaðs fólks vegna deiliskipulags.

02

Notendaráð í málefnum fatlaðs fólks - 17. fundur

Lagt fram svar umhverfissviðs dags. 26.6.2024 við erindi notendaráðs í málefnum fatlaðs fólks vegna deiliskipulags.

Notendaráð í málefnum fatlaðs fólks lýsir yfir áhyggjum af miklum töfum á framkvæmdum á Fannborgarreit og tengdum reitum í miðbæ Kópavogs og áhrifum þeirra á aðstæður íbúa á svæðinu sem um ræðir. Ráðið skorar á bæjaryfirvöld og lóðarhafa að hraða því eins og kostur er að leggja fram áætlanir um framkvæmdir til að losa íbúa úr þeirri óvissu sem nú ríkir.

03

Velferðarráð - 137. fundur

05

Skipulagsráð - 165. fundur

Lagt fram erindi notendaráðs í málefnum fatlaðs fólks til skipulagsráðs, ódags., um kröfu þess efnis að deiliskipulag fyrir reiti B1-1, B1-3, B2 og B4 í miðbæ Kópavogs verði fellt úr gildi. Á fundi notendaráðs í málefnum fatlaðs fólks þann 12. febrúar 2024 var erindinu vísað til umsagnar.

Lagt fram. Skipulagsráð vísar erindinu til umsagnar umhverfissviðs.

06

Notendaráð í málefnum fatlaðs fólks - 16. fundur

Notendaráð í málefnum fatlaðs fólks ítrekar fyrra erindi til skipulagsráðs og óskar eftir skriflegum, rökstuddum svörum við erindinu.

07

Notendaráð í málefnum fatlaðs fólks - 15. fundur

Notendaráð í málefnum fatlaðs fólks krefst þess að núverandi deiliskipulag í

miðbænum fyrir reiti B1-1, B1-3, B2 og B4 verði fellt úr gildi.

Þegar nýtt deiliskipulag verður unnið fyrir þessa reiti, þarf aðgengi íbúa í

nágrenninu að heimilum sínum að vera tryggt, bæði á byggingartíma og eftir

hann, í fullu samræmi við byggingareglugerð.

Bókun.

Í gildi er deiliskipulag fyrir svæðið sem ekki hefur komið til framkvæmda. Bæjaryfirvöld munu ekki veita leyfi til uppbyggingar svæðisins nema að áður hafi framkvæmdaaðili lagt fram áætlun um hvernig aðgengi íbúa á svæðinu að eignum sínum verði tryggt á framkvæmdatíma. Eðli máls samkvæmt verða engar framkvæmdir heimilaðar nema að þær séu í samræmi við byggingarreglugerð, mannvirkjalög og önnur lagafyrirmæli.

Björg Baldursdóttir.

Magnús Þorsteinsson.