Öldungaráð - 9. fundur
á Digranesvegi 1, fundarherbergi - Digranes
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Karen Elísabet S Halldórsdóttir - formaður
- Birkir Jón Jónsson - aðalfulltrúi
- Pétur Hrafn Sigurðsson - aðalfulltrúi
- Þórarinn Þórarinsson - aðalfulltrúi
- Sigríður Bjarnadóttir - aðalfulltrúi
- Sigurður Sigfússon - aðalfulltrúi
Starfsmenn
- Amanda Karima Ólafsdóttir - Deildarstjóri frístunda- og forvarnardeildar
- Anna Klara Georgsdóttir - starfsmaður velferðarsviðs
Ritari
- Anna Klara Georgsdóttir
Dagskrá fundar
Greinargerð deildarstjóra þjónustu- og ráðgjafardeildar aldraðra dags. 30. nóv. 2018 lögð fram til upplýsingar.
Öldungaráð leggur áherslu á aukinn fjölda dagdvalarrýma í bæjarfélaginu. Slík úrræði eru forvörn og viðhalda oft á tíðum heilsu og lífsgæðum aldraðra, auk þess sem dagdvalir geta dregið úr innlögnum á hjúkrunarheimili og þar með aukið möguleika aldraðra til að búa á eigin heimili.
Fjölgun dagdvalarrýma er háð fjárveitingu ríkisins en Kópavogsbær leggur til húsnæði. Öldungaráð hvetur því til að markviss greining fari fram á þeim húsnæðiskosti sem nú þegar er í eigu bæjarins, til þess að meta hvort mögulegt sé að fjölga dagdvalarrýmum innan þeirra eininga.
Hlutfall aldraðra í Kópavogi er nú 12,8% og ekkert bendir til annars en að það fari hækkandi á komandi árum. Sveitarfélagið verður að bregðast við þessari þróun með fyrrgreindri áætlun um fjölgun dagdvalarrýma sem og með öflugri og samþættri heimahjúkrun og heimaþjónustu.
Gæða- og eftirlitsstofnun félagsþjónustu og barnaverndar óskar umsagnar öldungaráðs vegna umsóknar Daga hf um starfsleyfi vegna reksturs félagsþjónustu.
Öldungaráð Kópavogs lítur umsókn Daga hf jákvæðum augum og sér ekkert því til fyrirstöðu að GEF veiti þeim starfsleyfi.
Óskað er eftir umsögn öldungaráðs um drög að reglum um akstursþjónustu aldraðra.
Öldungaráð lítur reglurnar jákvæðum augum og gerir ekki athugasemdir við þær.
Óskað var eftir yfirliti um nýtingu ferðaþjónustu aldraðra á næsta fundi ráðsins.